Laugardagur, 11.5.2019
Þreföld árás vinstri flokka, stjórnleysingja og "frjálslyndra" á íslenzka þjóð!
Vinstri grænum finnst sjálfsagt að bæta upp á mannauðn hér með óstöðvandi innflutningi múslima, enda eru þau eru á grófasta hátt með þrefalda fólksfækkunarpólitík í gangi, með lagafrumvörpum undan handarjaðri Svandísar Svavarsdóttur og mestu fósturvígsmaskínu heims, International Planned Parenthood,* sem leggur einnig fyrir sig geldingar í stórum stíl með ósæmilegum aðferðum í Indlandi og víðar. Þetta eru frumvörpin þrjú gegn lífinu og viðgangi íslenzku þjóðarinnar:
1) fósturvígsfrumvarpið, sem greidd verða atkvæði um á mánudaginn kemur, á þingfundi sem hefst kl. 15.00; það gefur barnshafandi konum fullt leyfi og einræðisvald til að láta deyða og fjarlægja afkvæmi sitt (frítt vitaskuld!) allt til loka 22. viku meðgöngu, án þess að þær þurfi að gefa nokkra ástæðu fyrir umleitan sinni-- þetta yrðu næstróttækustu fósturdeyðingalög Evrópu, næst á eftir Hollandi!!!
2) Ófrjósemisaðgerða-frumvarpið, sem þegar hefur verið samþykkt sem lög með 53 samhljóða atkvæðum sofandi sauða, en engu mótatkvæði! (2 greiddu ekki atkv., 8 fjarstaddir). Þetta eru langróttækustu lög um ófrjósemisaðgerðir á öllum Norðurlöndunum og stefna, rétt eins fósturmorða-frumvarpið, að enn meiri fækkun Íslendinga, því að þarna er lágmarksaldur til ófrjósemisaðgerða færður niður um SJÖ ÁR, auk þess að gera þær að ÓKEYPIS "heilbrigðisþjónustu"! En hver á svo að bæta þeim maka, sem síðar kemur til skjalanna, þá óhamingju að gera aldrei eignazt barn með eiginmanni sínum eða eiginkonu?
3) Líknardrápsfrumvarpið ofurróttæka, sem fannst ekki í fljótu bragði á þingmálaskrá Alþingis, en það er þarna einhvers staðar: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/lagafrumvorp/
* Tveir útsendarar International Planned Parenthood voru valdir af annaðhvort sofandi eða laumuróttækum heilbrigðisráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni, til að mynda meirihluta nefndar, sem sníða skyldi ný lög um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir! Kristján þennan hefði Bjarni heitinn Benediktsson forsætisráðherra fremur flæmt úr ráðherrastóli, ef ekki látið reka hann úr Sjálfstæðisflokknum, en öðruvísi er farið alnafna hans, núverandi flokksformanni, sem gerir sér jafnframt að góðu að hafa Áslaugu Örnu sem ritara flokksins, stækan málsvara fósturdeyðinga. Engin furða að þessi flokkur þeirra er á niðurleið.
HNEKKJA þarf allri þessari lagasetningu ofurróttæklinga og meðvirkra kjána á Alþingi. Þessi ólög eru að engu hafandi.
Það væri Alþingi hins vegar til fullrar sæmdar að samþykkja ný lög í takt við lagasetningu Georgíu-ríkis í Bandaríkjunum, þar sem fóstureyðingar eru bannaðar frá þeim tíma sem sem hjartsláttur greinist, ekki seinna en í sex vikna gömlum fóstrum.
Jón Valur Jensson.
Hóta að sniðganga ríkið vegna fóstureyðingarlaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.5.2019 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)