Islamstrú

Guðmudur í framboði til formanns  Islamstrú (stjórnmálaáróður) verður banabiti íslenskrar menningar verði ekki spyrnt við fæti til að varna slíku.  Áróður stjórnmála­manna sem nú sitja á þingi um að við eigum að taka á móti fjöldanum öllum af islamistum er landráð af verstu gerð. Þetta fólk er ekki ábyrgt en mun ekki axla þá ábyrgð sem slíkur aulaskapur veldur.

    Hér er ekki átt við einhvern þjóðflokk eða útlit viðkomandi innflytjenda. Annars værum við að standa í móti öllum aröbum, Kínverjum, Indverjum og svo lengi mætti telja, heldur erum við ekki að níða niður hvort hörunds­litur viðkomandi sé svartur, brúnn, gulleitur eða bara hvítur. Nei, Íslenska þjóðfylkingin er að tala um pólitíska, hugmynda- og trúarbragða-hreyfingu sem ekki er  minnihlutahópur, en elur á hatri í garð annarra með það að markmiði að ná undir sig alheimsyfirráðum. 

    Það sem er merkilegt er að það skuli vera til fólk, ekki einstak­lingar heldur heilu hjarðirnar, sem telja alþingismenn, fréttamenn, kennara, vinstri­sinnaða pólitíkusa, og svo lengi mætti telja, sem hampa slíkri hreyfingu. Hreyfingu sem hefur það að megin­markmiði að útrýma þeim, sem ekki eru sama sinnis og þeir. 

    En þetta er nú ekki bara það, að þessi hópur sé, að manni virðist, heilaskemmdur. Einnig eru femínistar og samkyn­hneigðir fylgjendur þeirra sem aðhyllast slíkt skemmdar­verk á íslenskri menningu og er undarlegt, því þessi trúarbrögð leggja þá sérstaklega út fyrir að vera réttdræpa, hvar sem í þá næst. Er það virkilega svo að Íslendingar vilji koma menningunni aftur til steinaldar, þar sem feðra/karlaveldið er allsráðandi og kúgun kvenna er réttlætt, barnaníð er talið sjálfsagt og heiðursmorð upphafin sem mikil dyggðarinnar verk.  

    Ég trúi því ekki að við séum komin svo langt að við teljum það réttlætanlegt og sjálfsagt, samkvæmt túlkun RÚV-liða með Stefán Ólafsson stórkrata sem trúverðugan talsmann og skýranda, að það sé réttlætanlegt að framin séu morð á óbreyttum borgurum eða nokkrum öðrum í nafni trúar eða hégómagirni einhverra afla sem kalla sig islams­trúar (tilvísun til hryðjuverka í Evrópu og víðar). Hvernig ætlar þetta fólk að túlka hryðjuverk á Íslandi  ef ekki verður spyrnt við fæti, til að sporna við þeirri þróun sem þetta stjórnlausa sjálfmiðaða lið vill innleiða inn í landið?

    Talsmenn þessa hóps sem ver þessar gjörðir hrópar hátt á hátíðar- og tyllidögum um menningu landsins, málið sem gerir okkur sérstök, hversu gott sé að búa hér, en á meðan tala þau niður allt það sem að framan segir. Þeim er skítsama um menninguna sem við erum að selja útlend­ingum en verður ekki lengi ef fram heldur sem horfir. Íslendingar koma ekki til með að geta lesið sagnabækur okkar því tungumálið verður heillum horfið og enginn verður þjóðhátíðardagur þjóðarinnar í fjömenn­ingar­samfélaginu hvað svo sem það mun kallast. Hver á sá dagur að vera þegar fjöldi þeirra sem eru t.d. frá arabaríkjunum, Asíuríkjunum eða Indlandi verður orðinn 800 þúsund eins og Píratar, NO BORDERS-liðar og vinstrielítan vill? 

    Nei, nú segjum við stopp! Það er kominn tími til að Íslendingar taki ábyrgð á eigin landamærum og takmarki þann fjölda, sem hér vill setjast að. Velji þá sem í einlægni vilja gerast sannir þegnar landsins og gera lög, reglur og menningu þess að sínum. Þá er ekki verið að tala um að viðkom­andi segi skilið við sínar rætur, en geri sér grein fyrir því að hann er gestur í okkar landi en við ekki í hans.  

     Til að þetta náist er það nauðsynlegt að segja sig úr Schengen og gera tvíhliða samning við Europol og ríkislögreglu í öðrum löndum. T.d. Scotland Yard, norsku, dönsku og sænsku ríkislögregluna um samstarf á milli landa. Öllum þeim sem koma til landsins skilríkja­lausir sé umsvifalaust snúið við til þess lands sem þeir komu frá og þeir eiga ekki að vera á ábyrgð Íslendinga (Dyflinnar-samkomulagið). Ekki á að búa til kerfisbákn hér á landi eins og nú tíðkast hjá Útlendingastofnun, Rauða krossinum og fleiri afætum sem hafa beinan hagnað af sem flestum flóttamönnum og hælisleitendum, er hingað leita.

    Við eigum aftur á móti að nota það fé, sem í þennan málaflokk fer, til að aðstoða þá sem eru í raunverulegri neyð, það á að gera í þeirra nær­umhverfi. Þetta myndi hjálpa til við að losa um íbúðir inn á íbúða­mark­aðinn. Ástæða þess að hér sé staldrað við er ekki mannvonska heldur sú staðreynd að Íslendingar hafa ekki efni á þessari vitleysu. Þetta mun leggja velferðar­kerfið í rúst. Nú er svo komið að reiknað er með að 12 til 18 milljarðar fari í þennan málaflokk, beint og óbeint, þetta árið. Einhvers staðar verður að taka þessa peninga. Það kann að vera að það líti út fyrir að eitthvert fjármagn sé til að leysa bráðasta vandann nú um stundir en Íslendingar verða ekki alltaf í góðæri og hvað þá?  

    Það er ákall Íslensku þjóðfylkingarinnar til þeirra sem unna sínu landi, menningu og afkomendum sínum, að þeir standi saman og mótmæli þessu háttalagi ríkisstjórn­arinnnar. Það er hægt að gera í komandi sveitar­stjórnar­kosningum og svo ekki síst í næstu alþingis­kosningum; vonandi verður þeirra ekki langt að bíða.

    Kæru vinir, flokksfélagar og aðrir landsmenn. Það er og verður megin-markmið að stöðva byggingu mosku í Reykjavík í komandi borgar­stjórnar­kosningum. Til þess þarf Íslenska þjóðfylkingin þinn stuðning á komandi vori. Við þurfum öflugt fólk sem er tilbúið að standa í lappirnar og berjast með okkur svo við missum ekki landið í hendur öfgasamtaka islamista. Það hættulegasta er að þeir nái og fái að byggja sér mosku sem er í raun ráðhús þeirra og uppeldisstöð fyrir ungviði til heilaþvottar. Þar ráða þeir ráðum sínum bæði til góðs og ekki síst til hins illa sem þeim er innrætt frá barnæsku í gegnum svokölluð trúarbrögð. Látið okkur heyra í ykkur sem tilbúin eruð í að berjast með landinu ykkar.

Guðmundur Karl Þorleifsson, 

formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar. 


mbl.is Þrettándi maðurinn handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðmundur Karl - sem og þið önnur í Þjóðfylkingunni, og aðrir gestir, síðu ykkar !

Guðmundur Karl !

Slóvakía og Ungverjaland: eru góðar fyrirmyndir að úthreinsun Múhameðsku plágunnar í Mið og Austur- Evrópu t.d., líkt og Taíwan hins Kínverska lýðveldis Kúómingtang hreyfingarinnar, í Austur- Asíu, m.a.

Að ógleymdu Angóla - suður í Afríku, ekki síður.

Þið verðið: að víkja hófsemdar- og málamiðlana fólki, eins og Jóni Val Jenssyni úr hreyfingu ykkar, hyggist þið ná einhverju brautargengi, á meðal landsmanna.

Jón Valur - er einn fremstu fylgjenda aðdáenda klúbbs Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar t.d., en Sigmundur og vinir hans eru kappsfullir velunnarar viðveru Mekku illþýðisins, hér á landi / ekki bara Píratar og siðferðislegi öfugugginn Óttar Proppé og vinstra liðið, hafi fram hjá þér farið, Guðmundur Karl.

Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn: eru kappsfullir aðdáendur Salmanns Tamimi / Sverris Agnarssonar og hins Egypzka Ahmeds Taha Saddeeq, hins ógeðfellda erindreka Saúdí- Araba, hér á landi:: ekki síður, en vinstra liðið, eins og það leggur sig.

1/2 velgju fólk - eins og Jón Valur Jensson, á EKKERT erindi inn í ykkar raðir:: fólk, sem vill umbera Mið- Austurlanda hyski Múhameðs hér á landi, í einhverri ómeðvitaðri lognmollu.

Íslendingar VERÐA: að fara að bretta upp ermar (hafi þeir þá lágmarks burði til), og vísa ÖLLU því liði, sem hangir á óhugnanlegri kenningu Múhameðs úr landi, sem fyrir er / og hleypa þeim ekki frekar hingað, eigi ekki mjög illa, að fara, á komandi tímum !!!

Með beztu Kúómingtang kveðjum - sem oftar, af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.5.2017 kl. 12:35

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Stóryrtur ertu sem oftar, Óskar helgi.

Ekki er ég "einn fremstu fylgjenda aðdáendaklúbbs Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar," hef t.d. ekki sótt fundi þessa nýja félags hans.

Þegar þú fullyrðir: "Sigmundur og vinir hans eru kappsfullir velunnarar viðveru Mekku illþýðisins, hér á landi," þá væri fróðlegt að fá að vita um heimildir þínar fyrir þeirri undarlegu staðhæfingu. Ég veit t.d. ekki betur en Framsókn og flugvallarvinir hafi einir aðila í borgarstjórn beitt sér gegn því að borgin gæfi lóð undir mosku, og ég hélt nú, að Sigmundur væri í ágætu sambandi við Sveinbjörgu og Guðfinnu, borgarfulltrúa framboðsins.

Jón Valur Jensson, 29.5.2017 kl. 13:22

3 identicon

Komið þið sæl á ný - Þjóðfylkingarfólk !

Jón Valur !

O jú: og reyndu ekki að þræta fyrir hrifningu þína, á hinum sí- ljúgandi Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni (manni: sem lét verðtryggða höfuðstóla okur- og verðtryggðra lána éta upp ''leiðréttingar'' þvælu þeirra Bjarna, m.a.).

Kappsfullir velunnarrar Mekku illþýðisins - eru þau Sigmundur og félagar, ásamt hinum forkastanlegu Sjálfstæðismönnum, með FULLKOMNU AÐGERÐALEYSINU í:: að reka þetta lið af landi brott / eða, hvað sýnist þér þau vera að gera þar, Jón Valur ?

Flugvalla vinátta : Sigmundar / Sveinbjargar og Guðfinnu er nú ekki meiri en svo, að þau láta Holu- Hjálmar / Dag B. og Ess Björn vaða uppi hindrunarlaust, með niðurbrot Reykjavíkurflugvallar, í þágu Valsmanna: liðs,, sem ætti að vera búið að REKA úr Íþróttahreyfingunni fyrir löngu, sökum græðgi þess til Vatnsmýrarinnar þar syðra - og nágrennis, m.a.

Þarf ég nokkuð - að rekja fleirra fyrir þér Jón Valur, áður en þú grípur til næstu andsvara:: líkast til enn furðulegra, en hinna fyrri ?

Með sömu kveðjum - sem áður: samt /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.5.2017 kl. 13:36

5 identicon

.... hvergi nokkurrs staðar: hefi ég séð þig / eða heyrt, hvetja landsmenn til löngu tímabærrar vígvæðingar, gagnvart hand- ónýtu alþinginu, fremur en öðrum morknum kompum og afdrepum rotnandi stjórnsýslunnar í landinu, Jón Valur.

Þessa dagana t.d.: er ég að kljást við Lífeyrissjóða Mafíuna í landinu og þjófabæli hennar o.fl. / einu þingmennirnir, sem þar hafa sýnt brotabrot lífsmarka við minni málafylgju þar eru þau : Ásmundur Friðriksson / Björn Leví Gunnarsson og Þórunn Egilsdóttir.

Sennilega - þyrfti að setja allan Kjarnorku sprengju forða veraldar í gang, til þess að hin 60 rumskuðu: mögulega.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.5.2017 kl. 13:48

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Löngum þér tekst að masa og fjasa í málæði.

Málstaður þinn er þó stundum í ætt við brjálæði.

Væri ég hændur að heiðna goðinu Míþrasi,

héti ég á hann að snúa þér frá öllu síþrasi.

.

Jón Valur Jensson, 29.5.2017 kl. 17:22

7 identicon

Komið þið sæl - enn sem fyrr !

Þjóðfylkingarfólk: og aðrir lesendur og skrifarar !

Jón Valur Jensson - staðfestir á vissan hátt, ákveðna brjálsemi sem og veruleika firringu:: í ætt við Strútinn með höfuðið í sandinum, eins og hvað skýrast kemur fram hér að ofan hjá honum, nú síðast (kl. 17:22), með þessum heimskulegu og innantómu útúrsnúningum hans, því miður.

Ráðlegg ykkur Guðmundur Karl eindregið: að losa ykkur við þennan mann hið fyrsta, úr ykkar röðum / eigið þið að geta fengið rönd við reista, á komandi árum: yfirleitt.

Með sömu kveðjum - sem áður /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.5.2017 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband