Föstudagur, 7.7.2017
Frönsk linkind sem engu mun skila nema enn frekari óstjórn
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur beðið innanríkisráðherra sinn, Gerard Collomb, "að flýta afgreiðslu hælisumsókna þannig að yfirvöld geti svarað því á innan við hálfu ári hverjir fái hæli og hverjir verði sendir úr landi."
Þetta er allsendis fráleit "lausn". Á meðan heldur hælisleitendum áfram að fjölga og öryggi Vesturlanda að minnka, fyrir utan hvernig velferðarkerfið er að bresta undan þunganum.
Norðmönnum tekst að koma ólöglegum hælisleitendum úr landi á tveimur sólarhringum. Einn fárra vakandi sjálfstæðismanna, Björn Bjarnason, fyrrv. menntamála- og dómsmálaráðherra, hefur haldið uppi gagnrýni á framkvæmd þessara mála hér á landi og knúð á um að bætt verði úr án tafar. Það eigi ekki að vera okkur ofviða að afgreiða á einni viku þessi mál, sem Norðmönnum nægja 2-3 sólarhringar til að leysa.
En Macron lætur sér nægja hálft ár! Og minnihlutastjórnin íslenzka ræður ekki við þetta á skemmri tíma en allt að einu ári!
En þessi er stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar: ÍÞ vill herta innflytjendalöggjöf og innleiða 48 tíma regluna í málefnum hælisleitenda. Það er ekkert vit í öðru en að setja þá fjármuni, sem til þarf, í lausn þessa vandamáls. Eftir að það hefur verið gert af krafti á einum til tveimur mánuðum, verður eftirleikurinn auðveldur, og afgreiðslan þarf ekki að taka meira en tvo sólarhringa. Vilji er allt sem þarf!
Á Útvarpi Sögu er dr. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur í ágætu viðtali, þegar þessi orð eru rituð, og hvetur þar til þess, að yfirvöld hér láti senda menn til Noregs til að kynna sér, hvernig Norðmenn leysi þessi verkefni. Það er góð tillaga.
Jón Valur Jensson.
Ráku þúsundir hælisleitenda á brott | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Utanríkismál/alþjóðamál, Varnar- og öryggismál | Breytt s.d. kl. 17:14 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.