Laugardagur, 23.9.2017
Ábyrgðarlaus innflytjendastefna Vinstri grænna
VG hefur það sem yfirlýsta stefnu að við Íslendingar "eigum að taka á móti umtalsvert fleiri flóttamönnum, að lágmarki 500 á ári. Jafna þarf aðstæður hælisleitenda og svokallaðra kvótaflóttamanna og tryggja fullnægjandi framkvæmd nýrra útlendingalaga með fjármagni og mannafla," segir í stefnuskrá flokkksins.
Er þetta nú skynsamleg stefna? Hælisleitendur tvöfölduðust rúmlega í fjölda (í nær 800) fyrstu átta mánuði þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. Vinstri græn vilja gleypa við þessu fólki, að miklu leyti múslimum, og bæta við 500 kvótaflóttamönnum að auki, einnig að miklu leyti múslimum!
Hvernig komst það inn í marx-lenínískar kokkabækur Steingríms J. Sigfússonar að hingað mættu flytjast um 1000-1500 múslimar á hverju ári? Eða er það góðmennið með fallega brosið hún Katrún Jakobsdóttir sem fekk að ráða þessu á síðasta landsfundi flokksins?
Hvernig ætla Vinstri græn að fjármagna þessi ósköp? Hvað ætla þau að dæla mörgum tugum milljarða króna í þetta árlega? Og af hverju geta þau ekkert lært af norrænum frændum okkar um að fara beri varlega í alla fjölgun múslima úr þessu?
Og hyggur Katrín Jakobsdóttir að það muni auka kvenréttindi og öryggi ungra stúlkna (bæði gagnvart kynferðislegri áreitni og sársaukafullri umskurn meybarna) hér á landi að fá hingað flóðbylgju múslima? Verður það einnig til að tryggja öryggi samkynhneigðra? Og hvernig getur hún ábyrgzt, að hér verði hinn öfgakenndi salafismi (og wahhabítismi) ekki ráðandi stefna í moskunum tveimur? En þær eru nú að fá samþykkta tvo bænaturna, 11 og 30 metra háa, til að kalla saman múslima til bæna, karlmenn reyndar sér og konur í bakrými.
Hvað er það sem heillar VG svona við þetta allt saman? Finnst þeim kannski spennandi, að eftir því sem heittrúuðum múslimum fjölgar hér, verður auðveldara fyrir öfgaislamista að leynast meðal þeirra, þess vegna ISIS- eða al-Qaída-liða, sem reiðubúnir eru til að hlýða fyrirskipunum um að ráðast á "hina vantrúuðu", þ.e. kristna menn, og láta tilganginn helga meðalið í því efni? -- engu síður en Lenín gerði fyrir einni öld!
Jón Valur Jensson.
VG stærsti flokkurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Evrópumál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt 6.5.2018 kl. 18:43 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Jón Valur
Af hverju er vinstri græn líð að gera þetta ? Hata vinstri græn Íslensk menning ? Hata vinstri grænn Ísland ?
Varðandi bænaturnar - afhverju er það leyfi fyrir svona á Íslandi ? Það er enginn þurf fyrir bænatunar hér - alla muslimar VEITT hvenær þau á að mæta til að biðja. Svona hljóð á enginn plats á Íslandi og mun bara gera Íslendingum reiður.
Merry (IP-tala skráð) 23.9.2017 kl. 18:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.