Miðvikudagur, 21.6.2017
Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni treystist í sessi
Það er gleðiefni mörgum, að samgönguráðherrann stefnir að nýrri flugstöð í Vatnsmýri á næsta ári. Yfirgnæfandi meirihluti íbúa bæði dreifbýlis og þéttbýlis vill halda flugvellinum í Reykjavík. Hvassahraun útilokast bæði vegna veðurskilyrða* og af því að þar eru vatnsverndarsvæði Suðurnesjamanna. Eins er Hólmsheiðin enginn raunhæfur kostur.
Íslenska þjóðfylkingin styður eindregið flugvöllinn í Vatnsmýrinni. ÍÞ vill að núverandi staðsetning innanlandsflugvallar verði til frambúðar, segir í stefnuskrá flokksins.
Reykjavíkurflugvöllur úr lofti
"Ekki náðist í Dag B. Eggertsson, borgarstjóra, vegna málsins." - Skyndilega varð þeim málglaða orða vant! En hörð andstaða vinstri flokkanna í borgarstjórn gegn Reykjavíkurflugvelli tengist m.a. lóðastefnu þeirra og "þéttingu byggðar" og "Borgarlínunni" sem þeir vilja koma í gagnið, dýrkeyptri og vonlausri framkvæmd. Bjarni Jónsson verkfræðingur rökstyður það afar vel, að hugmyndafræðin að baki hennar er reist á sandi og "óskhyggju sem mun rýra lífskjör og lífsgæði" (sjá greinar hans HÉR og hér), en Íslenska þjóðfylkingin er einmitt andvíg Borgarlínunni, sem útilokað er, að muni borga sig.
* Sjá grein undirritaðs (sem vísar á afar fræðandi greinaskrif Þorkels Ásgeirs Jóhannssonar flugmanns): Hvassahraun er mun verri kostur en Rögnunefndin vill vera láta; ísing og snjókoma algengari en í Rvík.
Jón Valur Jensson.
Ný flugstöð rís í Vatnsmýrinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkar: Skoðanakannanir, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:11 | Facebook
Athugasemdir
Ég er algjörlega sammála Jóni Gunnarssyni um það að það verður að reisa nýja flugstöð, sú gamla er algjörlega til skammar og búin að vera það í mörg ár. Og það er ríkinu líka til algjörlega til skammar hversu mikið það hefur dregið lappirnar í þessu máli.
En það breyti því ekki að flugvöllurinn fer hvort sem ný flugstöð verður byggð eða ekki, enda verður ný flugstöð á færanlegum hjólum svo að hægt verði að rúlla henni til Hafnafjarðar í Hvassahraun.
Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 21.6.2017 kl. 15:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.