Mánudagur, 12.6.2017
Öryggismál almennings gagnvart hryðjuverkahættu færast í skárra horf en áður, en betur má, ef duga skal. Úrtöluhjal vinstri manna á ekki að stýra för!
Þetta á þjóðaröryggisráð, sem kemur öðru sinni saman í dag, að vita, m.a. að auka þarf fjárveitingar til lögreglu vegna þeirra nauðsynlegu ráðstafana sem hafnar eru til að tryggja hér öryggi, eins og sást í þremur ólíkum aðgerðum lögreglu um helgina, en full þörf verður á með ítrekuðum hætti næstu mánuði og misseri.
Að kalla út 120 manna lögreglulið á vakt, eins og gert var í gærkvöldi til öryggisgæzlu 10.000 áhorfenda við landsleik Íslands og Króatíu, er meðal kostnaðarmeiri aðgerða, og nokkuð hliðstæð var gæzlan við Litahlaupið í fyrradag, auk þess sem hindrunum var komið fyrir til að tryggja svæðið. En vegna sjómannadags-hátíðahalda á Grandagarði í gær, sem margir tóku þátt í og fóru hið bezta fram, var gengið svo vel frá málum með lokun götunnar báðum megin frá, að þar þurfti ekki lögreglulið á staðinn; en björgunarsveitamenn voru á svæðinu og fleiri til eftirlits.
Vinstri græn eru á grunni sinnar meintu friðarhyggju farin að hnýta í yfirstjórn lögreglu og stjórnvöld vegna þessara ráðstafana, sem Katrín Jakobsdóttir telur t.d. að hefði átt að tilkynna almenningi um fyrir fram. En þeir, sem mættu á svæðin, upplifðu fremur öryggistilfinningu en óþægindi af návist okkar ágætu löggæzlumanna.
Fráleitur málflutningur um þessi mál birtist í leiðara Fréttablaðsins í dag, í grein eftir menningarblaðamanninn Magnús Guðmundsson. Það verður ekki af þeim skafið vinstri mönnum á Íslandi, að þeir hafa lengi óraunsæir verið og ábyrgðarlausir í varnar- og öryggismálum, og þarna birtust skýr dæmi þess.
Engin ástæða er til að ætla, að á Íslandi sé fyrir fram útilokað að hryðjuverk geti átt sér stað. Kæmust illræðismenn ISIS eða annarra hryðjuverkasamtaka á snoðir um, að hér væru litlar sem engar varnir gegn árásum á almenning og lykil-samkomustaði, þá væri viðbúið, að þeir gætu gengið á lagið. Öryggiskeðjan í vörnum Vesturlanda er ekki sterkari en veikasti hlekkurinn, og fyndu óvinir vestrænnar kristni, samfélags og menningar, að hér væri einn veikasti hlekkurinn, ættu þeir fullt færi á að nýta sér það, með allt það ferðafrelsi og miklu umferð til landsins, sem hér ríkir, og jafnvel í krafti þess að geta laumað liðsmönnum öfgasamtaka til landsins undir yfirskini flótta frá stríðsástandi og/eða hælisleitar vegna bágborinna kjara í heimalandinu. Má þar hafa hugfast, að af báðum þeim svæðum er helzt "von" múslima, en eins og kunnugt er, eru yfir 80% hryðjuverka í heiminum á þessari öld framin af meðlimum múslimasafnaða af ýmsu tagi. En jafnframt er vitað, að á síðustu tímum hafa hryðjuverkamenn beitt ýmsum óhefðbundnum "vopnum", tiltækum í flestum löndum, í baráttu sinni gegn Vesturlandamönnum, og enn gæti sú barátta þeirra harðnað með ófyrirleitnum vopnum. Á enginn Íslendingur með sjálfsvirðingu að stuðla að því, að færi verði gefið á almenningi með ákvörðunum byggðum á óraunsæi, óskhyggju og andvaraleysi.
Við eigum m.a. að nýta okkur aðildina að NATO til að varnarbandalagið leggi fram bæði tækjabúnað, sem okkur kann að vera nauðsynlegur, þjálfun lögreglumanna til að fyrirbyggja og glíma við hryðjuverk og aðgang að gagnabönkum þeirra aðildarþjóða sem skráð hafa grunsamlega einstaklinga, en á móti getum við miðlað upplýsingum til baka, ef einhverjir þeirra eiga leið hér um, og mun það síðastnefnda reyndar nú þegar í gangi með virkum hætti að einhverju leyti (sbr. hér). FRH.
PS. Skoðanakönnun stóð yfir á vef Útvarps Sögu um helgina og niðurstaðan birt nú í hádeginu. Þar var spurt: Ertu andvíg/ur vopnaburði lögreglu? NEI sögðu 81,43%. JÁ sögðu 16,43%, en hlutlaus voru 2,14%. Þetta styður í raun þær aðgerðir, sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip til nú um helgina.
Jón Valur Jensson.
Þjóðaröryggisráð fundar í Keflavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Löggæsla | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Varnar- og öryggismál, Öfgastefnur, fasismi og hryðjuverk | Breytt s.d. kl. 13:51 | Facebook
Athugasemdir
Sáll Jón Valur
Akkurat, ég hef oft spáð í að ef einhver galna jihadi vill keyra á fólk í bænum það er ekkert að stoppa þetta. Það er fullt af fólki hér í súmar í fríi og það er létt fyrir það að ske.
Merry (IP-tala skráð) 12.6.2017 kl. 17:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.