Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2016

Skoðanakannanir benda strax til breytinga frá fylgi flokka í kosningunum

Sú nýjasta var hjá Útvarpi Sögu 18.-21. nóv. Þar var fylgi D-lista 31,3%, B 17,8%, P 6,6% aðeins, VG 4,7%, Samfylkingar 2,7%, BF um 2%, Við­reisn­ar undir 2%. Mistök voru það að hafa ekki með smærri flokkana, því að "annað" kusu heil 32,9%. Víst er, að þar á Íslenska þjóðfylkingin eitthvað í þeim at­kvæðum, enda var hún á leið upp á við fram undir miðjan október, þegar hún var svikin í tryggðum af nokkrum tals­mönnum sínum, og meðal hlustenda Útvarps Sögu hefur hún notið vinsælda, fekk þar raunar lygileg 32,93% i könnun fyrir miðjan október.

Könnun MMR 15. nóv. er sýnd hér á eftir. Þar er augljóst, að dregið hefur úr fylgi Pírata, sá flokkur stefnir í sömu átt og Samfylkingin hefur gert. Íslenska þjóð­fylkingin er þar með o,6%, eftir hið mikla afhroð sem hún galt vegna árása fjór­menn­inga­hóps innan hennar á framboðin 13.-14. okt. En einmitt í MMR-könnun birtri 14. okt. var Þjóð­fylkingin með 2,8% stuðning, áhrif svikanna þá ekki komin í ljós, en gerðu það vitaskuld í kosn­ingunum, þar sem þau höfðu valdið því, að einungis var hægt að bera fram í tveimur kjördæmum (í NV-kjördæmi fengum við 0,5%, en 0,8% í Suður­kjördæmi). Heildar-hrun flokks­ins var í þessu ljósi skiljanlegt, en við erum að safna kröftum á ný og munum bjóða fram aftur og ekki síðar en í sveitar­stjórnar­kosn­ing­unum vorið 2018.161511 fylgismynd1JVJ.


Aðeins í áttina í stað glataðs sjómannaafsláttar

 Sjómenn vilja að fæðispeningar teljist ekki skattskyld... Vonir eru bundnar við að ákveðin skatt­fríð­indi fáist hjá rík­inu vegna fæðis­pen­inga sjó­manna, sem þeir greiða raunar sjálfir, og teng­ist þessi áherzla sjó­manna þeim kjara­samn­ingum sem hafa staðið yfir og hlotið víðast samþykki nema á Vest­fjörðum.

Gætu þessi skattfríðindi numið einum og hálfum milljarði króna.

Sjálfstæðis­flokkurinn stóð að því að afnema sjómanna­afsláttinn, er komið var fram á þessa öld, í tíð Geirs Haarde, en vel fer á því, að núverandi fjármála­ráðherra snúi þeirri öfugþróun við.

Flokksstjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar markaði þá stefnu fyrir kosningarnar, að taka beri upp 6% afslátt af tekjuskatti sjómanna. Um það mál segir hér í fyrri grein 11. okt. sl.:

Sumir hafa mælt gegn sjómanna-afslætti sem "mismunun", sem ekki sé þörf á fyrir stétt sem hafi tiltölulega góðar tekjur. Þar á móti kemur, að nánast engin umræða er um að hátekjumenn í öðrum stéttum eru bæði með ofurbónusa og önnur fríðindi ofan á laun sín og setjast ekki til vinnu eftir ráðningu sína fyrr en þeir hafa tryggt sér (oft) milljónatuga-starfslokasamninga!

En enginn þarf að öfunda sjómenn, þeir leggja mikið til samfélagsins án þess að nýta samfélags­þjónustu í sama mæli og aðrir, þeir eru langtímum saman fjarri fjölskyldum sínum, vinna gjarnan 12 tíma eða lengur á dag, eru með styttri starfsævi en aðrir og meiri slysatíðni. Áhætta þeirra og framlag til þjóðlífsins verðskuldar viðurkenningu.

Þar að auki er gróði af smáútgerð jákvæður kostur, ekki löstur. Hann smyr samfélög strand­byggðanna með aukinni veltu, útsvörum og öðrum gjöldum, og það er einungis jákvætt ef efnahagur sjómanna hjálpar þeim ekki aðeins til að borga hratt niður skuldir á dýrum bátum sínum og þeim tæknibúnaði, sem þar er þörf á, heldur líka til að geta með tím­anum hjálpað börnum sínum að kaupa sér sjálf bát til útgerðar. Þá verður mun líflegra að líta til athafnalífs við hafnir landsins: dæmið snýst við, og aflaheim­ildirnar hætta að streyma þaðan til vellríkra fákeppnis­útgerða, en haldast og aukast hjá fólkinu sjálfu, með veiði­aðferðum sem aldrei geta skemmt sjávarbotninn eða gengið á fiskistofna landsins.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Skattfríðindi metin á 1,5 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við núverandi ástand þyrlumála verður ekki unað til lengdar

Tvær af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar eru ekki í notkun,

Strax í fyrstu haustveðrum og við upphaf skammdegistímans er þetta ljóst. "Tvær af þrem­ur þyrl­um Land­helg­is­gæsl­unn­ar eru ekki í notk­un, önn­ur vegna bil­un­ar en hin er í reglu­bund­inni skoðun eft­ir 500 flug­tíma. Þriðja þyrl­an aðstoðaði við leit að rjúpna­skytt­un­um tveim­ur á sunn­an­verðu Snæ­fellsnesi í nótt," segir í frétt Mbl.is.

Er ekki augljóst, að landinu nægir ekki að hafa kannski einungis 1-2 þyrlur upp á að hlaupa? Hvað ef skip strandar eða ennþá alvarlegri vandi sækir að en að rjúpnaskyttur eða ferðamenn teppist á fjöllum? Hvað ef rútuslysið nýlega hefði átt sér stað á Norðausturlandi, ekki í nágrenni Reykjavíkur? Hvað ef náttúru­hamfarir steðja að, t.d. Kötlugos með miklum flóðum, eða fleiri en eitt stórslys á sama tíma, meðal annars með skipsstrandi eða þegar skip og áhafnir eru í bráðri hættu úti á reginhafi?

Þetta ófremdarástand í tækjakosti Landhelgisgæzlunnar staðfestir nákvæmlega það, sem Íslenska þjóðfylkingin leggur áherslu á í stefnuskrá sinni: 

ÍÞ vill stórefla löggæslu, landhelgis- og tollgæslu og auka þátttöku Íslands í öryggis- og varnarmálum með beinum hætti.

Meðal annars hefur verið á það bent á fundum flokksins, að Ísland eigi að sækja um réttmætan styrk úr mannvirkja- og öðrum sjóðum Norður-Atlants­hafs­bandalagsins til slíkra nauðsynjamála sem þyrlugæzlan verður að teljast, ekki aðeins okkar vegna, heldur sjófarenda og annarra sem leið eiga um land okkar og fiskveiðilögsöguna (meira en sjöfalt stærri en landið) og hið ennþá stærra flugstjórn­arsvæði sem okkar menn hafa eftirlit með.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Land­helg­is­gæsl­unni bilaði önn­ur þyrl­an á æf­ingu á föstu­dag­inn. Búið er að panta vara­hluti í hana, og gert er ráð fyr­ir að hún kom­ist í lag á morg­un. Óvíst er hversu lengi ástands­skoðunin mun taka á hinni þyrlunni en hún verður ef­laust frá í nokkra daga. (Mbl.is)

Þess er óskað, og þess er vænzt, að stjórnvöld taki við sér í þessu nauðsynja­máli með því að fjölga þyrlum hér. Eins og hinn flugreyndi Ómar Ragnarsson bendir á, er viðhald og bilanatíðni þyrlna um tvöföld á við flugvélar. Okkur vantar því sárlega fleiri þyrlur, og ef vel ætti að vera, væri æskilegt, að a.m.k. ein eða tvær þeirra væru jafnan á Akureyri eða Egilsstöðum.

Kippum þessum málum í lag, tökum ekki frekari áhættu með því að keyra hér allt í áhættu­samri lágmarks­þjónustu eins og á sviði lögreglu- og heilbrigðis­mála.

JVJ.


mbl.is Tvær þyrlanna ekki í notkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhroð Íslensku þjóðfylkingarinnar átti sér óeðlilegar ástæður!

Flokkurinn hlaut aðeins 0,5% atkvæða í NV-kjördæmi (90 atkvæði) og 0,8% í Suðurkjördæmi (213 atkvæði) sem er jafnvel minna en lág­marks­fjöldi meðmæl­enda þar (240+300). Augljóslega hrundu vonir margra um að flokkurinn gæti náð þingsæti í þessum tveimur kjördæmum, þegar ekki var boðið fram í hinum fjórum, með t.d. enga von um uppbótar- eða jöfnunarþingsæti.

Atkvæðin samanlögð voru ekki nema 303, þ.e. 0,2% af þeim 195.204 atkvæðum, sem greidd voru í kosningunum um allt land, en á kjörskrá voru 246.511 og kjörsókn því undir 80% og sú minnsta í 80 ár.

Þórðargleði andstæðinga Þjóðfylkingarinnar yfir úrslitunum fór ekki leynt!

En þessar munu vera helztu ástæður fyrir því, að flokkurinn var fjarri því að ná því 3,2% fylgi, sem hann hafði mælzt með í Gallupkönnun (hvað þá meira):

1) Aðalástæðan er vitaskuld ótrúlegt skemmdarverk, sem "fjórmenninga­klíka", sem sjálf nefndi sig svo, framdi á flokknum daginn áður en skila bar inn framboðum í síðasta lagi. Svo að gripið sé til orða eins fylgismanns þeirrar klíku á Facebók hans, í færslu um flokkinn:

"Hann var sprengdur í tætlur á sögulegum blaðamannafundi í Hörpu 14. október síðastliðinn þegar oddvitar framboðsins í Reykjavík norður og suður drógu framboð sitt til baka."

Þetta -- og meðfylgjandi aðrar skemmdaraðgerðir a.m.k. sumra í klíkunni -- var hin virka höfuðorsök fyrir því, að ekki tókst að bera fram fulla lista 70 frambjóðenda og fulla meðmælendalista (1.050 manns) í Reykjavíkur­kjör­dæm­unum tveimur og SV-kjördæmi. Uppreisnin hafði hins vegar engin áhrif á hina þrjá listana, þ.e.a.s. þá tvo sem tókst að bera fram (Norðvestur- og Suður­kjördæmi) og einn þar sem ekki náðist að safna nægum nöfnum á lista (NA-kjördæmi), en ástæðan í síðastnefnda tilvikinu kom til af mannfæð í röðum stuðningsmanna flokksins í því kjördæmi og að söfnun undirskrifta fór þar allt of seint af stað, einkum á Austurlandi.

Getgátur og kvittur hefur verið uppi um, að viss stjórnmálaflokkur hafi jafnvel mútað einum fjórmenninganna til að hafa forgöngu um eða til þátttöku í skemmdarverkinu, þessari afdrifaríku atlögu að flokknum, en við höfum ekkert fast í hendi um það mál og engar sannanir, og því verður nákvæmlega ekkert um það fullyrt hér.

2) Önnur ástæða er bersýnilega sú, að flokkur okkar er nýstofnaður (snemma á þessu ári) og hefur ekki náð að byggja sig upp að félagatölu, enda úr nánast engum efnum að spila til að boða til fjölmennra funda. Þó voru þeir, sem haldnir voru, mjög gagnlegir og bæði lög samtakanna og grunnstefna unnin með miklu samráði og samþykkt með vönduðum hætti. Samskiptanet náðist líka að byggja upp á opinni Facebók flokksins, þar sem 1.339 manns teljast meðlimir (en það merkir ekki, að þeir séu beinlínis flokksfélagar, heldur a.m.k. áhuga­samir eða forvitnir um flokkinn). Auk þess hafa stofnanir flokksins sín eigin samskiptanet. En dirfskan var mikil að sækja strax fram, með glænýjan flokk, til framboða í öllum kjördæmum landsins, í stað þess til dæmis að einbeita sér að þremur. Þar að auki er vitund almennings um eitt helzta baráttumál flokksins, gegn galopnu Útlendingalögunum, sem taka munu gildi 1. janúar nk., naumast orðin nægileg til að menn átti sig almennt á nauðsyninni á því að hnekkja þeim.

Dæmi um ný framboð flokka, sem ná strax nokkrum árangri, eru yfirleitt klofningsframboð úr öðrum flokkum eða sameining tveggja eða fleiri flokka. Það fyrrnefnda átti t.d. við um Bændaflokkinn 1934, Samtök frjálslyndra og vinstri manna 1971, Borgaraflokkinn árið 1987 og jafnvel "Viðreisn" á þessu ári, en hið síðarnefnda (sameining flokka) átti við um Sósíalistaflokkinn 1938, Alþýðubandalagið 1956 og Samfylkinguna árið 2000 (helzta undantekningin frá því að falla í aðra hvora þessa kategóríu er Þjóðvarnarflokkurinn á 6. ára­tugnum). Í hvoru tveggja tilviki er hægara um vik að hefja skyndilega kosningabaráttu á landsvísu heldur en fyrir glænýjan flokk sem gefizt hefur sáralítið tækifæri til undirbúnings. Menn geta þó bent á furðugóðan árangur Flokks fólksins í þessum kosningum -- að hafa náð fylgi sem í raun var ígildi tveggja þingsæta (án þess að fá þau, vegna ranglátra kosningalaga) -- en í 1. lagi náði sá flokkur að vera með framboð í öllum kjördæmum, ótruflaður af óvildaröflum, og var svo í 2. lagi með mjög svipað kjörfylgi (3,5%) og Íslenska þjóðfylkingin var á leið með að ná (3,2% í Gallupkönnun), og hefði sá síðarnefndi flokkur þannig getað farið fram úr Flokki fólksins, ef hið ótrúlega hermdarverk, áðurnefnt, gegn framboði okkar hefði ekki verið unnið af fólki sem treyst hafði verið til lykilhlutverka!

3) Áhrif algerrar vöntunar á flokkssjóðum til baráttunnar voru gríðarleg. Allur Sexflokkurinn á því löggjafarþingi, sem nú er lokið, naut samtals yfir eins milljarðs króna stuðnings úr ríkissjóði, þ.e.a.s. vösum okkar skattgreiðenda, til að kosta rekstur á flokksskrifstofum sínum, starfsmannahaldi, erindrekum um allt land, skipulagi á félaga- og netfangaskrám til að virkja flokksmenn með litlum fyrirvara o.s.frv., auk fjármögnunar auglýsinga í fjölmiðlum, áróðurs­funda og prentunar hágæða-kynningarpésa til að laða til sín kjósendur, að ógleymdu kynningar­myndbandinu sem flokkarnir klykktu út með stuttu fyrir kosningarnar, til viðbótar við sínar sjónvarpsauglýsingar! Í samanburði við allt þetta var Íslenska þjóðfylkingin eins og tötrum búin aukapersóna úti í horni, og jafnvel kynningarmyndband hennar var af vanefnum gert, tæknilega og að flestu leyti, enda litlu kostað til.

Að svokölluð "Viðreisn" naut ekki ríkisstyrks eins og Sexflokkurinn á þingi til að reka sínar flokksmiðstöðvar og sinn áróður, virðist ekki hafa komið að neinni sök á þeim bænum eða í þeirri höllinni, enda líklegt, að flokkurinn (sem er ekki miðju-, heldur ótvíræður hægriflokkur) hafi notið ómældra styrkja frá atvinnu­rekendasamtökum eins og SA og SI (rétt eins og þau samtök studdu ESB-Benedikt og hans óþjóðræknu félaga til að agitera fyrir því, að Íslendingar skyldu greiða Icesave-kröfur Breta, Hollendinga og ESB), ef ekki beinlínis frá Brussel, enda vinnur flokkurinn einbeittur í þágu ESB-innlimunarstefnunnar. Og ekki var annað að sjá en að "Viðreisn" hafi vaðið í peningum, með tvær meiri háttar ráðstefnur hennar í Hörpu í huga og dýra auglýsingaherferð sem m.a. birtist í líflegu, kjörþokka-ítrekandi auglýsinga-myndefni efst á Eyjunni (eyjan.is) og víðar, auk heilsíðuauglýsinga í blöðum. Vitaskuld gnæfði þetta fokríka fyrirtæki eins og risi yfir fjárvana Þjóðfylkinguna. En það er sannarlega harmsefni, ef hér var um leið verið að innleiða erlend áhrif á íslenzka kosningabaráttu!

Helgi Helgason, formaður Íslenku þjóðfylkingarinnar.En svo má að endingu taka hér undir með Helga Helgasyni, formanni ÍÞ, sem í viðtali á Vísir.is í fyrradag "segir kjósendur ekki hafa verið að hafna málflutningi Íslensku þjóðfylkingarinnar," sjá nánar þar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Færri atkvæði en meðmælendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplýsingafælni dugir ekki !

Fyrrv. félagi Ísl. þjóðfylkingarinnar, Ágúst Örn Gíslason, setti á Facebók sína harkalega gagnrýni á flokkinn 28. okt. Undirritaður frétti af þessu, las og undraðist og setti inn gagnrýna athugasemd. Þannig hófst mikil rökræða á þeirri facebókar-slóð, fram á nótt 31. okt., en að morgni þess dags ákvað svo síðu­hafinn að eyða út allri rökræðunni og öllum innleggjum, bæði undirritaðs og hans eigin vonlausu svörum! En ... honum sást yfir eitt! 

Eftir hádegi átti undirritaður þar eitt innlegg, svohljóðandi:

Upplýsingafælinn Ágúst síðuhafi eyddi út allri rökræðunni og öllum innleggjum mínum og sínum eigin vonlausu svörum! En ... honum sást yfir, að ég tók AFRIT! Vesalings Ágúst, ég vorkenni þér.

Hér á eftir má nú lesa afritið af umræðunni (sleppt er örfáum innleggjum fyrst, sem komu ÍÞ ekkert við, heldur öðrum framboðum). Þetta er einungis af þeim ástæðum endurbirt hér, að það er upplýsandi um atburðina í kringum upphlaup og uppreisn "fjórmenningaklíkunnar" í Þjóðfylkingunni 13. október, en Ágúst Örn tók afstöðu með henni í orðum sínum, ef ekki gerðum.

 

Ágúst Örn Gíslason

28. október kl. 20:10 ·[Upphafsfærsla hans öll.]

Það er gaman að vera í pólitík. Sérstaklega þegar maður er hættur.

Það stefndi allt í það um tíma að ég yrði í framboði í kosningunum til Alþingis á morgunn. Ég hafði tekið 5. sæti á lista Íslensku Þjóðfylkingarinar í Reykjavík norður. En þessi flokkur - sem varla stendur undir nafni að kallast flokkur, því þetta er í raun klíka örfárra manna - er búinn að vera. Hann var sprengdur í tætlur á sögulegum blaðamannafundi í Hörpu 14. október síðastliðinn þegar oddvitar framboðsins í Reykjavík norður og suður drógu framboð sitt til baka. Margir fleiri frambjóðendur drógu framboð sitt til baka, þar á meðal ég. Þetta var sannarlega glæsilegur pólitískur gjörningur.

Því miður tókst Íslensku Þjóðfylkingunni, með herkjum, að klambra saman listum í Norðvestur- og Suðurkjördæmum. Ef einhver sem les þetta er á kjörskrá í þessum kjördæmum og er í alvöru að hugsa um að kjósa þennan flokk, þá hvet ég ykkur eindrægið til að kjósa alls ekki flokkinn. Þetta eru svikahrappar sem stjórna flokknum. Það er enginn áhugi hjá þessu liði að búa til alvöru stjórnmálaflokk, þetta snýst um eitthvað allt annað. Það er mikilvægt að ÍÞ fái slíka útreið í kosningunum að forystumenn flokksins skilji að þeirra tími í pólitík sé algjörlega liðinn. Þannig er æskilegt að ÍÞ endi með fæst atkvæði allra framboða, fari helst undir Húmanistaflokkinn, sem býður fram aðeins í einu kjördæmi (Reykjavík suður).

En hvað á maður að kjósa á morgunn? Í raun koma bara þrír flokkar til greina: Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins.

Þrátt fyrir alla spillinguna í Sjálfstæðisflokknum er þetta góður valkostur, sérstaklega til að koma í veg fyrir vinstri stjórn.

Framsóknarflokkurinn kemur líka til greina. En sú glórulausa vitleysa hjá þessum flokki að hafna Sigmundi Davíð sem formanni fær mann til að efast um kjark og dómgreind framsóknarmanna. EF SDG væri ennþá formaður fengi Framsókn mitt atkvæði.

Niðurstaðan af þessum vangaveltum er sú að ég mun kjósa Flokk fólksins. Líklega er það besti kosturinn. Stefna flokksins er góð, með áherslu á að bæta hag öryrkja, aldraðra og fátækra. Best er þó að Magnús Þór Hafsteinsson leiðir listann í mínu kjördæmi, Reykjavík norður. Þar er á ferðinni öflugur og glæsilegur stjórnmálamaður.

[Athyglisvert að félagi okkar í ÍÞ, Örvar Harðarson, lækaði þetta!! (innskot JVJ).]

12

Örvar Harðarson, Gunnlaugur Ingvarsson og 10 í viðbót

Ummæli

Gunnar Fr. Rúnarsson Vel skrifað. Sammála þér með Sigmund Davíð. Þetta var bara aftaka i boði Soros. Flokkur heimilana nær 3% og það mun þýða nokkrar milljónir í kassann. Vona samt að það fari ekki allt i hund og kött vegna peninganna...

Svanhvít Brynja Tómasdóttir Ágúst minn við verðum að fara að safna meðmælum ég spái því að þú verðir næsti Borgarstjóri ....bæði flottur og frambærilegur og með sterka réttlætiskennd....... Fyrir þig skal ég vinna frítt !!!!

 2 · 28. október kl. 21:36

Guðlaug Elísabet Bóasdóttir Amen ðŸ˜‡

· 2 · 28. október kl. 22:07

Jón Valur Jensson  Hvernig datt þér í hug, Ágúst, að kalla forystu Íslensku þjóðfylkingarinnar "svikahrappa"? –––Rök, please!! –– Og hvernig telst það "glæsilegur pólitískur gjörningur" að "spreng[ja] í tætlur" flokkinn eða framboð hans "á sögulegum blaðamannafundi í Hörpu"? Hvað er svona glæsilegt við það?! Og þetta var og er engin "klíka örfárra manna", ég þekki það betur en þú eftir örstutta veru þína í flokknum. Hér ertu greinilega undir áhrifum af óhróðri fjórmenningaklíkunnar sem eyðilagði framboð flokksins í þremur fremur en tveimur kjördæmum. Og engin nauðung dró þau til þess verks, frumkvæðið var algerlega þeirra. En þú ritar um forystu ÍÞ: "Það er enginn áhugi hjá þessu liði að búa til alvöru stjórnmálaflokk, þetta snýst um eitthvað allt annað." ––Jæja, eins og hvað, og hver eru rökin? Svaraðu því. –––En þú komst vel fyrir, það litla sem ég sá til þín á fundum, en hefur algerlega brugðizt vonum mínum og miklum meirihluta hinnar 21 manns flokkstjórnar. –––Og greinilega hefurðu alls ekki gert neina skýra og skipulega grein fyrir ásökunum þínum á hendur forystu flokksins, nokkrar almennar blammeringar í stíl Gústafs duga ekki.

Ágúst Örn Gíslason Ég sé mig knúinn til að "like"a þessa ræðu þína,Jón Valur Jensson svo mjög er hún tilkomumikil. Þú ert öflugur í spuna í þínum. Ertu á launum frá flokknum við að skrifa þetta? Er búið að skipa þig sérlegan áróðurs- og bloggmeistara ÍÞ?

Ágúst Örn Gíslason Hér eru svo margar spurningar sem þú setur fram að ég þarf smá tíma til að svara þeim.

Ágúst Örn Gíslason Margt að þessu höfum við rætt um áður á hinum og þessum síður og þráðum á facebook.

Jón Valur Jensson Ég hef aldrei þegið eina einustu krónu fyrir neitt fyrir flokkinn, bara lagt út fé og gefið mína vinnu. Ertu í alvöru að eigna mér ágóðahvöt?! ––Orð mín verða ekki "spuni" þótt þú með rakalausum hætti kallir þau það. Hefurðu engin rök? Hver mataði þig á "upplýsingum"?

Ágúst Örn Gíslason Í raun og veru setur þú mig í svolítið erfiða stöðu. Vegna þess að ég hef alltaf kunnað að meta þig. Sérstaklega fyrir það hvað þú ert fróður og klár, að mínu mati. Þykir mér þess vegna leiðinlegt að þurfa að vera rífast við þig, hvort sem hér eða annars staðar. En skrif þín upp á síðkastið og aðdróttanir gagnvart þeim Gústaf, Gunnlaugi, Ingu og Svanhvíti eru fyrir löngu komnar út yfir allt velsæmi.

Ágúst Örn Gíslason Framboð Íslensku Þjóðfylkingar fyrir þessar kosningar og hvernig kosningabaráttunni var hagað var slíkt gígantískt klúður að ég efast um að annað eins rugl hafi nokkurn tímann sést í stjórnmálabaráttu á Íslandi. Hræðilegt, skelfilegt og átakanlegt í alla staði. Það veist þú auðvitað jafn vel og ég.

Ágúst Örn Gíslason Hvenær fáum við ferðasögu þína af leiðangrinum mikla um NA - kjördæmi til að bjarga framboði ÍÞ þar?

Ágúst Örn Gíslason En mér sýnist á öllu að forystumenn ÍÞ, Helgi formaður, bloggmeister Jón Valur og fleiri kappar séu staðráðnir í að halda áfram sinni baráttu. Kannski þeim takist að bjóða fram í þremur kjördæmum í næstu Alþingiskosningum.

Jón Valur Jensson Ég hef einfaldlega sagt satt og rétt frá atburðum í kringum þessa ódrengilegu skemmdarverkaaðgerð Ingu, Svanhvítar, Gústafs og Gunnlaugs. Eða hverju telurðu mig skrökva?

Jón Valur Jensson Þú ert, Ágúst, engan veginn fær um að vera með yfirlýsingar um klúður í þessu sambandi, hafandi verið þar skamman tíma og sjálfur réttlætandi þessa árás þriggja ÍÞ-manna og eins í Sjálfstæðisflokknum (GN) á framboð flokksins. Hver talaði þig til, svo að þú drægir þitt framboð til baka?

Ágúst Örn Gíslason Ég hef eyru og augu.

Jón Valur Jensson Og hvað kallarðu það annað en klúður hjá Ingu að hafa ca. 11 dögum eftir samþykkt kjördæmaráðs á 2 x 10 efstu mönnum Reykjavíkur-listanna upplýst mig um, að hún væri búinn að finna EINN í viðbót á listann – enda bæri hún ekki ábyrgðina frekar en hinir í kjördæmaráðinu á því að fá fólk á listann! Vitaskuld bárum við öll ábyrgð á því, en hún sem form. ráðsins bar vitaskuld meiri ábyrgð á því en aðrir að hafa yfirlit um og eftirlit með því, hvernig gengi að fá frambjóðendur á listann; þarna voru komnir aðeins 20, en 24 eftir og allt of hægur gangur hjá henni að komast ekki yfir nema einn á svo mörgum dögum. Ekki var hún hress með að ég benti henni á þennan hægagang, og hún réttlætti sig með því að benda á aðra, en vissulega tók hún svo af alvöru til við verkið eins og við fleiri vorum að gera, svo að það fór að ganga hratt, en öllu verra var hitt, að hún fór svo að sabotera framboðið og hélt m.a. eftir hjá sér tveimur af frambjóðendum sem ég hafði útvegað flokknum undirskriftir frá! Sjá um það bloggsíðu flokksins. –––Ég spurði ekki, hvort þú hefðir eyru og augu, heldur HVER talaði þig til.

Ágúst Örn Gíslason Ég sendi formanni flokksins Helga Helgasyni facebook skilaboð um hádegisbil þriðjudaginn 11. október. Þar sagði ég einfaldlega að ef hróflað yrði við fólkinu fyrir framan mig á listanum (þ.e. 1. Gústaf, 2. Ingu, 3. Svanhvíti, eða 4. Marteini) drægi ég líka framboð mitt til baka. Vildi bara láta formanninn vita hvar ég stæði í þessu máli. Það var löngu orðið ljóst að hugmyndir um að hrekja Gústaf og Ingu burt af listanum voru upp á borði.

Ágúst Örn Gíslason Inga var að standa sig vel í mjög erfiðri stöðu. Í hvaða alvöru stjórnmálaflokki (ÍÞ var og er auðvitað ekki alvöru stjórnmálaflokkur) er það sett á hendur einnar manns að stilla upp lista? Er þetta ekki flokkur? Erfiðast var auðvitað fyrir Ingu að hafa framkvæmdastjórn (þ.e. formann og ritara) sem veittu henni nákvæmlega 0% stuðning, heldur þvert á móti sýndu henni mikinn fjandskap og reyndu að spilla fyrir. Þannig var nú ástandið á kærleiksheimili Íslensku Þjóðfylkingarinnar.

Jón Valur Jensson Þú ferð rangt með þetta, Ágúst, og sjálf var það Inga sem mestum tíma eyddi í niðurrifstal og raunar paranoju-tal um formanninn : var farin að gefa sér það fullum fetum, að hann ætlaði sér að fremja fjárdrátt á því fé, sem koma mundi eftir kosningarnar í hlut flokksins!! Maðurinn er alsaklaus af öllu slíku, af góðu fólki kominn og ekki minnsti fótur fyrir þessum fáránlega grófu ásökunum, sem hún þó dreifði út (m.a. láku þau af hennar vörum inn í eyru Árna Thoroddsen, sem var einn frambjóðenda), vitaskuld án minnstu raka, hvað þá sannana. Það gefst ekki vel að hlusta um of á þá eða þær, sem sökkva sér í tilfinningasamar ímyndanir. ––Og það er engin sönnun til fyrir því, að formaðurinn hafi ætlað sér að ryðja efsta fólki af listanum, enda (1) hefur hann ekkert vald til þess, (2) hann þyrfti meirihluta löglegs flokksstjórnarfundar til þess, og enginn slíkur var boðaður, (3) ég og aðrir þar hefðum að sjálfsögðu greitt atkvæði gegn því að henda út okkar efsta fólki, enda (4) hefði það ekki styrkt flokkinn og raðir frambjóðenda, og (5) slíkt hefði vitaskuld verið lagt flokknum til lasts í fjölmiðlum og talað um klofning o.s.frv. og framboðin verið rýrð í áliti almennings og þar með einnig tapað fylgi. En þetta var partur af paranoiunni í hópi samsærisfólksins sem boðaði til þessa dæmalausa blaðamannafundar í Hörpu, þegar allir áttu þvert á móti að vera að sameinast á skrifstofu flokksins við það leggja saman listana og hafa þá klára fyrir hádegi 14. okt., til að skila inn framboðunum í Rvík og í Kraganum.

Ágúst Örn Gíslason Hér kemur þú inn á margt. Og ferð líka rangt með margt. Engin flokksstjórnarfundur boðaður? Þetta er rangt hjá þér. Það var boðaður flokksstjórnarfundur fimmtudagskvöldið 13. október. Raunar átti sá fundur upphaflega að vera 12. október - en var frestaτοῦτοSjá meira  [Því miður láðist mér, JVJ, að taka afrit af frh. þessa innleggs hans og hafði raunar ekki lesið það (viðbót var það inni í aukaþræði þar).]

Ágúst Örn Gíslason Annar var þín sárt saknað þessa daga áður en framboðsfrestur rann út. Þú varst vissulega einn af öflugustu mönnum flokksins og slæmt að missa þig norður á land á svona mikilvægum tíma.

Ágúst Örn Gíslason En verst finnst mér samt, Jón Valur Jensson, að hafi ekki getað slegist með för norður á land. Að fá að vera með þér og Snorra Óskarssyni í Betel og riðið um héruð Norðurlands í framboði - trúboði? - fyrir Íslensku Þjóðfylkingu hefði vissulega verið minn hápunktur í pólitískum ferli.

Ágúst Örn Gíslason Það er eitt atriði, Jón Valur Jensson, sem hef reyndar nefnd við þig áður, og geri aftur hér: Var ekki hægt að koma formanni flokksins, Helga Helgasyni, í skilningum um það, að með því að grafa undan Gústaf Níelssyni og Ingi G. Halldórsdóttir og hugsanlega að flæma þau af listanum, myndi framboðslisti ÍÞ í Reykjavík norður hrynja eins og spilaborg? Þó Helgi Helgason sjálfur, hafi ekki haft hugmynd um hvað væri að gerast í þeim flokki sem svo átti að heita að hann veitt forystu, gat ekki gefið sér að sama gilti um aðra frambjóðendur flokksins. Inga G Halldorsdottir var hjartað í framboðslista flokksins í RN og margir sem tóku þar sæti gerðu það í gegnum tengsl við Ingu. Með því að grafa undan, var um leið verið að grafa undan framboðslistanum í heild.

Jón Valur Jensson Eg hef þegar svarað þessu fyrstnefnda frá þér hér í aukatenglunum ofar. Það var ekkert verið að grafa undan þeim, ekki í mín eyru, gerði HH það í þín eyru? Og Inga var ekkert "hjartað í kjördæmaráðinu" og eyddi reyndar fundartímum í mas um óviðkomandi hluti eins og aukalandsfund og tal um gjaldkeraembætti í flokknum, sem var hvort tveggja gersamlega ótímabært í þessari annasömu lokaviku fyrir skil framboða. Hún hélt ekki á þessum málum af neinni skynsemd og virtist gera í því að búa sér til ágreiningsefni við formanninn.

Ágúst Örn Gíslason Merkilegt er líka að í kosningunum árið 2013 gátu Hægri Grænir boðið fram í öllum kjördæmum og ekki man ég eftir neinni umræðu um að það hafi verið vesen þá. Nú var Íslenska Þjóðfylkingin mun stærri og fjölmennari hópur. Af hverju var þetta svona mikið rugl núna? Hvernig fóru þeir að þessu árið 2013? Hvar voru mennirnir, sérfræðingarnir, sem komu þessu á koppinn þá?

Jón Valur Jensson Mig varðar ekkert um Hægri græna, og hvorki þú né ég né aðrir lesendur hér þekkja mál þeirra "árið 2013"! ––Ekki fleiri smjörklípur, takk!

Ágúst Örn Gíslason Smjörklípur! Íslenska Þjóðfylkingin varð til fyrr á þessu ári þegar flokkurinn Hægri Grænir var lagður niður og ÍÞ stofnað á hans grunni. Nokkrir helstu frammámenn í Hægri Grænum eru áhrifamenn í ÍÞ, þar með talið formaðurinn.

Ágúst Örn Gíslason Það er ótrúlegt að ekki skyldi takast að bjarga flokknum þessa daga áður en framboðsfrestur rann út. Þá er ég sérstaklega að tala um dagana frá sunnudegi 9. október til miðvikudags 12. október. Hvað gekk á þá daga veit ég ekki nákvæmlega. Líklega geta bara Gústaf, Gunnlaugur og Helgi svarað því.

Jón Valur Jensson Þeir, sem klúðruðu fram­boð­unum í Reykjavíkur-kjör­dæm­unum og trúlega í SV-kjörd. voru þínir bandamenn, þau fjögur sem í Vísi.is kölluðu sig fjórmenninga­klíkuna, og þeir sem lögðu eyru við rógburði um formanninn. Bara sorglegt dæmi um ófélagslega niðurrifs­starfsemi sem náði hámarki í undanskoti framboðsyfirlýsinga og meðmælendalista með framboð­unum. T.d. má spyrja sjálfan þig, sem vildir endilega fá meðmæl­endalista frá Hildi Hrönn (einum okkar duglegasta safnara undirskrifta) til að þú gætir fengið fleiri nöfn á hann morguninn eftir hjá vinnufélögum þínum –– hvað gerðirðu við þann lista? Ekki fekk hún hann í hendur aftur og hefur ekki frétt af honum síðan. Tókstu þátt í því með Ingu og Svanhvíti að gera lista upptæka?

Ágúst Örn Gíslason Þú ert í ruglinu hér. Jón Valur Jensson

Jón Valur Jensson Nei. Hvað gerðirðu við listann?

Ágúst Örn Gíslason Vildi ég endilega fá meðmælalista frá Hildi Hrönn!?! Ég tók listann og kom honum til skila til formanns Kjördæmisráðs flokksins í Reykjavík.

Jón Valur Jensson Hann fór sem sagt til Ingu –– en þaðan EKKI þangað, sem hann átti að fara, um hendur flokksins til yfirkjörstjórnar í Ráðhúsi Rvíkur f.h. 14. okt.

Ágúst Örn Gíslason Þú ert ótrúlegur! Hvernig getur þú haldið því fram að þeir herramenn Gústaf og Gunnlaugur hafi "eyðilagt" framboðið í SV kjördæmi?

Ágúst Örn Gíslason Af hverju var ekki boðinn fram listi ÍÞ í Suðvestur kjördæmi?

Jón Valur Jensson Og náðirðu engum vinnufélaga á listann? Varstu kannski að biðja Hildi um listann til þess eins að koma honum í hendur Ingu?!

Ágúst Örn Gíslason Ég bað ekki um neina lista.

Ágúst Örn Gíslason Hvað vakir fyrir þér, Jón Valur Jensson?

Jón Valur Jensson Reyndu ekki að tala um annað mál (SV-kjörd.), það heitir smjörklípa.

Ágúst Örn Gíslason Bíddu. Ert þú stjórnandi á þessarri síðu minni?

Jón Valur Jensson Nei, ég er bara að anza þér. ––Mundu svo orð Árna Thoroddsen um þá sem vilja gerast flokksbanar og það með þessari aðferð Gústafs, Gunnlaugs, Ingu, Svanhvítar & Co.: "Þeir gera sig algerlega óhæfa til að fara í nokkur framboð í framtíðinni. Það treystir þeim enginn til [þess]".

Ágúst Örn Gíslason Ég veit ekki hvaða tilgangi það þjónar að vera að þrasa hér við þig.

Ágúst Örn Gíslason Hvað mig varðar og þetta framboð, þá var ég aldrei að sækjast eftir neinum vegtyllum eða sæti framarlega á lista. Ég ætlaði mér bara vera einhversstaðar aftarlega, frá 10. - 20. sæti. Gaf "kost" á mér þar og sagði Gunnlaugi og fleirum að þeim væri frjálst að nota nafnið mitt ef þau vildu.

Ágúst Örn Gíslason Það sem mér sárnar mest í þessu er sú framkoma sem Gústaf, Gunnlaugi, Ingu og Svanhvít er sýnd. Mín reynsla af þeim er sú að þetta er heiðarlegt fólk sem var að vinna að framboðinu af heiðarleika og einurð. Það var hins vegar heimska og þrjóska formannins sem felldi framboðið í Reykjavík og flokkinn í leiðinni.

Ágúst Örn Gíslason Jæja. Við getum masað um þetta endalaust. Kveð að sinni. Góðar stundir.

Jón Valur Jensson Við söfnun okkar margra á lista í Rvík komu einnig iðulega nöfn á lista í SV-kjörd. (Kópav., Garðabæ, Hfj., Mosó etc.), og þær Inga og Svanhvít hafa örugglega verið með slíka lista eins og ég (sem fór með mína á skrifstofu ÍÞ) og sennilega verið búnar að gefa upp fjölda nafnanna á þeim til ritara/flokksstjórnar, og talið var að þar væru komin nógu mörg nöfn, en vitaskuld voru þau ekki komin nógu mörg til flokksins, ef þær stöllur notuðu þá lista til að vera með hótanir við Helga og að endingu að gera alvöru úr þeim hótunum með því að misfara með listana og láta þá ekki skila sér til yfirkjörstjórnar SV-kjördæmis í Hafnarfirði. –––Tilgangur? Ég byrjaði upphaflega hér á því að inna eftir rökum fyrir því, að þú kallaðir flokksforystuna "svikahrappa" (og hef ekki enn fengið rökin), og svo bættust við fleiri atriði frá þér sem svara þurfti. Er ekki gott að gera grein fyrir þínu máli, ef þú ert með hreinan skjöld af öllu í ætt við samsæri gegn flokknum og framboðum hans? ––En hartnær 2000 meðmælendur og upp undir 100 frambjóðendur gætu verið ósáttir við, hvernig þið skilduð við flokkinn, klofinn í herðar niður og stungið af með gögn hans, ekki satt?

Jón Valur Jensson Skrýtið að tala um, að Gústaf hafi unnið "að framboðinu af heiðarleika og einurð," hann sem 1) stóð ekki við að skrifa greinar úti á Spáni í blöð á Íslandi í þágu framboðsins, 2) stóð ekki við orð sín um að útvega flokknum styrki frá peningamönnum sem hann þekkti, 3) vann ekkert að því að útvega frambjóðendum flokksins meðmælenda, sbr. orð hans sjálfs þar um í Harmageddon-viðtali sem þú ert sjálfur með tengil hér inná á Facebókarsíðu þinni, og 4) hann gekk aldrei úr Sjálfstæðisflokknum, segir hann í sama viðtali, þótt komizt hafi í 1. sæti ÍÞ í Rvík–N.! ––Og enginn í stjórn flokksins hefur séð, að Gústaf hafi formlega gengið í Þjóðfylkinguna. Sér er nú hver eljan og einurðin hjá mínum gamla kunningja!

Jón Valur Jensson Ég bið hann og þetta nefnda fólk bara vel að lifa og helzt betur með hverjum nýjum degi; en svona aðfarir gegn hugsjónum fólks og félagsskap einlægra, græskulausra manna að því að bera þær hugsjónir fyrir land og þjóð fram til sigurs, slíkar aðfarir ganga náttúrlega ekki upp í eðlilegu, mannlegu samfélagi, og vertu ekki hissa, að einhver skuli voga sér að nefna það hér við þig. Lifðu svo heill og í lukku og ekki í krukku Fjórflokksins og heldur ekki Sjöflokksins sem hampar sínum uppáhalds Útlendingalögum!

 

                  (Þetta er það síðasta.) 

 

Jón Valur Jensson tíndi saman.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband