Ábyrgðarlaus innflytjendastefna Vinstri grænna

VG hefur það sem yfirlýsta stefnu að við Ís­lend­ingar "eigum að taka á móti umtals­vert fleiri flótta­mönn­um, að lág­marki 500 á ári. Jafna þarf að­stæð­ur hælis­leit­enda og svo­kall­aðra kvóta­flótta­manna og tryggja full­nægj­andi fram­kvæmd nýrra út­lend­inga­laga með fjár­magni og mann­afla," segir í stefnuskrá flokkksins.

Er þetta nú skynsamleg stefna? Hælisleitendur tvöfölduðust rúmlega í fjölda (í nær 800) fyrstu átta mánuði þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. Vinstri græn vilja gleypa við þessu fólki, að miklu leyti múslimum, og bæta við 500 kvóta­flóttamönnum að auki, einnig að miklu leyti múslimum!

Hvernig komst það inn í marx-lenínískar kokkabækur Steingríms J. Sig­fússonar að hingað mættu flytjast um 1000-1500 múslimar á hverju ári? Eða er það góðmennið með fallega brosið hún Katrún Jakobsdóttir sem fekk að ráða þessu á síðasta landsfundi flokksins?

Hvernig ætla Vinstri græn að fjármagna þessi ósköp? Hvað ætla þau að dæla mörgum tugum milljarða króna í þetta árlega? Og af hverju geta þau ekkert lært af norrænum frændum okkar um að fara beri varlega í alla fjölgun múslima úr þessu? 

Og hyggur Katrín Jakobsdóttir að það muni auka kvenréttindi og öryggi ungra stúlkna (bæði gagnvart kynferðislegri áreitni og sársaukafullri umskurn mey­barna) hér á landi að fá hingað flóðbylgju múslima? Verður það einnig til að tryggja öryggi samkynhneigðra? Og hvernig getur hún ábyrgzt, að hér verði hinn öfgakenndi salafismi (og wahhabítismi) ekki ráðandi stefna í moskunum tveimur? En þær eru nú að fá samþykkta tvo bænaturna, 11 og 30 metra háa, til að kalla saman múslima til bæna, karlmenn reyndar sér og konur í bakrými.

Hvað er það sem heillar VG svona við þetta allt saman? Finnst þeim kannski spennandi, að eftir því sem heit­trúuðum múslimum fjölgar hér, verður auð­veldara fyrir öfgaislamista að leynast meðal þeirra, þess vegna ISIS- eða al-Qaída-liða, sem reiðubúnir eru til að hlýða fyrirskipunum um að ráðast á "hina vantrúuðu", þ.e. kristna menn, og láta tilganginn helga meðalið í því efni? -- engu síður en Lenín gerði fyrir einni öld!

Jón Valur Jensson.


mbl.is VG stærsti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jón Valur

Af hverju er vinstri græn líð að gera þetta ? Hata vinstri græn Íslensk menning ? Hata vinstri grænn Ísland ?

Varðandi bænaturnar - afhverju er það leyfi fyrir svona á Íslandi ? Það er enginn þurf fyrir bænatunar hér - alla muslimar VEITT hvenær þau á að mæta til að biðja. Svona hljóð á enginn plats á Íslandi og mun bara gera Íslendingum reiður.

Merry (IP-tala skráð) 23.9.2017 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband