2/3 þeirra, sem afstöðu taka í Gallupkönnun, eru andvígir byggingu mosku í Sogamýri

Fram er komin mjög eindregin andstaða stórs hluta kjósenda við byggingu mosku í Sogamýri (á áberandi stað á milli Miklubrautar og Suður­lands­brautar). Gallup­könnun um málið, birt í Mbl. í dag, er mjög ýtarleg, og koma þar m.a. fram ástæður þeirra, sem eru andvígir byggingu moskunnar. 39,3% þeirra eru andvíg stað­setn­ingunni, og 3,4% segja hana "of áberandi", en meirihluti andvígra (51,3%) má segja að hugnist ekki þessi framsókn islams hér á landi: 14,1% segja: á ekki heima hér, 12,7% segja: vil ekki mosku, 7,2% til viðbótar: "er á móti múslimatrú", 7%: [við erum] kristin þjóð, 4,2% nefna: "öfgahópar og hryðjuverk", 2,4%: "mun skapa vandamál", 2,3%: "myndum ekki fá að byggja kirkju í islamsríki" og 1,4%: "neikvæð þróun". Þá telur 1% hana "óþarfa". Þá er yfirgnæfandi meirihluti hlynntur því, að íbúakosning fari fram um málið. Sjá nánar greinina sjálfa í Morgunblaðinu í dag, eftir Árna Má Jónsson framkvæmdastjóra, áhugamann um lýðræði og betra líf, sem og tengilinn hér neðar á mbl.is-frétt um málið.

Þegar menn voru spurðir: "Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) byggingu mosku í Sogamýri í Reykjavík," svöruðu 35,8% hvorki né, en 42,4% voru andvíg og 21,9% hlynnt þessu, og eru það nær tveir andvígir á móti hverjum einum sem hlynntur er byggingu moskunnar.

45,4% vildu, að haldin  yrði íbúakosning um byggingu moskunnar samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum (26. maí nk.), 18,2% vildu að það yrði gert síðar (alls 63,6%), en 36,4% höfðu ekki skoðun á tímasetningu slíkrar kosningar um byggingu mosku eða var alveg sama. Borgarfulltrúar vinstri flokkanna taka hins vegar ekki í mál að leyfa íbúakosningu um málið -- í því birtist þeirra takmarkaða virðing fyrir lýðræði í borginni.

Vinstri menn í stjórn borgarinnar taka islamstrú fram yfir kristna trú, eins og kom fram í andstöðu þeirra við að láta trúfélagið Hjálpræðisherinn (sem hefur hjálpað bágstöddum hér í meira en 100 ár) njóta jafnræðis við múslimasöfnuð handarhöggs-predikarans Salmanns Tamimi. Þessir vinstri flokkar beita sér jafnvel gegn því að skólabörnum sé gefið Nýja testamentið, virðast óttast kærleiksboðskap Jesú Krists og postula hans og það, sem hann gaf okkur, langtum meira en boðskap Kóransins og þann Múhameð sem ofsótti Gyðinga og framdi viðurstyggileg fjöldamorð á fólki í Medína og víðar til að augðast og breiða út islam.

Með öllu sínu trúboði á 12-13 árum í Mekka (til 622 e.Kr.) hafði Múhameð einungis fengið um 50-60 eða í mesta lagi 150 fylgjendur, en eftir að hafa gert Medínu að miðstöð sinni tókst honum á næstu tíu árum að safna um 100.000 manns undir fána islams með sinni vopnuðu baráttu, "heilögu stríði," jihad, í margendurteknum árásar-, ráns- og herförum um Arabíu­skagann. 67% af ævisögu Múhameðs, al-Sira, er helgað hinni vopnuðu baráttu jihad, sjá rit Hege Stor­haug, Þjóða­plágan Íslam (Rvík 2016, bls. 177-8, 185). Islam er trú hins grimma stríðsmanns Múhameðs, ekki trú friðarins.

Jón Valur Jensson, einn frambjóðenda Íslensku þjóðfylkingarinnar til borgarstjórnar.


mbl.is 42% vilja ekki mosku í Sogamýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. maí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband