Sunnudagur, 30.7.2017
Víkingasveitin kölluð út vegna hnífabardaga hælisleitenda á Ásbrú
Víkurfréttir og DV segja frá:
Víkingasveitin var kölluð út til að aðstoða lögregluna á Suðurnesjum rétt fyrir miðnætti 29. júlí.
Á vef Víkurfrétta er greint frá því að átök hafi átt sér stað á gistiheimili á Ásbrú. Gistiheimilið er á vegum Útlendingastofnunar.
Í frétt Víkurfrétta kemur fram að vopn hafi verið notuð og voru þeir sem tóku þátt í átökunum vopnaðir hnífum. Þá var óskað eftir sjúkrabifreið á staðinn.
Þessu taka menn ekki vel á Facebók og DV-vefnum, margir taka sterkt til orða.
En er það ekki orðið dæmigert um ástandið, að þörf sé á íslenzkum víkingum til að stöðva uppivöðslusama suðræna flakkara sem sýna með þessum hætti þakklætið fyrir að vera haldið hér uppi í munaðarlífi á kostnað skattgreiðenda?
Jónas Þór Jóhannsson spyr: "Er þessi ríkisstjórn ófær um að taka á þessu vandamáli?"
Guðlaugur Ævar Hilmarsson svarar: "Þorir ekki að rugga bátnum. Er með 1 yfir á Alþingi. Ef hann stoppar þennan ósóma, fara Óttarr Proppé og Svört framtíð í fýlu." Tekur einnig fram, að aldrei hafi hann kosið Svarta framtíð, og bendir á þennan fréttartengil: http://www.mbl.is/frettir/kosning/2016/09/17/vilja_ad_islendingar_verdi_800_thusund/
Arnar Styr Börnsson ritar: "Væri ekki betra að nefna gistiheimilið Valhöll?"
Halldór Karelsson: "Ótrúleg stjórnartök hjá þessari vanhæfu ríkisstjórn."
Jón Valur Jensson.
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:02 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.