Færsluflokkur: Húsnæðis-, leigjenda- og íbúðaskuldamál

Sundurlyndi vinstri manna birtist víða, meðal annars ...

í gagnrýni Oddnýjar G. Harðard. á Katrínu Jakobsd. á eldhúsdegi Alþingis (sjá tengil).

Guðm. Andri Thorsson segir: "af jarðarinnar hálfu byrja allir dagar fallega," en svo fari mennirnir að böðlast. Skot á Dag B. Egg­erts­son og félaga hans í borgar­stjórn, sem eru á veldi mikillar efnis­hyggju, ofur­skattheimtu og hömlu­lausra ofur­framkvæmda? Allt verður að víkja fyrir sókn þeirra í að leyfa bygg­ingar­aðilum að troða sér alls staðar niður með hótel­bygg­ingar, jafnvel á graf­reit­um gamalla Reykvík­inga, og íbúðablokkir spretta upp á gorkúlu­hraða án þess að vandað sé til verka og án traustra iðnaðar­manna, enda er margt slíkt húsnæði þegar farið að gefa sig.

Svo eru vinstri menn og "umhverfissinnar" almennt farnir að snúa á haus sinni stefnu gagnvart náttúrunni með auðsveipri hlýðni við ESB-miðstýringar-orkumálastefnu sem miðar að meiri gernýtingu vatnsfalla og orkulinda en áður hefur þekkzt, ekki í þágu íslenzks iðnaðar og heimilanna, heldur til að selja slíka orku úr landi, öðrum til gróða og uppbyggingar iðnaðar í öðrum löndum -- áþekkt því að hætta að verka fisk í vandaðar neytendaumbúðir, heldur senda hann í sínu hráasta formi úr landi. En þriðji orku­pakkinn er aðeins ein af fleiri birt­ingar­myndum hins vanhelga sambands "vinstri grænna" og hægri gróðaafla í landstjórninni.

Ögmundur Jónasson, fyrrv. ráðherra Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs, talar nú um þann flokk sem Hreyfinguna, framboð!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Oddný skaut fast á Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur B. auglýsir enn falsbeitur til að fá atkvæði, felur rækilega svik sín í húsnæðismálum

Aðal-kosningamál Dags getur hann aldrei efnt, hvorki Borgarlínu né stokk í Miklubraut; hann hefur ekki þá 70+21 milljarða sem þær framkvæmdir kosta að lágmarki; fjármálaráðherra hefur staðfest, að ekki getur ríkissjóður hlaupið þarna undir bagga með þessum áformum, sem ekkert samráð var haft um við ríkið. Dagur B. mundi bara halda áfram að stefna borginni niður á við, með flótta íbúa þaðan til annarra sveitarfélaga og með sinni algeru skortstefnu í húsnæðismálum miðlungs- og lágtekjufólks og fyrstu kaupenda, sem nú dúsa mun lengur í foreldrahúsum en áður var raunin.
 
Mæling á áhuga kjósenda birtist í dag í niðurstöðum skoðana­könnunar Útvarps Sögu. Þar fær Sjálfstæðis­flokkur 6,6 sinnum fleiri atkvæði en Samfylk­ingin! --- jafnvel Íslenska þjóð­fylkingin nýtur þar 3,4 sinnum meira trausts en flokkur Dags B., enda eru hlustendur þar mjög meðvitaðir um svik Dagsliðsins við venjulegt alþýðufólk, á meðan Dagur B. & Co. hafa dekrað við verktaka og fasteignafélög, leyft þeim að afskrifa geysilegar skuldir án þess að ganga að eignum þeirra, en innheimta t.d. sömu lóðagjöld af lágtekjumanni vegna 55 fm íbúðar eins og af vel stæðum manni með 150 fm íbúð!! Þá hækkuðu lóðagjöldin um rúml. 500% meira heldur en hækkun byggingarvísitölu var á sama tíma, og birtist í því OKUR-stefna Dags B. & Co., sem á sinn stóra þátt í verðbólgu á húsnæðismarkaði (sjá https://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2215850/ sem vísar í ýtarlega úttekt Viðskiptablaðsins sem heimild).
 
Íslenska þjóðfylkingin hækkar enn jafnt og þétt í skoðana­könnun Útvarps Sögu, úr 6,42% í fyrri könnun 12. apríl upp í 8,38% nú, kannski meðfram vegna frábærrar frammistöðu 3. manns okkar á listanum, Jens G. Jenssonar skipstjóra, í stór­fróð­legri innhringingu hans í þátt Péturs Gunnlaugssonar í morgun (samtalið ætti að heyrast endurtekið nú eftir kl. 19.30 í kvöld).
 
Hér er fjallað nánar um niðurstöðu skoðanakönnunar Útvarps Sögu.*
 
JVJ.
 
* https://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/2216674/

mbl.is Stjórnvöld leysi húsnæðisvandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttamannastefnu vinstri flokka hafnað í skoðanakönnun

Þótt vinstri flokkar* vilji bæta við a.m.k. 2.000 flótta­mönn­um til 2021, segir þjóðin ýmist NÓG KOMIÐ! (44,9%) eða OF MARGIR KOMNIR! (25,7%) skv. nýrri skoðana­könn­un MMR. Aukning er mæl­an­leg í þessari and­stöðu frá fyrri könnun fyrir rúmu ári: Þeim, sem telja of marga flótta­menn fá hæli, fjölg­ar um 2%, og þeim, sem telja of fáa flótta­menn fá hæli, fækk­ar um 2% (mbl.is).

Það er yfirlýst stefna Vinstri grænna að við Ís­lend­ingar "eigum að taka á móti umtals­vert fleiri flótta­mönn­um, að lág­marki 500 á ári. Jafna þarf að­stæð­ur hælis­leit­enda og svo­kall­aðra kvóta­flótta­manna," segja þeir líka í stefnuskrá sinni. Þetta þýðir að lágmarki 2.000 nýja flóttamenn árin 2017-2021, á sama tíma og Danir hafa stöðvað slíkan straum, komnir niður í núll-kvóta um óákveðinn tíma. Og þeim hælisleitendum, sem hingað eru komnir, m.a. múslimunum frá Balkanskaga, vilja VG veita sömu aðstæður og kvótaflóttamönnum. Píratar vilja enn fleiri flóttamenn hingað en VG.

"Samfylkingin vill byggja upp fjölmenningarsamfélag á Íslandi. Við viljum að Ísland beri meiri ábyrgð og taki á móti fleiri flóttamönnum og vandi betur móttöku á fólki sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi." (Úr stjórnmála­ályktun flokksins, samþykktri á landsfundi 2018.)

Ljóst er af öllu, að vinstri flokkarnir eru ekki í takti við vilja meirihluta landsmanna í þessu efni, heldur vilja allir miklu meiri straum flóttamanna og hælisleitenda hingað heldur en vilji almennings stendur til. Einungis 29,4% lands­manna telja of lít­inn fjölda flótta­manna fá hæl­isveit­ingu hér á landi. Fréttamiðillinn mbl.is slær þessu samt upp í fyrirsögn: "Um þriðjungur telur of fáa fá hæli". Er þó munurinn á 33,3% og 29,4% næstum fjögur prósent! Nákvæmara hefði verið að orða þetta þannig: "Innan við þrír af hverjum tíu telja of fáa fá hæli"!

En skyldu þessir vinstri menn nokkurn tímann læra? Það er góð lexía fyrir þá til næsta dags, að í þessu máli er Íslenska þjóðfylkingin miklu nær þjóðarvilja um flóttamannamál heldur en þeirra eigin úreltu vinstri flokkar!

Jón Valur Jensson tók saman. Hann skipar 4. sæti á framboðslista ÍÞ í Reykjavík í vor.


mbl.is Um þriðjungur telur of fáa fá hæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-flokknum "Viðreisn" hyglað á kostnað íslenzkra og alþýðu-flokka; atvinnurekendur með óviðeigandi slettirekuhátt með "leiðtogafundi"!

Dæmigert fyrir þá: Á "opinn fund" um húsnæði í Reykjavík bjóða þeir leið­tog­um SJÖ "helztu" flokka skv. hlut­dræg­um "könn­un­um" ESB-Frétta­blaðs­ins, en snið­ganga NÍU flokka, þ.m.t. ÍÞ og Flokk fólksins!

Meðal forystu­manna SA, SI og Sam­taka versl­un­ar og þjón­ustu, sem stóðu (ásamt Sam­tökum ferða­þjón­ust­unn­ar) að fundi þessum í Gamla bíó, hafa verið ýmsir helztu ESB-kjöltu­rakkar sem haslað hafa sér völl í "Viðreisn": Þorsteinn Víg­lunds­son, Benedikt Jóhannesson, Jón Steindór Valdimarsson, Þorgerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Margrét Kristmanns­dóttir, og upptaln­ingunni er ekki lokið! Fjögur af þessum fimm hafa verið kostuð inn á Alþingi með drjúgum fjáraustri til að hlaða undir framboð þeirra, og þrjú þeirra hafa komizt á ráðherrastól og stefna þangað enn!

Á svo alþýða landsins að lúta því, að þessir atvinnurekenda-forkólfar, sem eru jafn-hlynntir sviptingu landsréttinda (þ. á m. æðsta löggjafarvalds) í hend­urnar á býrókrötum í Brussel eins og ráðandi menn í norsku atvinnulífi, skuli fá að hafa umtalsverð áhrif á framgang kosningabaráttu fyrir borgar­stjórnar­kosningarnar?

"Já, en var þetta ekki bara frekar takmarkaður fundur þeirra sem sóttu hann?" geta menn spurt. En hann er útbásúnaður í fjölmiðlum, m.a. Rúv og Mbl.is, sem marktækur "leiðtogafundur" (og fulltrúi eins prósents Framsóknarflokks þó hafður með af gömlum vana), og látið sem umræðan þar sé sú, sem helzt sé takandi mark á, hjá þessum sjö flokkum! Þetta fá svo hlustendur og lesendur að melta -- að Samfylking þeirra, sem mesta sök bera á óðaverðbólgu á húsnæðismarkaði (eignar- og leigu­húsnæðis), fái þannig til dæmis fleiri og rýmri tækifæri til að auglýsa meint ágæti sitt, meðan nýrri flokkar og fjárvana fá ekki að komast að umræðuborðinu! -- jafnvel ekki þótt þeir standi alþýðu manna miklu nær og vilji umbætur í þágu bæði leigjenda og ungs fólks sem vonast eftir að geta keypt sína fyrstu íbúð, en er í gildru fátæktar og verðbólu sem orsakast fyrst og fremst af tiltækjum flokka eins og þessarar Samfylkingar!

Ekki fer sögum af því, að "leiðtogarnir" á þessari atvinnurekenda-ráðstefnu hafi gefið neinn gaum að húsnæðisvanda heimilislausra og lágtekjumanna í borginni, fólksins sem er að hrekjast úr sífellt dýrara leiguhúsnæði og er rekið burt úr félagslegu húsnæði borgarinnar, sem og húsnæði annarra, sem eiga að þjóna almenningi, jafnvel nú síðast með eins konar mafíu-aðferðum skv. frétt DV í gær! Eiga ekki stjórnmálamenn að gæta hér hagsmuna fátækra Íslendinga? En í staðinn er hælisleitendum hrúgað hér inn og borgin á fullu að útbúa meira húsnæði fyrir þá!

Jón Valur Jensson. Höf. er í 4. sæti á framboðslista Ísl. þjóðfylkingarinnar í Reykjavík.


mbl.is Ræddu uppbyggingarhraða í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjár ástæður óviðunandi hás íbúðaverðs reiknast á vinstri meirihlutann í borgarstjórn

1. Skort-stefna í lóðaúthlutun og okur borgar­inn­ar á verði lóða. Þær ætti að selja á kostn­aðar­verði (stefna ÍÞ).

2. "Þétt­ing byggðar" á dýrum svæðum, meðan ekki var út­hlut­að ann­ars stað­ar, kom í bak­ið á tekju­lágum.

3. Leyfis- og eftirlits­gjöld til húsbygginga hafa fjórfaldazt frá alda­mótunum, voru um 6% af íbúða­verði, en eru nú um 24%! Þetta hefur átt sinn stóra þátt í óða­verðbólgu á fasteigna­markaði í Reykjavík.

Vitaskuld átti að lækka fremur en hækka verð á lóðum í höfuðborginni. Það hefði laðað að kaupendur (verðandi útsvars­greiðendur) í stað þess að fæla marga frá og hrekja þá til nágranna­sveitar­félaga. Bæði húsbyggjendur og leigjendur, sem og fyrirtæki, hafa sótt fremur til Kópavogs og Hafnar­fjarðar eftir húsnæði og þau sveitarfélög notið þess í útsvörum og fasteigna­gjöldum, á meðan ásækni illa staddrar borgar­stjórnar í meiri gatnagerðar- og lóða­gjöld hefur stuðlað að erfiðri baráttu margra við að greiða sín gjöld og skuldir.

Vinur undirritaðs var að missa leiguíbúð sína og móður hans í Reykjavík og þurftu íbúð á jarðhæð, en leiguverð á slíkri íbúð reyndist hér "út úr öllu korti", óviðráðanlegt með öllu, en málið leystist þegar þeim bauðst slík íbúð á helmingi lægra verði í Hafnarfirði, og þar eru þau hæstánægð.

Íslenska þjóðfylkingin vill endurnýja verkamannabústaðakerfið, og nú eru aðrir flokkar farnir að taka þá stefnu upp eftir okkur! Nánar verður fjallað hér bráð­lega um húsnæðismálin, en þau eru meðal þeirra málaflokka, þar sem flestum er ljóst, að vinstri meirihlutinn hefur brugðizt almenningi illilega með stefnu sinni (sbr. ofangreinda upptaln­ingu) til viðbótar við hitt að hafa svikið loforð um 3.000 íbúðir á kjörtímabilinu sem nú er að enda. "Íbúðir á glærum" og endur­vinnsla kosningaloforða bæta engum fjölskyldum þau svik.

VIÐAUKI: 

Borgin selur lóðir dýrum dómum, hefur hækkað verð þeirra MARGFALDLEGA umfram hækkun byggingarvísitölu. Það er orðið dýrt að byggja, þegar menn þurfa, áður en fé er lagt í húsið, að leggja út 7-11 milljónir fyrir lóðina og gatnagerðargjöld! Á þessari vefslóð Viðskiptablaðsins, í grein árið 2015: http://www.si.is/media/mannvirkjagerd/frett-lodaverd.pdf , má m.a. lesa:
 
"Frá 2004 til 2015 hefur lóðaverð í hverfi á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 508% reiknað á verðlagi ársins 2015."
 
Ennfremur:
"Sama lóðarverð er fyrir 55 fermetra íbúð og 150 fermetra íbúð."
 
Þetta síðastnefnda gerist reyndar í fleiri sveitarfélögum; Kópavogur hefur þó lagfært nokkuð þetta óréttlæti, sem bitnar mest á þeim sem eiga smáar íbúðir, en Reykjavík undir stjórn "vinstri alþýðumannsins" Dags B. keyrir áfram þessa stefnu á kostnað fátækra, ekki sízt þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. ---Ennfremur segir í sömu grein 2015:
 
"Ef lóðarverð í þessu hverfi hefði fylgt byggingarvísitölu hefði það hækkað úr 470.000 krónum [árið 2004] í 1.007.000 krónur [árið 2015] eða um 114% en raunin er sú að í þessu hverfi hækkaði lóðarverð úr 470.000 krónum í 5.200.000 krónur eða um 1.006%. Á verðlagi ársins 2015 hefur lóðarverðið hækkað úr 855.000 krónum árið 2004 í 5.200.000 krónur á þessu ári [2015] eða um 508%." ---Og enn hefur verðið hækkað!
 
Í ÞESSU NÁKVÆMLEGA BIRTIST VERÐBÓLU-HVETJANDI OKURSTEFNA VINSTRI MEIRIHLUTANS Í REYKJAVÍK GAGNVART ÍBÚÐAKAUPENDUM.
 

Jón Valur Jensson.


mbl.is Íbúðirnar yfir greiðslugetu lágtekjuhópa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska þjóðfylk­ing­in kynnti í gær fram­boð sitt til borgarstjórnar og stefnumál: kjarabætur fyrir íbúðakaupendur - ókeypis í strætó fyrir skólafólk - engar moskur - mislæg gatnamót, ekki Borgarlínu!

Frambjóðendur Íslensku þjóðfylkingarinnar eftst tv. Hjördís... Efstu sæt­i skipa Guðm. Þor­leifs­son, form. ÍÞ, Hjör­dís Diljá Bech og Jens G. Jens­son. 

Við viljum umhverfisvænni borg, draga úr mengun, stórauka getu ungs fólks til að eignast íbúð á viðráðan­legu verði, ókeypis í strætó fyrir skólafólk og höfnum því, að borgin, sem vinstri menn hafa nánast komið á vonarvöl fjárhagslega, steypi sér út í rándýra framkvæmd (líkl. langt á 2. hundrað milljarða króna), þ.e. Borgarlínu. Þá viljum við draga til baka löglausa úthlutun lóðar und­ir mosku og all­ar leyf­is­veit­ing­ar vegna viðbygg­ing­ar á bæna­húsi mús­lima í Öskju­hlíð.

Flokk­ur­inn hafnar þétt­ingu byggðar á kostnað grænna svæða, vill hreinsun gatna reglu­lega til að draga úr svifryki og hlífa þar að auki gatnakerfinu með ókeypis ferðum skólanemenda í strætisvögnum. Allt þetta dregur úr mengun, en vinstri meiri­hlutinn í borgarstjórn hefur vanrækt þessi mál, svifryki hefði mátt skola burt með vatns­spúlun reglulega, en var ekki gert, og bílstjórar sitja fastir daglega í umferðar­hnútum og mengun vegna vöntunar mislægra gatna­móta, sem Dagur B. & Co. hafa neitað borgarbúum um, þótt ríkið sé skuld­bundið til að greiða 80% byggingar­kostnaðar við slík mislæg gatnamót á stofn­brautum. Við viljum þannig að um­ferð geti óhindrað farið eft­ir aðal­stofn­æðum borg­ar­inn­ar.

Reykjavík, sem eitt sinn var þekkt sem hrein borg, fögur borg og með tiltölu­lega hreinar strendur, er í vaxandi mæli ókræsilega menguð vegna vinnu­bragða hér, vanrækslu við gatna­kerfið og m.a. vegna feluleiks sjálfs borgar­stjórans dögum saman með skólp­meng­unina hér um árið. Í dag, 8. apríl, bættist svo við enn einn furðuþátturinn í skolpmál Reykjavíkur þegar fulltrúi Veitna hvatti Vesturbæinga á samfélagsmiðlum til að fara út að plokka upp klósettpappír o.fl. miður geðslegt við fjörur þar, en Vesturbæingur, sem ofbýður sóðaskapurinn, segir þetta sýna stórkostlegt dómgreindarleysi, að ætlast til að íbúar tíni sjálfir upp skólpúrgang í fjörunni við Ægisíðu, sjá nýja Rúv-frétt HÉR!

Meðal annarra áherslu­mála ÍÞ er að end­ur­vekja verka­manna­bú­staðakerfið og byggja hjúkr­un­ar­heim­ili og íbúðir fyr­ir aldraða, gera Reykja­vík fjöl­skyldu­vænni með opn­um svæðum, opna rólu­velli og leikskóla fyrir öllum börnum, en flytja stofn­an­ir borg­ar­inn­ar burt úr miðbæn­um.

Kjarabætur fyrir ungt fólk

Fyrir utan fríar strætóferðir fyrir börn, unglinga og framhalds­skólanema, sem létta munu á útgjöldum tekju­lágra fjölskyldna og auka möguleika barna þeirra til mennt­unar í almenna skóla­kerfinu, sem og til tónlistarnáms o.fl., þá vill Íslenska þjóðfylkingin sérstaklega beita sér fyrir lækkun opinberra gjalda vegna húsbygginga:

1) með því borgin ÚTHLUTI LÓÐUM Á KOSTNAÐAR­VERÐI, hætti að reyna að okra á þeim, með tilheyrandi verðbólgu­áhrifum! Dagur B. & fjölmennt föruneyti bera mestu ábyrgðina á okurverði íbúða í Reykjavík, sem og á lóðaskorti og kosninga­svikum varðandi þær mörgu íbúðir sem þau þóttust árið 2014 ætla að láta borgina reisa, en gerðu ekki; og enginn býr í glærum Dags þessa!

2) Með NIÐURFELLINGU óþarfra, býrókratíska EFTIRLITSGJALDA ÍBÚÐA­BYGGINGA.* Þau gjöld námu eftir aldamótin um 6% íbúðaverðs, en eru nú komin upp í 24% af íbúðarverði! --Bæði þessi umbótaatriði munu fljótt hafa áhrif til lækkunar íbúðaverðs. Sömuleiðis mun það draga úr ofþenslu á íbúða­markaði í Reykjavík, ef í anda gamla, haldgóða verka­manna­bústaða-kerfisins verða byggðar hér íbúðir fyrir tekjulága.

Þar fyrir utan hjálpar niðurfelling strætógjalds nemenda ungu fólki og fjölskyldum þeirra til að leggja þá meiri áherzlu á að leggja fé til hliðar til íbúðakaupa handa sínum ungum fjölskyldum. Allt þetta máttu heita tilvalin vinstrimál, en íslenzkir vinstri menn hafa í marga áratugi ekki þekkt sinn vitjunartíma og vinna t.d. nú fremur í þágu innflytjenda frá múslimskum löndum heldur en bágstaddra Íslendinga, sem jafnvel er vísað úr félagslegu húsnæði borgarinnar til að geta tekið inn sem flesta ólöglega hælis­leitendur!

Viðauki um mosku- og múslimamálin (JVJ skráði)

Sérstaða Íslensku þjóðfylkingarinnar á þessu sviði er alveg ljós. Við tökum ekki afstöðu gegn því, að trúflokkar fái að hafa sín bænahús, en andmælum því, að múslimar eigi neinn rétt á ókeypis lóð frá borginni (og það á frábærasta stað í bænum!), sem og að þeir fái að taka við áróðursfé frá Saudi-Aröbum, sem og að þeir fái að reisa hér MOSKU, því að moskur eru staður þar sem sjaríalögum er framfylgt og þau boðuð, og það er nákvæmlega það sem Salmann Tamimi gerir, forstöðumaður safnaðarins sem hyggst reisa mosku milli Miklubrautar og Suðurlandsbrautar.

Salmann hefur þrívegis verið spurður í íslenzkum fjölmiðlum út í afstöðu hans til handarhöggs þjófa og ávallt svarað, að hann væri því fylgjandi! Og þetta er forstöðumaður safnaðarins! Vitaskuld sjá Saudi-arabísku einræðisherrarnir og wahhabítarnir, að þetta er þeirra maður. 

En Salmann er ekki maður íslenzkra borgararéttinda. Og það er beinlínis and­stætt 63. gr. stjórnarskrárinnar að trúfélög, samþykkt af ríkinu, kenni neitt sem er andstætt almennu siðferði. Þess vegna á ekki að veita þeim söfnuði viður­kenningu né hjálpa til við innheimtu safnaðar­gjalda hans, meðan hann hefur slíkan forstöðumann.

Þar að auki ber að halda í skefjum innflutningi múslima hingað, í stað þess sem skammsýnir vinstri menn í borgarstjórn og landsmálum leggja áherzlu á: að veita einkum þeim sérstakan, ókeypis aðgang að íslenzku samfélagi og hlaða undir þá á allan hátt, oft á kostnað skjólstæðinga borgarinnar (og t.d. Hafnar­fjarðar) í félagslegu húsnæði.

Reynsla Dana í þessum efnum er orðin slík, að þeir eru nú að hverfa í þveröfuga átt við fyrri stefnu, og Norðmenn og Svíar eru sér vel meðvitaðir um nauðsyn stefnubreytingar í múslimamálum, eins og fleiri Evrópuþjóðir, og það er ekki aðeins vegna aukinnar hættu á hryðjuverkum, þegar ofbeldismenn hafa mjög stóran hóp trúbræðra til að leynast í, heldur einnig vegna þeirra margvíslegu skaðlegu áhrifa sem einkum hið pólitíska islam hefur á samfélög manna og vel er lýst í hinni frábæru bók mikils kvenréttinda­frömuðar, norsku vinstri konunnar Hege Storhaug: Þjóðaplágan Íslam (Rvík 2016: Tjáningarfrelsið).

Fagna ber því, að Íslenska þjóðfylkingin hikar ekki við að undirstrika sérstöðu sína í þessum múslimamálum sem öðrum. Aðrir flokkar geta svo reynt að dunda sér áfram við sína óábyrgu meðvirkni, þar til landsmenn hafa áttað sig á því, að þeir voru sviknir í tryggðum.

* Sbr. þessa skýringarmynd:

Mynd frá Óli Björn Kárason.

mbl.is Guðmundur Karl leiðir í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhjúpaðir ráðherrar

Tveir frambjóðenda hafa, hvor með sínum hætti, verið af­hjúp­að­ir í kosn­inga­bar­átt­unni, annar fyrir marg­faldar lyg­ar um vaxta- og verð­lags­mál, hinn fyr­ir svæsna and­stöðu við stefnu Þjóð­kirkj­unn­ar um lífs­vernd ófæddra þrátt fyr­ir að flokk­ur hans hafi iðu­lega látið sem krist­inn væri í áherzlum sínum!

Þorsteinn Víglundsson skrökvaði því dögum saman opinberlega, að vaxtamunur væri þvílíkur milli Íslands annars vegar og Danmerkur og Svíþjóðar hins vegar, að fjölskylda með 20 milljóna áhvílandi íbúðarlán væri að borga hér 160.000 krónum meira mánaðarlega í vexti á Íslandi en í hinum löndunum!! Einfaldur útreikningur sýndi risa-feil í þeirri fullyrðingu: 5% vextir plús bæði verðbætur og vextir af verðtryggðu 20 milljóna íslenzku Íbúðalánasjóðsláni nema samtals 89.900 krónum. (Frá því dragast svo líklegar vaxtabætur.) En t.d. í Svíþjóð ætti menn alls ekki kost á langtímaláni með 0% vöxtum, heldur um 1,7%, þó með ákvæði um endurskoðun ef verðbólga eykst, en ella á láni með föstum vöxtum upp á 2,7%.

Í morgun féll inn um bréfalúguna áróðurspési frá Þorsteini og félögum hans í "Viðreisn". Þar er hann skyndilega búinn að skera niður helminginn af 160.000 króna ofurlygi sinni! "Heimili með 20 milljóna króna fasteignalán gæti sparað allt að 80.000 kr. á mánuði með lægri vöxtum." En einnig það er lygi, eins og komið er fram hér ofar!

Svo má minnast þess, að meðan flokksmaður Þorsteins, Benedikt Jóhannesson, hefur stýrt  fjármála­ráðuneytinu, hefur hann ekkert gert til að fá Seðlabankann til að lækka stýrivexti og ekkert stuggað við okur­vaxta­sinnanum Má Guðmunds­syni. Hvort tökum við mark á orðum manna eða verkum? Samt leyfa þeir sér að segja á áróðurs­skiltum: "Lægri vextir eru stærsta velferðarmálið"! --Þar neyta þeir þess vitaskuld, að þeir eru búnir að hita upp fyrir tiltrú manna á þau orð með ofan­greindum ofur­lygum um vaxtamuninn hér og í Svíþjóð. En með þessu eru þeir raunar einnig að freista þess að ýta undir vantrú manna á krónuna og á lýðveldið og mýkja menn gagnvart Evrópu­sambandinu (þótt vextir séu ekki ákveðnir þar!), því að hinu þora þeir ekki: að boða beinlínis inntöku Íslands í það stórveldi, vitandi sem er, að í meira en átta ár samfleytt hefur verulegur meirihluti Íslendinga verið andvígur því í öllum skoðanakönnunum!

Í sama pésa skrökvar Þorsteinn svo þessu:

"Útgjöld vegna matarkaupa hjá fjögurra manna fjölskyldu eru um 80.000 kr. hærri á Íslandi en hjá nágrannaþjóðum okkar. Ástæðan er mun hærra verð á landbúnaðarvörum hérlendis."

Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslands, gæti nú aldeilis tekið Þorstein í karphúsið fyrir þessi fráleitu ummæli. Sjálfur bendir undirritaður á, að matarkarfan kostar ekki nema um 14% af meðalútgjöldum fjölskyldna, og þar er stór hluti fyrir innflutt matvæli. Þorsteinn kæmist seint upp í 80.000 króna verðmun mánaðarlega á land­búnaðar­vörum hér og í Skandinavíu!

Guðlaugur Þór Þórðarson, sem er efstur á D-lista í Rvík-norður, misnotar ríkisfé til að stuðla að fósturvígum í massavís í 3. heiminum, gefur skattfé okkar til alræmdra fóstur­deyðinga-samtaka, International Planned Parenthood, sem stofnuð voru af rasista, Margaret Sanger, sem skrifaðist á við þýzka nazista­foringja fyrir seinni heimsstyrjöld.

Donald Trump Bandaríkjaforseti tók sem betur fer 100 milljóna dollara árlegan alríkisstyrk af þessum mikilvirku fósturvígs­samtökum, en viðbragð Guðlaugs Þórs var að fordæma þá ákvörðun forsetans og að lofa milljóna­styrk úr ríkissjóði Íslands til sömu samtaka! Til þess hafði hann EKKERT UMBOÐ frá kjósendum sínum við kosningarnar 2016 og hefur ekki þorað að leita eftir slíku umboði fyrir þessar kosningar heldur!

En afstaða hans mótstríðir berlega opinberri stefnu íslenzku Þjóðkirkjunnar.

Á Kirkjuþingi íslenzku Þjóðkirkjunnar 1987 var þetta samþykkt einróma:

  • "Rétturinn til lífs er frumatriði allra mannréttinda. Þá kröfu verður að gera til ríkisvaldsins, að það verndi mannlegt líf og efli meðal almennings vitundina um mannhelgi. 
  • Löggjöf, sem í raun gerir hið ófædda líf réttlaust, brýtur gegn því grundvallarsjónarmiði kristindómsins, að sérhver einstaklingur eigi rétt til lífs, allt frá upphafi og þangað til dauðinn ber að dyrum með eðlilegum eða óviðráðan­legum hætti.
  • Kirkjuþing skírskotar til frumvarpa um breytingu á lögum nr. 25 frá 22. maí 1975 og lögum nr. 67/1971 með áorðnum breytingum, sem flutt hafa verið, og frumvarps sem boðað er.
  • Vill Kirkjuþing skora á Alþingi að breyta umræddum lögum í þá veru, að friðhelgi mannlegs lífs sé viðurkennd." 

Í skjölum sama Kirkjuþings árið 1987, þ.e. í greinargerð með ofangreindri samþykkt, segir sömuleiðis orðrétt:

  • "Kirkjuþing telur því brýna nauðsyn bera til, að lög kveði á um friðhelgi mannlegs lífs, tryggi rétt þess jafnt fyrir sem eftir fæðingu."

Og ekki nóg með það, heldur einnig þetta:

  • "Legvatnsrannsóknir og kannanir á ástandi fósturs má ekki framkvæma í öðru augnamiði en því að verða að liði, lækna, sé þess þörf og það mögulegt. Hitt má aldrei vaka fyrir að svipta barnið lífi, virðist eitthvað að." 

Prestastefna Íslands, sem lauk í Langholtskirkju 24. júní 1988, tók undir þessa ályktun kirkjuþings 1987 varðandi lög um fóstureyðingar. 

Guðlaugur Þór Þórðarson hefur hins vegar gengið gegn þessum samþykktum kirkjunnar bæði í orði og verki, talað eins og konur hefðu einhliða rétt til að láta eyða burði sínum og látið vera að mótmæla því, að þingmenn, fulltrúar alls Sjöflokksins á þingi, hafa talað loflega um þá stefnu, að lengja megi drápstímann á ófæddum börnum úr 12 upp í 22 vikur, þ.e. alla fyrstu fimm mánuði meðgöngu!!!

Hér má hins vegar minna á stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar um þessi mál:

Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýfram­komnum hugmyndum um róttækar breyt­ingar á fóstur­eyðinga­löggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstureyðingum.

Að lokum má benda kjósendum í Rvík-norður (kjördæmi Guðlaugs Þórs) á, að lífsverndarsinni, dr. Ólafur Ísleifsson, er efsti maður þar á lista Flokks fólksins. Hann er einnig, eins og sá flokkur, andvígur inntöku Íslands í Evrópusambandið, og ennfremur vilja þau (Inga Sæland og allur flokkur hennar), að hér verði tekin upp norska 48 tíma afgreiðslureglan á málum hælisleitenda. Sú hefur einmitt verið stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar allt frá fyrsta landsfundi hennar sumarið 2016.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn vanhæfasti ráðherrann er EKKI á útleið! - fer með freklegar blekkingar um kjör íbúðalána

Þorsteinn Víglundsson gerðist svo djarfur að skrökva* (með meintan reikn­ings­haus Bensa Jóh. við sama borð!) "að 4ra manna fjöl­skylda með 20 millj.kr. hús­næð­is­lán gæti sparað sér á bilinu 150-170 þús.kr. á mán­uði í útgjöld ef vaxta­kostnaður væri með sambæri­legum hætti og í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi." Þvílíkar ýkjur og öfugs­núningur staðreynda!

 

Undirritaður skuldar tæpl. 10,27 millj. Íbúðalána­sjóðs-lán með 5% vöxtum, verðtryggt (án verðbóta eru eftir­stöðvar nafnverðsins 8.448.221 kr.). Þar var mánaðarleg afborgun vaxta 35.265 kr. 1. okt. sl., afborgun verðbóta 3.306 kr. og verðbætur vegna vaxta 7.597 kr., samtals 46.268 kr. Miðað við það myndi sambærilegt 20 millj. kr. lán kosta 89.900 kr.í vexti og verðbætur á mánuði, en Þorsteinn fer langt í að tvöfalda þá tölu! Svo getur hann ekki lofað neinu fólki lánum með 0% vöxtum** og samt án verðtryggingar. Greinilega skrökvar hann langtum meira en tvöfalt maðurinn.

 

Ætli hann geri þetta daglega og í fleiri ræðum sínum og greinum? En allt á þetta að þjóna þeim áróðri "Viðreisnar", að það sé "krónan" sem kosti okkur þessar upplognu fjárhæðir, og sá málflutningur á svo að hjálpa til að narra þjóðina inn í valdfrekt Evrópu­sam­bandið þar sem við hefðum ekki lengur sjálfsákvörðunarrétt yfir okkar eigin málum, en lög ESB fengju allan forgang og yrðu æðst ráðandi !

Þetta er, svo að endað sé með röklegri ályktun, raunalegt dæmi um örvæntingarfullan lygaáróður Viðreisnar fyrir þessar kosningar.

* http://www.visir.is/g/2017171029730/bjoda-kjosendum-ad-reikna-ut-hvad-kronan-kostar-tha

** 0% vextir í sumum ESB-löndum koma ekki til af góðu: verið er að reyna að láta atvinnulífið hjarna við, ólíkt uppganginum sem verið hefur hér á landi á síðustu árum.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Þrír ráðherrar á útleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notið tækifærið til að hitta frambjóðandann

Jens G. Jensson, oddamaður Þjóð­fylk­ing­ar­innar í Reykjavík-suður, "kom eins og ferskur andblær inn í hefðbundna og stífa umræðu frambjóðenda" haustið 2016 að sögn Eiríks Jónssonar, "og benti réttilega á að stjórnmálamenn hefðu aldrei búið til störf og gætu það ekki nema tímabundið og þá með þvingunum. Þá kom hann Steingrími J. Sigfússyni, fyrrum fjármála­ráðherra, úr jafnvægi með að benda á að Steingrímur væri eini þingmaðurinn sem nú sæti á þingi sem stutt hefði frjálst framsal á veiði­rétt­indum, kvóta."

Jens verður til viðtals við kjósendur í dag frá kl 11 á kynningarstað flokksins á C-gangi í Kolaportinu, ásamt fleiri frambjóðendum.

Við erum til viðtals um kjara­mál og hús­næð­is-, leigjenda- og íbúða­skulda­mál (m.a um afnám verð­tryggingar) auk múslima- og innflytjenda­mála, þar sem afstaða flokksins er skýrari og skeleggari en allra annarra stjórnmálaflokka.


Stóð VG með þjóðinni í vinstri stjórninni? Ef ekki, stóð VG a.m.k. með verkalýðnum? NEI, HVORUGT!

Með Icesave, sem Steingr.J. og félag­ar böðl­uð­ust í fyr­ir Breta og ESB, og með svik­um hans & Co. með ESB-um­sókn voru fram­in landráð gegn þjóð­ar­hags­mun­um, "Skjald­borg­in" svikin og full þátt­taka VG í Árna Páls-lögum! Á svo að kjósa þenn­an svik­ara­flokk öðrum flokk­um frem­ur?! Kjósa menn út á andlits­lyft­ingu frá Steingrími til Katrínar? En hún tók fullan þátt í öllum þessum svik­um flokksins við íslenzka þjóð og almenning!, í Icesave-I, II og III og ESB-mál­inu, eins og Alþingis­tíðindi eru órækur vitnis­burður um (hvernig hún greiddi atkvæði), allar eru þær upplýsingar fyrirliggjandi á netinu!

Um 9.000 fjölskyldur voru sviptar heimilum sínum og að miklu leyti hraktar úr landi. Vinstri græn hreyfðu ekki legg né lið til varnar þeim! Þessi flokkur er heppinn að margir burtfluttir til Skandinavíu eru nú skráðir þar með lögheimili og geta ekki kosið í þessum kosningum! Einnig skáru þau Steingrímur J. niður laun eldri borgara. En þau Katrín & Co. þiggja hins vegar 43% launahækkun til sjálfra sín!

En eru Vinstri græn samt orðin ábyrg­ari "síðan þá"? Eru þau til dæmis með ábyrga inn­flytj­enda­stefnu? Ekki er of seint að skoða það! Opinber stefna VG:

"Við eigum að taka á móti umtals­vert fleiri flóttamönn­um, að lág­marki 500 á ári … Jafna þarf að­stæð­ur hælis­leit­enda og svo­kall­aðra kvóta­flótta­manna og tryggja full­nægj­andi fram­kvæmd nýrra út­lend­inga­laga með fjár­magni og mann­afla."

Nú verða hælisleitendur langt yfir 1000 á árinu; VG vill jafna rétt þeirra á við kvóta­flóttamenn og landsmenn sjálfa; það gæti leikandi merkt 1500 manna fjölgun með þessu móti árlega og ekki færri en 6.000 slíkir innflytjendur (að miklu leyti múslimskir) á því komandi kjörtímabili sem þau vilja fá að vera leiðandi í ríkisstjórn! 

Er þetta það sem þjóðin vill?!

Sjá einnig hér: Steingrímur J. Sigfússon sveikst aftan að þjóðinni með kosningaloforði sínu í Sjónvarpi kvöldið fyrir kjördag 2009 (myndband afhjúpar hann!)

Vinstri maður kvartar yfir Katrínu Jakobsdóttur sem forseta­frambjóðanda

Jón Valur Jensson.


mbl.is VG langstærsti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband