Um 3,7 millj­ón­ir inn­flytj­enda á Norður­lönd­un­um árið 2018

Það er áhyggjuefni hve hratt hlut­fall inn­flytj­enda og annarr­ar kyn­slóðar inn­flytj­enda í íbúa­fjöld­an­um á Norður­lönd­um hef­ur rokið upp á þess­ari öld.

Í Svíþjóð bjuggu í fyrra tvö­falt fleiri inn­flytj­end­ur en árið 2000. Árið 2000 voru þeir um millj­ón, en um tvær millj­ón­ir í fyrra. Við það bæt­ast inn­flytj­end­ur af ann­arri kyn­slóð. (Mbl.is)

Og eins og nýlega kom fram í fréttum, hefur inn­flytj­end­um einnig fjölgað mikið hér á landi. Þeir voru alls 43.726 í nóvember á liðnu ári (sjá sundurgreiningu þeirra eftir þjóðernum), þ.e. 10,9% mannfjöldans (sjá hér um fjölgun þeirra frá 1950).

En lítum aftur á ástandið hjá frænd­þjóð­um okkar, skv. Mbl.is (leturbr. hér):

Sam­kvæmt gögn­um frá hag­stof­um ríkj­anna bjuggu um 3,7 millj­ón­ir inn­flytj­enda á Norður­lönd­un­um árið 2018, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu [24. júlí].

Það er sennilega leitun að þeim lög­gæzlu­mönn­um á Norður­löndunum sem telja þessa mannfjölgun hafa orðið til blessunar fyrir öryggismál íbúanna sem fyrir voru. Þarf naumast að tíunda það hér, hve mjög innbrot, vopnaðar árásir, eignaspjöll og glæpir gegn konum hafa sett sinn svip á fréttir frá Skandinavíu á síðari árum. Er ekki eitthvað af því að læra fyrir okkur Íslendinga? 

Jón Valur Jensson.


mbl.is Innflytjendum fjölgar á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. júlí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband