22 mannslífum hefði mátt bjarga og yfir 100 manns frá meiðslum!

Vitaskuld kom í ljós að fjöldamorðinginn var islamisti, hét Salman Abedi, 22 ára, fæddur í Manchester, sonur líbýskra innflytjenda. Í stað þess að setja hann í stranga gæzlu gaufaði brezka lögreglan við að fylgjast of slælega með honum! Árangurinn er 22 drepnir og yfir 100 særðir og þúsundir manna í harmi og losti; en stuðningsmenn ISIS ráða vart við sig af kæti vegna dauða ungmennanna:  http://www.dv.is/frettir/2017/5/23/studningsmenn-isis-fagna-dauda-ungmennanna-islamska-rikid-lysir-yfir-abyrgd-mordunum/  

Fjölskylda mannleysu þessarar er reyndar nýsnúin aft­ur til Líb­ýu.

Það er svo sannarlega ekkert að því að setja ströng lög um að bæði yfirlýstir stuðnings­menn ISIS og al-Qaída, al-Shahab og annarra þvílíkra morðsamtaka skuli látnir sæta yfir­heyrslum, gæzlu­varðhaldi og fangelsisvist eftir atvikum og hafðir með eftirlitsband um ökklann. Hugmyndafræði þeirra er þjóð­hættuleg, og á skal að ósi stemma.

Þá ber að endurskoða frá grunni innflytjendastefnu Evrópuríkja, til samræmis við þann eindregna meiri­hluta­vilja Evrópuþjóða, að stöðva beri straum múslima inn í Evrópu!

Þótt Saudi-Arabía sé aðeins eitt múslimaríki af mörgum, þá er hitt staðreynd, að þaðan kemur gífurlegt styrktarfé til að reisa og reka moskur á Vestur­lönd­um, jafnvel hér á Íslandi, og frá uppruna­landinu eru sendir ímamar til að fram­fylgja strangri túlkun wahhabíta (salafista) á Kóraninum. Þar grassera víða fyrirlitningar-predikanir klerkanna gegn okkur Vesturlanda­mönnum, og jafnvel í Danmörku hafa menn uppgötvað hvernig moskurnar eru misnotaðar til haturs­boðskapar gegn kristnum og Gyðingum. Allt slíkt ber að stöðva án tafar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Árásarmaðurinn var 22 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sennilega ættum við hér vestra að fylgja fordæmi Sádí-Araba í flóttamannamálum því þeim er málið skyldara og þekkja best sitt fólk.

Kolbrún Hilmars, 23.5.2017 kl. 18:03

2 identicon

Kolbrún Hilmars

Rétt hjá þér. Ekkin taka nein af þeim.

Merry (IP-tala skráð) 24.5.2017 kl. 12:43

3 identicon

Þetta er ekki gaman. Nú í Bretlandi eru menn þreyttir á stjórnmálamönnum og fjölmiðlar munu ekki nefna það fyrir það sem það er - múslima hryðjuverk. Mant fólk er nú að segja hvað frönsk forsætisráðherra sagði áður - við erum í stríði við múslima öfgamenn.  Núna - þeir eru að ráðast á og drepa börn. Það verður að vera stöðvað til góðs núna. Fólk verður að vera sterk og gera það sem þeir þurfa að gera.

Merry (IP-tala skráð) 24.5.2017 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband