Laugardagur, 27.5.2017
Útrýmingarherferð islamista gegn koptum í Egyptalandi
Beinar, grimmilegar árásir hafa verið gerðar á kristna kopta á síðustu mánuðum, 26 sallaðir niður í gær með skothríð 10 ómenna á tvær rútur og flutningabíl á ferð í Mið-Egyptalandi, en 25 særðir. Um 100 koptar alls hafa verið drepnir sl. hálft ár, meiri hlutinn í kirkjum, og er þessi óhugnaður til vitnis um hatrið sem þrífst í hugarheimum ISIS og margra í Múslimska bræðralaginu. Stjórnvöld landsins berjast gegn þessu og leita nú t.d. ódæðismannanna tíu frá fjöldamorðinu í gær, þar sem m.a. börn voru skotin til bana. Koptar teljast vera 10% Egypta, sem alls eru 92 milljónir talsins.
Hryðjuverkin hafa skaðvænleg áhrif á efnahag Egyptalands, þar sem komum ferðamanna fækkar. En meðlimir Múslimska bræðralagsins voru á þriðju milljón, þegar starfsemi þess var bönnuð, en margir úr því starfa með "Ríki islams" og láta tilganginn helga sín verstu verk. Ekki halda grófustu partar Kóransins aftur af þessum ofstækismönnum.
JVJ.
26 drepnir í árás í Egyptalandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Öfgastefnur, fasismi og hryðjuverk | Aukaflokkar: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Utanríkismál/alþjóðamál, Varnar- og öryggismál | Breytt s.d. kl. 07:36 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.