Mánudagur, 17.10.2016
Skemmdarverk gegn framboði Íslensku þjóðfylkingarinnar blasir við
Án efa er það rétt að unnið hafi verið skaðræðisverk gegn ÍÞ með því að m.a. oddamenn tveggja kjördæma drógu framboð sitt til baka. Meðmælendalistar komu ekki allir fram til skrifstofu flokksins, enda höfðu a.m.k. tvær konur í þessum hópi hótað því beinlínis.
Hlutur hins lítt virka Gústafs kann að hafa verið annar, ekki svo að skilja að hann hafi verið óvirkur í þessu samsæri, heldur hafði hann vanrækt bæði fyrirheitin skrif sín fyrir flokkinn í fríi á Spáni nokkrar vikur nýlega og mun lítt hafa safnað meðmælendum.
En belgingur tveggja kvenna vegna undirskriftalista þeirra (þótt margir aðrir hafi komið að þeim verkefnum og sumir af mikilli elju) virðist hafa ýtt undir árásarhvöt þeirra gegn framkvæmdastjórn flokksins, og hefur önnur þeirra gersamlega misst taumhald á ímyndunarafli sínu á því sviði og reynir á Facebók að fá aðra til að trúa jafnvel fráleitasta óhróðri. Andmæli henni einhver, er viðkomandi gjarnan uppteiknaður sem handbendi formannsins, jafnvel beinlínis á launum hjá honum! Hefur undirritaður t.d. fengið slíka skapofsaárás frá viðkomandi á minni eigin Facebók, og er það í takti við, að formann og ritara ÍÞ kallar hún "glæpagengi", vitaskuld án minnsta snefils af sönnunum.
Það er á slíkum stundum sem maður leiðir hugann að því að slíta Facebókar-vináttu við viðkomandi fólk, og það varð undirritaður að gera rétt í þessu, þegar 3. persónan, sem áður var virk í Þjóðfylkingunni, hafði á Facebók minni misnotað hana til ekki aðeins argasta persónuníðs gegn forystu flokksins, heldur og hvatt eindregið til þess "að flokkurinn fái engin atkvæði" og að það sé það, sem gamlir stuðningsmenn flokksins eigi nú að "tryggja"! Hér var því eðlilega komið að þolmörkum hjá undirrituðum, enda myndi svona framkoma ekki líðast innan neins annars flokks.
Meðmælendalistarnir eru nú í brennidepli, rætt er um umboðssvik í sambandi við skil þeirra hér á suðvesturhorninu -- að skemmdarverkamenn hafi ekki skilað þeim til skrifstofu flokksins né til yfirkjörstjórnar, heldur haldið þeim vísvitandi eftir. Þetta mun nú reynt að fá á hreint, bæði með kæru til lögreglu og frestun á afgreiðslu málsins til kl. 14 í dag hjá yfirkjörstjórn í Kraganum, Suðvesturkjördæmi.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Þjóðfylkingin kærir stuld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)