Föstudagur, 11.8.2017
Kolbeinn Proppé alþm. vill áfram velta milljörðum í hælisleitendur, veitir fátækum Íslendingum í tjöldum í Laugardal enga úrlausn!
Langt er síðan tveir vinstri flokkar misstu allt samband við almennt verkafólk og fátæka alþýðu. Þeir glutruðu niður sakleysinu og hreinleikanum í sinni Jóhönnustjórn þar sem allsherjarráðherrann Steingrímur J. fór hamförum gegn skattgreiðendum í Icesave-lagasetningaræði sínu. Sá er nú sessunautur og ráðunautur Kolbeins Proppé í þingflokki VG!
Kolbeinn vill áfram velta milljörðum (6-10 á árinu?) úr vösum skattgreiðenda í tilhæfulausa hælisleitendur frá múslimaríkjum Balkanskaga, en gerir ekkert fyrir heimilislausar íslenzkar konur sem hírast kaldar í tjöldum í Laugardal !
Misjafnar undirtektir undir grein Kolbeins á Eyjunni ættu að sýna honum, að hann má fara hægar í sakirnar í sinni fjölmenningarástríðu. Og hvaða ávinningur er okkur að þessum bótaþegum frá Albaníu og Makedóníu?
Maður einn hafði samband við undirritaðan og kvaðst eiga vin sem hingað hefði flutt fyrir mörgum árum frá umræddu svæði í álfunni; sá hefur verið hér í fullri vinnu, en kvaðst einmitt hafa verið að koma sér í burt þaðan sem lítill vinnuandi hefði verið. "Hvað eru Íslendingar að hugsa, að bjóða svo þessu fólki hingað, sem gæti bara orðið ykkur að sama vandamáli?"
Eitt er víst, að það er ekki gert af því að okkur beri nein skylda til þess. Hröð hugarfarsspilling vinstri flokkanna og meðvirkni hægri flokkanna er meginástæða þess, að hér er allt opnað upp á gátt og það á sama tíma og skandinavísku þjóðirnar eru hver á fætur annarri að koma þessum óhóflegu aðgengismálum tilhæfulausra hælisleitenda í skaplegra form. Samráð tveggja kven-ráðherra, danskrar og norskrar, um að læra af Norðmönnum (frétt í Sjónvarpi fyrir fáeinum dögum) er til marks um það.
Kannski við ættum að senda gervalla ríkisstjórnina í námskeið til Óslóar!
Jón Valur Jensson.
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Spilling í stjórnmálum, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:38 | Facebook
Athugasemdir
http://www.friatider.se/pedofiln-tverk-spr-ngt-i-england-alla-vita-flickor-r-bara-till-f-r-att-knullas
Þetta er framtíðin hér á Íslandi ef veraldarfyrtir stjórnmálamenn hafa yfirtökin í þessu landi.
Að knulla á sænsku er að ríða.
Þetta er það eina sem kemst að hjá þessum hellisbúum.
valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 11.8.2017 kl. 22:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.