Laugardagur, 8.10.2016
Íslenska þjóðfylkingin fordæmir allt kynþátta- og útlendingahatur. Flokkurinn er bezti valkostur sjómanna
Þessi andstaða okkar við rasisma var alla tíð ljós frá upphafi og sérstaklega áréttuð á ný á flokksstjórnarfundi í fyrradag. Meðal annarra tíðinda þaðan er formlegur stuðningur ÍÞ við 6% sjómannaafslátt.
Þetta síðarnefnda stefnumál gerir það algerlega ljóst, að Íslenska þjóðfylkingin er langbezti pólitíski valkostur strandbyggða og sjómannafjölskyldna, því að við erum bæði með margföldun strandveiða smábátasjómanna og 6% sjómannaafslátt á stefnuskránni.
Enginn á að sjá ofsjónum yfir því, að sjómenn fái 6% afslátt frá tekjuskatti (takið eftir, að nánast engin umræða er um að hátekjumenn í öðrum stéttum eru bæði með ofurbónusa og önnur fríðindi ofan á laun sín og setjast ekki til vinnu eftir ráðningu sína fyrr en þeir hafa tryggt sér (oft) milljónatuga-starfslokasamning!)
Enginn þarf að öfunda sjómenn, þeir leggja mikið til samfélagsins án þess að nýta samfélagsþjónustu í sama mæli og aðrir, eru langtímum saman fjarri fjölskyldum sínum, vinna gjarnan 12 tíma eða lengur á dag, eru með skemmri starfsævi en aðrir og meiri slysatíðni. Áhætta þeirra og framlag til þjóðlífsins verðskuldar viðurkenningu.
Þar að auki er gróði af smáútgerð jákvæður, ekki löstur. Hann smyr samfélögin og það er einungis til aukinna framfara ef sjómenn geta hjálpað börnum sínum að kaupa sér sjálf bát til útgerðar. Það er löngu kominn tími til að þessi stétt og landsbyggðin fái að njóta nábýlis síns við fiskimið landsins. Þar hefur undirritaður starfað um árabil við sjómennsku bæði frá Seyðisfirði, tveimur stöðum frá Vestfjörðum og þremur höfnum hér syðra og er til vitnis um það fjörmikla athafnalíf, sem þar var að finna, en hefur verið haldið á bremsunni og jafnvel í nokkurri gíslingu á síðari tímum af stjórnvöldum sem hafa ekki nægan skilning á gildi frjáls atvinnurekstrar, heldur hlaða undir ríkustu útgerðirnar og selja þeim jafnvel sjálfdæmi um að leggja einstök fyrirtæki og byggðarlög í rúst, þegar það hentar þeim.
Jón Valur Jensson.
Bloggar | Breytt 9.10.2016 kl. 04:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)