Þriðjudagur, 19.9.2017
Rúmlega tvöföldun hælisleitenda hingað fyrstu 8 mánuði þessa árs! - kostnaður á 2. tug milljarða
779 voru umsóknirnar 1/1-31/8, en 385 á sama tíma í fyrra. Fyrstu 18 daga í sept. eru þeir 59. Ákvörðun stjórnvalda að gefa tveimur albönskum stórfjölskyldum íslenzk vegabréf hleypti skriðu af stað, jafnvel Bjarni Ben. er farinn að viðurkenna það, en ber þó fulla ábyrgð á þessu. En hann fekk aldeilis að heyra það á fundi Sambands eldri sjálfstæðismanna daginn áður en ríkisstjórnin sprakk, að flokkurinn hefði farið illa að ráði sínu:
Þór Whitehead, sagnfræðingur, steig fram og sagði að hælisleitendastraumurinn stafi að stórum hluta af ákvörðun fyrrverandi innanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins um að afturkalla ákvörðun Útlendingastofnunar um að neita fjölskyldu frá Albaníu landvist. Fiskisagan hafi flogið um að Íslendingar væru reiðubúnir að opna sitt land. Í þessum löndum ríkir engin neyð. Þessi ákvörðun er ákvörðun Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur ýtt undir þennan straum sem er að kosta ríkisstjórnina sjö milljarða, sagði Þór* og bætti við að því miður hafi í tíð Bjarna bæði Icesave-málið og ESB-málið skaðað Sjálfstæðisflokkinn. Ég óttast að haldi flokkurinn áfram á þessari braut skaði hann þjóðina og sjálfan sig, bætti hann við. (Mbl.is, feitletrun JVJ.)
En þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn sé farinn að vakna til málsins og tveir ráðherrar hans, Bjarni og Sigríður Andersen, byrjuð að snúa við blaðinu, þá eru Útlendingalögin enn þau sömu og ekki aðeins það, heldur eru vinstri flokkarnir með "Viðreisn" nú farnir að stefna að enn frekari "líberalíseringu" á þeim lögum, eins og þau væru ekki nógu slæm fyrir! Ætla flokkarnir að bera fram frumvarp um það mál á þessum fáu dögum sem eru eftir til kosninga. Og einna harðasti maðurinn á þessu er Þorsteinn Víglundsson, velferðarráðherra Viðreisnar, eins og útgjaldaliðir hans ráðuneytis séu ekki ærnir fyrir! En strax daginn eftir að fréttir bárust af reglugerðarbreytingu Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra, gekk Þorsteinn fram með þveröfuga tilkynningu um meiri smugur fyrir hælisleitendur til að geta verið hér von úr viti og um tilheyrandi fjáraustur í það!
Þetta kemur einnig í kjölfar þrýstings frá litlum, ekki alþjóðlegum hópi, sem kallast "UNICEF á Íslandi" og hljómar eins og útibú frá Sameinuðu þjóðunum, en í stjórn þar eru eintómir Íslendingar og undir formennsku ... gamla krataþingmannsins Guðrúnar Ögmundsdóttur! Sú hin sama heldur hér einnig uppi markvissri öfgastefnu gegn ófæddum börnum, enda verið formaður útibús International Planned Parenthood á Íslandi, en það eru mestu fósturvígssamtök heims og fengu 100 milljónir dollara árlega frá Obama-stjórninni til þess, en Trump forseti var ekki seinn á sér að skrúfa fyrir þann fjáraustur. Nú keyrir Guðrún hins vegar á það, að hér verði frjálst hægt að drepa ófædd börn til loka 5. mánaðar meðgöngu og kallar það kvenréttindi! Merkilegt nokk gleypti allur Sjöflokkurinn jánkandi þá tillögu hennar, þegar málið var rætt á Alþingi 27. marz sl. EINI flokkurinn sem berst gegn þessu er Íslenska þjóðfylkingin.
En vinstri flokkarnir keyra á þetta hælisleitendamál, ekki sízt "Björt fortíð" og "Viðreisn", og virðast halda að endalaust séu til peningar í þennan útgjaldalið, á sama tíma og öryrkjar og aldraðir eru vanræktir og gengið milli bols og höfuðs á sauðfjárbændum og ofursköttum bætt við á landbyggðarfólk í formi "kolvetnagjalds"! Og það hentar að geta flaggað virðulega útlítandi nafni stofnunar eins og "UNICEF á Íslandi", sem er þó ekkert óskeikulli en gamla rauðsokkan (herskái femínistinn) sem þar trónir sem formaður!
Á líka lund er stefna 365 miðla og Fréttablaðsins skv. leiðara Magnúsar Guðmundssonar ritstjórnarfulltrúa, sem sagði, að "kannski ætti það að vera reglan fremur en undantekningin" að "láta mannúðarástæður ráða för". En með því móti værum við ekki bara að bjóða hingað þúsundum og tugþúsundum manna, heldur margfalt fleira fólki.
Á sama tíma er fyrrverandi formaður bræðraflokks Samfylkingarmanna í Bretlandi, Tony Blair, að leggja til, í ljósi reynslunnar (sbr. hliðstæðar breytingar í Skandinavíu), að innflytjendalög þar verði þrengd. Íbúar Bretlands eru nú tæpar 65 milljónir. En vinstri flokkarnir íslenzku, Fréttablaðið og ugglaust fréttastofa Rúv vilja, að hér, í rúmlega 300.000 manna smáríki, "ráði mannúðarástæður för" í þessum málum, og því er lagt til að setja lög gegn ákvörðun Útlendingastofnunar og úrskurðarnefndar kærumála, úr því að Sigríður Andersen dómsmálaráðherra féllst ekki á að misbeita valdi sínu gegn löglegum ákvörðunum nefndra stofnana, sem falið var þetta vald.
Jafnvel ýmsir íslenzkir þingmenn, sem ættu að vita betur, keyra blint af augum á þetta mál, en ættu að spyrja sjálfa sig ærlegrar spurningar: Er eins og hálfs árs viðvera hér á landi og vinátta við nágranna/skóla- eða vinnufélaga nægileg til að gefa fjölskyldum viðvarandi búseturétt hér og í kjölfarið ríkisborgararétt? Er það það sem menn vilja segja: að við eigum að búa til undantekningar um öll slík tilfelli? Ekki hafði undirritaður og hans fjölskylda slíkan rétt á þeirra tæpu fjórum árum í Bretlandi. Vita menn um nokkurt land, sem býður öllum útlendingum slíkan rétt?
Svo var þetta ekki bara spurning um tvær stelpur, ekki um að aðskilja þær frá fjölskyldum sínum, og ekki um þau ein í tveimur fjölskyldum (alls 6 manns þar) skv. einhverri geðþótta-ákvörðun, heldur alla í sambærilegri stöðu. Og ekki eru stúlkurnar í neinni lífshættu, sem betur fer.
Á vef Útlendingastofnunar segir að fjölgunin á milli ára bendi til þess að umsóknir um alþjóðlega vernd verði fleiri á þessu ári en því síðasta. Umsóknir það sem af er september eru 57.
154 einstaklingar sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi í ágúst síðastliðnum. Það er töluverð aukning frá síðasta ári en í ágúst í fyrra voru umsóknirnar 67 talsins.
Rúmur helmingur þeirra einstaklinga sem sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi í ágúst eru georgískir ríkisborgarar, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar.
Umsækjendur í ágúst voru af 22 þjóðernum, flestir komu frá Georgíu, 89 talsins og 14 frá Albaníu. Fimm umsóknir bárust frá rússneskum ríkisborgurum. 85 prósent umsækjenda voru fullorðnir og 15 prósent yngri en 18 ára.
Niðurstaða fékkst í 94 mál í ágúst. 20 umsóknir voru teknar til efnislegrar meðferðar og voru átta mál afgreidd í forgangsmeðferð. 7 mál voru afgreidd með ákvörðun um endursendingu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. 67 umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka.
13 þeirra 20 mála sem tekin voru til efnislegrar meðferðar lauk með ákvörðun um synjun og sjö með ákvörðun um veitingu verndar eða dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Flestar veitingar voru til umsækjenda frá Írak, fimm talsins, en flestir þeirra sem var synjað eru frá Albaníu, 10 talsins." (Ruv.is)
* Heildareyðsluféð í hælisleitendur á þessu ári er þó í reynd miklu meira en sjö milljarðar, þegar allt er talið með, útgjöld a.m.k. þriggja ráðuneyta, Tryggingastofnunar ríkisins, Sjúkratrygginga Íslands og heils hers af lögfræðingum og öðrum þjónustuaðilum.
Jón Valur Jensson.
UNICEF: Breyta þarf útlendingalögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Facebook
Athugasemdir
Hvað finnst þér um þetta ?
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/09/20/ritadi_island_undir_mynd_af_riki_islams_2/
það kemur fram þessa :
Mynd tengd Ríki íslams á Facebook
Svokallað ógnarmat fór fram hjá embætti Ríkislögreglustjóra vegna hans þar sem óskað var eftir upplýsingum frá erlendum löggæslustofnunum. Við gerð matsins kom í ljós að maðurinn hafði birt mynd á Facebook-síðu sinni 1. ágúst síðastliðinn tengda hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams og ritað Ísland undir myndina.
Hótaði foreldrum sínum
Einnig kom þar fram að maðurinn hafði villt á sér heimildir með því að leyna eftirnafni sínu við íslensk yfirvöld.
Hann hafði gefið upp nokkur mismunandi nöfn og útgáfur af nafni sínu og annað fæðingarár, meðal annars í Noregi, Belgíu, Hollandi og Frakklandi.
-----------------------------------------------------------------------
Er það þessa fíflum sem vinstri fólk vill sleppa inn ?
Merry (IP-tala skráð) 20.9.2017 kl. 23:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.