Færsluflokkur: Bretland

ESB herðir að tjáningarfrelsi um fjöldainnflutning fólks!

Á næsta ári, sem senn hefst, mega ESB-íbúar búast við "fang­els­is­refs­ingu eða nauð­ung­ar­vist­un á geð­veikra­hæli" vegna gagn­rýni á fjölda­inn­flutn­ing flótta­fólks! Í alvöru, þetta mun "veru­lega tak­marka mál­frelsi innan ESB," en það mun víst vera að skapi frú Merkel ! Nánar um uppljóstrun um þetta mál, úr innsta hring Brussel-manna, í þessari frétt.

Gott hjá fréttaritara Útvarps Sögu að minna á 19. grein mann­rétt­inda­yfirlýsingar SÞ, þar sem stendur:
 
"Allir skulu frjálsir skoðana sinna og að því að láta þær í ljós. Felur sá réttur í sér frelsi til að hafa skoðanir óáreittar og að leita, taka við og miðla upplýsingum og hugmyndum með hverjum hætti sem vera skal og án tillits til landamæra."
 
Bezta mál, en vörumst þá sem vilja þjarma að tjáningarfrelsinu, jafnvel þá frú sem var ekki góðu vön í DDR! Fari svo, að þessi áminnzta nauð­ung­ar­vist­un á geð­veikra­hæli verði partur af ESB-pakkanum, þá hefur sambandið stigið stórt skref í áttina að því að verðskulda þá gagnrýni sumra, að þetta stórveldi sé farið að minna á gamla Sovétið!
 
En OKKAR áhyggjuefni hér á landi gæti svo verið það, að ESB-þjónar í ríkisstjórn og á Alþingi vilji löggilda hér aðför ESB að tjáningarfrelsinu með því að innfæra ESB-tilskipun þar um, "vegna þess að EES-samningurinn leyfi okkur ekki annað,"!! eins og svikin eru látin heita!
 
Niður með allt heila ESB-apparatið og EES-samninginn! Og til hamingju, Boris Johnson og brezka þjóðin með Brexit-sigurinn! 
 
Jón Valur Jensson.

Notum lygamæla þegar menn leita hér alþjóðlegrar verndar

Dav­id Wood, fv. forstjóri inn­flytj­enda­mála, vill að þeir sem fá dval­ar­leyfi í Bretlandi þurfi að gang­ast und­ir próf með lyga­mæli, enda sé hæl­is­leit­enda­kerfið mis­notað í mikl­um mæli.

  • Stutt er síðan Sajid Javid, inn­an­rík­is­ráðherra Bret­lands, dró í efa að all­ir þeir hæl­is­leit­end­ur sem kæmu til Bret­lands væru raun­veru­leg­ir flótta­menn, en þeim sem hafa óskað hæl­is í Bretlandi hef­ur fjölgað und­an­farna mánuði. Sam­kvæmt svör­um frá inn­an­rík­is­ráðuneyt­inu stend­ur hins veg­ar ekki til að nýta lyga­mæla á hæl­is­leit­end­ur.
  • Wood var vara­for­stjóri bresku landa­mæra­stofn­un­ar­inn­ar og þar á eft­ir for­stjóri inn­flytj­enda­mála áður en hann fór á eft­ir­laun 2015.
  • Skýrsl­una, sem birt var í dag, vann hann fyr­ir sjálf­stætt starf­andi hug­veitu Ci­vitas: Institu­te for the Stu­dy of Civil Society.
  • Þar seg­ir Wood m.a. nú­ver­andi kerfi vera notað til að auðvelda efna­hags­lega fólks­flutn­inga og að allt að 15.000 hæl­is­leit­end­ur komi til lands­ins ár­lega án þess að hafa gilda ástæðu til að koma þangað sem slík­ir. Legg­ur hann til að ein leið til að greina raun­veru­lega flótta­menn frá öðrum sé að nota sjálf­virka tækni til að skanna um­sókn­ir.
  • Tækn­in sé 90% ná­kvæm og taki um 20 mín­út­ur. Skann­inn veki at­hygli á tor­tryggi­leg­um svör­um þannig að þeir sem taki viðtöl­in við hæl­is­leit­end­urna geti lagt áherslu á þau atriði. (Mbl.is)

Er þetta ekki tilvalið kerfi til að taka upp hér? -- fljótlegt í notkun og myndi spara okkur háar fjárhæðir við að grisja í þessum hópi í stað þess að láta þessi mál veltast hér í kerfinu mánuðum og misserum saman og enda svo jafnvel með brottvísun viðkomandi fólks. Skjót afgreiðsla og skilvirkni felur hér í sér mikinn sparnað fyrir samfélagið. Allir, sem hingað leita með hreinan skjöld og ekkert óhreint í pokahorninu, hljóta að verða fegnir að fá að standa sig vel í lygamælisprófi.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Noti lygamæli á hælisleitendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brezkur almenningur vill fleiri vopnaða lögreglumenn á göturnar

Enn eitt hryðjuverk var framið í London í gær. 29 særðust, en hefðu flest­allir farizt, ef sprengjan hefði sprung­ið til fulls. Þó­nokkr­ar til­raunir til fleiri hryðju­verka hafa verið gerðar á ár­inu, en afstýrt af lögreglu, auk þeirra sem "heppn­uðust" að ósk öfga-islamista í Bretlandi, með 34 manna dauðsföllum. Almenn­ingur stendur með stjórn­völdum og vill að lögreglan í götu­eftirliti og við lestar­stöðvar og sérstakar fjölda­samkomur sé vopnuð. Ennfremur var virkjuð áætlun, Temperer, sem felur í sér þátttöku hermanna.

Meintur tilræðismaður, 18 ára karlmaður, hefur nú verið handtekinn. "Ríki islams" lýsti yfir ábyrgð á glæpnum. (Byggt á Rúv.is, Mbl.is, http://www.bbc.com/news/uk-41292528)

Jón Valur Jensson.


mbl.is Maður handtekinn í tengslum við hryðjuverkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nauðgunargengi innfluttra níddist skipulega á brezkum stúlkum 13-25 ára

Það, sem er sleppt að nefna í Mbl.is-frétt af þessum stór­tæku, lang­var­andi nauðg­unum 18 karla og 1 konu á stúlkum um árabil, er, að þetta er inn­flytj­enda­hópur umfram allt, frá músl­imsk­um lönd­um fyrst og fremst, en nánar til­tekið frá þessum löndum: Bangla­desh, Pak­istan, Indlandi, Írak, Íran, Tyrklandi.

Myndirnar og NÖFNIN með þeim (hér neðar) benda í þessa áttina:

First row: Nashir Uddin, Taherul Alam, Mohammed Hassan Ali, Mohammed Azram, Monjur Choudhury, Saiful Islam. Second row: Abdulhamid Minoyee, Jahanger Zaman, Mohibur Rahman, Prabhat Nelli, Nadeem Aslam, Eisa Mousavi. Third row: Habibur Rahim, Badrul Hussain, Carolann Gallon, Abdul Sabe, Redwan Siddquee, Yassar Hussain

First row: Nashir Uddin, Taherul Alam, Mohammed Hassan Ali, Mohammed Azram, Monjur Choudhury, Saiful Islam. Second row: Abdulhamid Minoyee, Jahanger Zaman, Mohibur Rahman, Prabhat Nelli, Nadeem Aslam, Eisa Mousavi. Third row: Habibur Rahim, Badrul Hussain, Carolann Gallon, Abdul Sabe, Redwan Siddquee, Yassar Hussain. Photograph: Northumbria Police/PA

Bezt er að segja hlutina eins og þeir eru. Þessi nauðgana­hópur er ekki sá eini á Bretlandi, hann kemur í kjölfarið á öðrum, sem minntu á hann um margt, þ.e. glæpa­gengjum í Rotherham og Rochdale, "which featured gangs of British Asian men abusing white girls" (Guardian), en fyrst og fremst var þar um Pakistana að ræða, frá því múslimska landi (rétt eins og helztu gerendur í áramóta­atburð­unum á torginu við Kölnar­dómkirkju um árið).

Kannski að "góða fólkið" íslenzka trúi þessu, af því að þessa ýtarlegri frétt er að finna í eftirlætisblaðinu The Guardian. En væntanlega þykir Guardian ástæða til að standa vörð um sakleysi viðkvæmra brezkra unglingsstúlkna í stað þess að horfa upp á það þegjandi og hljóðalaust, að þær séu fylltar og dópaðar til þess að unnt sé að níðast á þeim af þessu líka glæpahyski, sem aldrei hefði átt að stíga fæti á brezka jörð. Sumar þeirra voru hnepptar í kynlífsánauð.*

* Undirfyrirsögn Guardian-fréttarinnar er: Four trials find 17 men and one woman guilty of nearly 100 offences including rape and human trafficking of vulnerable women and girls.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Níddust á hópi ungra stúlkna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keep calm and carry on ...

Þessi fyrirsögn er í anda þess hugarfars er einkennir fjársjúkan huga líb­er­alista Evrópu um þessar mundir. Ég set þessi orð á blað vegna þess að því miður, ef fortíðin er einhver leiðarvísir, hefur Manchester-árásin orðið fyrirsögn í nokkra daga alveg eins og allar hinar árásirnar og svo búið... Nokkrum dögum eftir að þetta var skrifað héldu hryðjuverkin áfram í Lundúnum, nú á London Bridge og frægum matarmarkaði rétt hjá Borough market... Og sú bylgja yfirlýsinga, í takt við þá hér að ofan af hálfu forráðamanna þjóðanna sem fleygt hafa ábyrgðarhlutverki sínu til að vernda landsmenn og gæta, er kosið hafa þá til slíks, finnst tilhlýðilegt að bjóða upp á yfirlýsingar í þessum dúr, eins og hryðjuverkin séu af völdum náttúruhamfara en ekki af völdum islamskra hryðjuverkamanna og ákvarðanatöku þeirra sjálfra, er hafa með viðhorfi sínu, slæmum ákvörðunum og síðan aðgerðaleysi gefið veiðileyfi á landsmenn í borgum Evrópu sem og hér. 

Ég vil benda á að við erum nokkrum árum á eftir Evrópu í þessum efnum, en stjórnarerindrekar reyna allt hvað af tekur að flýta því að ástandið verði með sama hætti hér á landi með stöðugum innflutningi hælisleitenda og efna­hags­flóttamanna.

Íslenska þjóðfylkingin fór  snemma að reyna að vekja athygli á þróun sem var fyrirsjáanleg, en enginn flokkur, ég endurtek: enginn var það andlega sterkur að vilja skoða málið út frá sögunni... En það má til sanns vegar færa að erfitt er að viðurkenna mistök og að mannslíf og fjármagn landsmanna hafi verið sett í pott glötunar, til að þjónusta eigið egó, því ekkert er eðlilegt við rétttrúnaðinn.

Það er farið að verða sjaldgæfara í dag en fyrir eingöngu ári síðan að fólk sjái ekki í gegn um þessar heimskulegu aðgerðir, er milljónum manna, 90% karl­menn á besta aldri búnir nýjustu græjum, var sópað inn í álfuna undir yfir­skriftinni „góðmennska“. Hvar voru öll börnin og konurnar? Fæstir íslenskir karl­menn (nema einstaka líberalisti) hefðu flúið frá konum og börnum og skilið þau eftir undir sprengjuárásum og öðru er fylgir stríði, enginn með fullu viti gerir slíkt nema annaðhvort þeim sé skítsama um konur og börn og þau séu á par við húsdýr, eins og segir í ritum islams, eða veraldlegri ástæður ráði gjörðum... En voru þetta þá allt stríðshrjáðir ungir menn eða voru þetta efna­hagsflóttamenn og hælisleitendur, sem höfðu ekki velferðarkerfi í sínum löndum? Af hverju ungir menn, getur verið að stór hluti hafi verið ISIS og aðrir hryðjuverkahópar? Allavega segja ISIS sjálfir að þeir hafi þúsundir blundandi hryðjuvekamanna í Evrópu er þurfi eingöngu hvatningu og þá fari þeir af stað.

Nú, þeir eru líka heimaræktaðir hryðjuverkamennirnir, annarrar kynslóðar menn og konur, er hafa alist upp í moskum sem hafa sharia-lög sem viðmið og eru þau rétthærri en landslög að þeirra mati og framfylgni; nú skyldi enginn segja að landslög séu auðvitað rétthærri, fyrir okkur væri slíkt almenn skyn­semi, en lengra nær það ekki, þessir múslimar hlusta ekki á slíkt og hlæja að okkur, enda með skipulag um hvernig þeir notfæra sér einfeldni Evrópubúa og láta okkar eigin lög um frelsi bíta til baka, og þeir sem ekki þekkja til gleypa við yfirlýsingunum um minnihluta­hóp þeirra (þótt þeir séu hundruð milljóna) og við yfirlýsingum þeirra um að islam sé trú friðar; islam þýðir submisson á ensku, er útleggst: undirgefni, auðmýkt, uppgjöf. Múslimi sem ástundar trúna og trúir á Kóran, Hadith og Síru getur ekki orðið trúr neinu landi og þjóð sem hann flytur til, það einfaldlega liggur ekki í hlutarins eðli frekar en svart sé hvítt ...Moskur eru ráðhús og sharia eru lögin...

Í Manchester voru 22 drepnir, mikið börn og unglingar sem voru á tónleikum og 59 særðir... Og hér verð ég að bæta við því nýjasta: 8 látnir og fjöldi særðra á London Bridge og Borough market... Og ráðamenn Evrópu samsamast um að stinga höfðinu í sandinn undir yfirskriftinni: „höldum ró okkar“, líka forseti þessa lands.

Hvað eru hryðjuverkin orðin mörg, hvað eru fórnarlömbin orðin mörg, hvenær er búið að normalisera þetta nægi­lega mikið, dauða­gildruna keep calm and carry on-hugar­farið/hugar­ástandið. Þetta hugarfar getur líka verið gríðarleg fötlun, svo hrikalegt sem það er, meðvitað af fólki sem væri talið almennt með fullum fimm, en er í sjálfu sér hættulegra en hryðjuverkamennirnir vegna þess valds er það hefur og líka tekur sér... Og nú höfum við ný hryðjuverk í London og svanasöngur dauðans heldur áfram hjá rétttrúnaðinum, Teresa May tók eitthvað sterkara til orða en áður, en segir samt ekki það sem nauðsynlegt er, t.d. það að hreinsa landið. 

Aðeins í Bretlandi, samkvæmt fréttum, eru mögulega 3.500 hryðjuverkamenn og ISIS-hryðjuverkamenn komnir til baka frá Sýrlandi 400 talsins... Nýjustu fréttir hins vegar er að tala hryðjuverkamanna sé 23.000 en ekki veit ég hvort tala þeirra er fóru til Sýrlands og kom til baka hafi breyst ...

Það er löngu komin tími til að stjórnarhættir breytist í Evrópu, brýn þörf er á því að færa lýðræðið betur út til fólksins, því hver katastrófan á fætur annarri hefur riðið yfir fólk, fjármálahrun, stríðsrekstur og allrahanda inngrip í líf fólks af embættismönnum er ekki valda lengur valdinu... Hvers vegna skyldi það vera, getur verið að forgangsröðunin sé ekki lengur land og þjóð heldur eigin meiningar og eigin þarfir og sérhagsmunir eins og t.d. valdablokka eins og Tisa samningarnir ganga út á...

Hvað haldið þið að hafi verið sett upp í neðanjarðar-lestarstöðvum Bret­lands eftir 22. mars þegar íslamskur hryðjuverkamaður keyrði niður meira en 40 manns á Westminster Bridge, braut girðinguna sem verndar þinghús Bretlands og stakk lögreglumann? Já haldið ykkur...

“All terrorists are politely reminded that this is London and whatever you do to us we will drink tea and jolly well carry on”   (March 22).....

Þetta flokkast undir fárveikt hugarfar... Svona hefur þetta verið við öll hryðjuverkin, eins og um náttúrulögmál væri að ræða, ekki meðvitaðar morðtilraunir hryðjuvekamanna... Og allt er þetta gert til að lama viðnám landsmanna vegna einhverra hagsmuna sem koma ekkert við eigendur landsins, meirihluta landsmanna.

Fyrir hönd Íslensku þjóðfylkingarinnar,

Sigurlaug O. Björnsdóttir.


mbl.is Átta látnir eftir hryðjuverkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur brást lögreglan: "Ég er til­bú­inn í nafni Allah að gera það sem gera þarf, jafn­vel að drepa mína eig­in móður!"

Ekki dugði þetta brezku lögreglunni og Scot­land Yard til að setja pak­ist­anska islamist­ann í London undir strangt eftirlit, hvað þá til að taka hann úr um­ferð! 

Eins var í Man­chest­er: ekki farið eftir vís­bend­ingum sem hefðu get­að komið í veg fyrir sprengju­árás­ina við tónleika­höllina.

22 + 7 líf eru farin í súginn og hátt á ann­að hundrað manna særðir og sumum vart hugað líf -- þetta er afleið­ingin af því tak­markaða eftirliti, sem Theresa May segist nú ætla að koma á réttan kjöl. (Sbr. einnig hér: Kerfið brást - eftirlitið allt of slælegt með öfga-islamist­um. Ennfremur: Þrátt fyrir endurkomu 350 brezkra jíhadista úr "heilögu stríði" ISIS, hefur aðeins einn þeirra verið stöðvaður!)

Bretar hafa ýmsir reynt að blása á hvassa gagnrýni Donalds Trump, en alveg er ljóst, að þeir hafa heldur betur verið með buxurnar niðrum sig í þessum mál­um. Við skulum bara vona, að frú May takist að hysja upp um þá aftur, eða halda menn, að hr. Corbyn sé einhver bógur til þess að koma sér upp á kant við kjósendur sína í múslima­samfélaginu?

En við þurfum ekki á neinni feimni við meðhöndlun mannréttinda að halda þegar í húfi eru tugir eða hundruð samborgara okkar. Og múslimar í Bretlandi, sem margir hverjir hafa lýst yfir stuðningi við al-Qaída á árum áður, ættu ekki að láta það koma sér á óvart, að fylgzt verði rækilegar með þeim en t.d. kvek­urum eða Rótarý­félögum, Kalvín­istum eða Junior Chambers eða kven­félögum á Humberside. Svo mjög hefur fjölgað í múslima­samfélaginu brezka (um þrjár milljónir manna, þar af um 23.000 sem eru hlynntir "heilögu stríði"), að lög­reglan ræður ekki við verkefnið nema hún einbeiti sér að múslimunum, öllum öðrum fremur, í tengslum við hugsanleg hryðjuverk.

En sannarlega þarf einnig að auka fjár­veitingarnar til lögreglunnar, og það sama á við hér á landi, Engeyjar­frændur og Guðlaugur Þór hinn andvaralausi!

P.S. 5. júní. Jafnvel vinstrisinnaði fréttamaðurinn Jóhann Hlíðar Harðarson var með það sem fyrstu frétt í hádegisútvarpi Rúv í dag, að maður hafði gefið sig fram við brezku lögregluna fyrir tveimur árum með ábendingar um að Salman Abedi (Manchester-fjöldamorðinginn) hafi þá verið kominn út í ofurróttækni, vísað jafnvel frá mosku sinni vegna þess og verið að reyna koma islamstrú inn á börn, ennfremur sveipað um sig með ISIS-fánanum á einhverju torginu! Ekkert gerði lögreglan í málinu og kallaði hann ekki til yfirheyrslu!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Lögregla var vöruð við árásarmanninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Donald Trump er raunsærri en borgarstjóri Lundúna

Það er vitaskuld laukrétt tístað hjá Trump Banda­ríkja­for­seta, að það er engan veg­inn í lagi, þegar "í það minnsta sjö létu lífið og 48 slös­uðust í hryðju­verka­árás", að borg­ar­stjóri Lund­úna segi að það sé "eng­in ástæða til að vera ótta­sleg­inn""! 

Sadiq Khan, hinn músl­imski borgar­stjóri, hefur áður verið gagn­rýndur fyrir ummæli sín vegna öfga­stefnu meðal múslima, en þessi svör fekk hann frá Trump sem þóttu viðbrögð Khans við árás­un­um í London í gær­kvöldi ekki nógu eindregin. 

„Við verðum að hætta að reyna að sýna póli­tíska rétt­hugs­un og verðum að vernda fólkið okk­ar. Ann­ars versn­ar þetta bara,“

skrifaði Trump á Twitter, og virðist það bæði rétt mat og sann­gjarnt.

Eitt sem Manchester-hryðju­verkið hafði í för með sér virðist vera að við­bragðs­flýt­ir brezku lögreglunnar hafi aukizt. Frá því að árásin hófst í gær þar til morð­ingjarnir voru felldir, liðu ekki nema átta mínútur.

Annar lærdómur getur sannarlega orðið fyrir­byggj­andi gegn fleiri hryðju­verk­um: að menn láti af allri glópa­bjartsýni og von um að þessu fari senn að ljúka. Það gerir það ekki án þess að menn efli forvarnir að miklum mun, en þar gæti þetta verið efst á blaði:

  • að efla netnjósnir með múslimum innanlands og í tölvu­samskiptum þeirra við fólk í múslimskum ríkjum og með skrifum þeirra á alþjóðlega vefi;
  • að koma fyrir hlustunar­búnaði í öllum moskum, ef þær eiga að fá starfsleyfi áfram;
  • að sett verði tímabundið bann á ferðir eða a.m.k. innflutning múslima til Evrópu, þar til múslimskir hryðju­verkamenn hafa látið af dráps­athæfi sínu þar um ákveðinn tíma, 1-2 ár eða svo. Haldi þeir síðan áfram fjölda­morðum á nýjan leik, má aftur skella á öðru slíku tímabundnu innflutn­ings­banni frá múslima­ríkjum.

Þetta gæti reyndar orðið varanlegt bann áratugum saman, en við því er ekkert að segja, heldur hrein nauðsyn og örugglega til að draga úr þessum árásum, þótt hitt beri að viðurkenna, að önnur og þriðja kynslóð frá innflytjendum er oft mun róttækari en sú fyrsta. En þar verður þá þeim mun meira undir því komið að fylgja þeim kynslóðum vel eftir í uppeldinu: í gegnum skóla­kerfið og félags­lega þátttöku og með aðlögun að vestrænum hugunar­hætti, sem múslimar verða að tileinka sér, vilji þeir öðlast fullan þegnrétt í landi Breta­drottningar. Komi full andstaða við slíkt í ljós meðal þeirra eða grunur um þátt­töku í and­brezkri starfsemi, á að binda svo um hnútana, að vísa megi þeim til baka til síns upprunalands. Slíkar valdheimildir hafa frönsk stjórnvöld, og Bretum er engin vorkunn að því að taka upp sömu vinnubrögð. Ættu stjórnvöld hér á landi sömuleiðis að tryggja sig með sérstökum skilmála-ákvæðum, sem fylgja beri allri mótttöku nýrra ríkisborgara, að þeim sjálfum og jafnvel börnum þeirra megi vísa úr landi fyrir skrif eða athafnir sem fela í sér stuðning við erlendar hryðjuverka­hreyfingar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Trump gagnrýnir borgarstjóra Lundúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt blóðbað í Lundúnum. ISIS fagnar. Trump gefur gild ráð: lokið á innflutning múslima!

Óhugnaðurinn er ekki lítill: fyrst ekið yfir fólk á sendibíl, síðan ruðzt út með langar sveðjur og menn stungnir hver af öðrum og m.a. tvítug stúlka. Þeir voru þrír saman þessir hrottar, þetta er enginn einfari, þetta eru víslega múslimar af svæsnustu gerð, sem offramboð er af nú um stundir. London er öll í uppnámi, almenningur, lögregla og stjórnvöld.

Það er verið að breyta friðsælu Englandi í vígvelli einn af öðrum. Annarleg mannhaturs-hugmyndafræði öfga-islamista býr að baki. Fagrir staðir með aldalangar minningar, eins og Vauxhall, verða skyndilega atburðasvið ógnar og skelfingar. 

Hér er sonnetta Johns Keats (1795-1821), tileinkuð konu sem hann sá bregða fyrir í Vauxhall fimm árum fyrr:

XLIII. sonnetta

Til konu sem skáldið sá nokkur andartök í Vauxhall



Í fimm ár útfall sjávar séð ég hef

og sendna fjöru án afláts breyta sér,

frá því þín fegurð óf mig í sinn vef,

mitt auga, er dróstu hanzka af fingrum þér.

Og enn, ef himna lít ég næturljós,

er ljómi þinna augna sefi minn;

mig gleður ei hin unga villirós,

mín andans fró er rjóður vangi þinn;

mig gleður ei hið bjarta lífsins blóm,

en blítt mitt eyra hlustar eftir því

hvað vakti þrá, við vara þinna óm,

þá vaknar löngun mín til þín á ný.

Þú varpar skugga á heimsins yndi allt.

Án þín er lífið hryggðarfullt og kalt!

Jón Valur Jensson þýddi.

Fegurðin ríkir ekki lengur, nú er jafnvel vegið að saklausri, ungri konu með haturssveðju í nafni islams!

Og nú talar helzti meintur friðarspillir allra vinstrisamkvæma heimsins inn í þessa brezku atburði, Donald Trump Bandaríkjaforseti: Eina ráðið er að loka á innflutning allra múslima til Vesturlanda!

Hvað finnst lesendum um það?

JVJ.


mbl.is Urðu vitni að stunguárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband