Laugardagur, 16.9.2017
Brezkur almenningur vill fleiri vopnaða lögreglumenn á göturnar
Enn eitt hryðjuverk var framið í London í gær. 29 særðust, en hefðu flestallir farizt, ef sprengjan hefði sprungið til fulls. Þónokkrar tilraunir til fleiri hryðjuverka hafa verið gerðar á árinu, en afstýrt af lögreglu, auk þeirra sem "heppnuðust" að ósk öfga-islamista í Bretlandi, með 34 manna dauðsföllum. Almenningur stendur með stjórnvöldum og vill að lögreglan í götueftirliti og við lestarstöðvar og sérstakar fjöldasamkomur sé vopnuð. Ennfremur var virkjuð áætlun, Temperer, sem felur í sér þátttöku hermanna.
Meintur tilræðismaður, 18 ára karlmaður, hefur nú verið handtekinn. "Ríki islams" lýsti yfir ábyrgð á glæpnum. (Byggt á Rúv.is, Mbl.is, http://www.bbc.com/news/uk-41292528)
Jón Valur Jensson.
Maður handtekinn í tengslum við hryðjuverkin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Öfgastefnur, fasismi og hryðjuverk | Aukaflokkar: Bretland, Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:21 | Facebook
Athugasemdir
Brezkur almenningur ætti bara sjálfur að vopnast. Þannig þyrftu þeir ekki að bíða í korter ef:
1: terroristi réðist á þá þar sem verðir eru ekki
2: terroristar dræpu vopnuðu verðina fyrst.
Og það myndi spara þeim pening og draga úr ýmsum öðrum glæpum.
Ásgrímur Hartmannsson, 16.9.2017 kl. 17:16
Eins og fyrrverandi SAS maður Phil Campion segir - allir grunaðir jihadís og fólk eins og þau ætti að vera læst iveg og rannsökuð áður en tilraunir eru gerðar til að drepa fleiri fólk í Bretlandi.
Merry (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 20:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.