Færsluflokkur: Löggæsla

Vinstri græn höfðu fram undir þetta næstmest fylgi, en hafa nú afhjúpað sig sem andstæðinga nauðsyn­legra varna almennings gegn hryðjuverkum!

„Sérsveitarmaður með byssu á engu eftir að breyta ef einhver hefur ein­beittan vilja til að valda fólki skaða,“ ritar fávís Líf Magneu­dóttir, forseti borgar­stjórn­ar, borgarftr. VG, og telur "nær­tæk­ara ... að setja saman teymi áfalla­streitu­sérfræð­inga eða hjálpar­sveitar­manna til að stíga inn í ófremdar­ástand og hryðju­verk. Gerði meira gagn en sérsveitar­maður með byssu."

Af hverju annaðhvort eða?! Þvílíkur glópur, sem valin hefur verið sem fulltrúi almenn­ings í borgar­stjórn! Og þvílík fáfræði að átta sig ekki á því, að snögg viðbrögð lögreglu eru einmitt þau úrræði sem nú þegar hafa bjargað tugum og hundruðum manna frá því að vera sölluð niður af hríðskota­byssum illræðis­manna eða keyrð niður af öðrum eins islamist­ískum brjálæð­ingum á flutn­inga­bílum (sbr. hryðjuverkið í Nice, sem eitt tók 81 mannslíf) eða stungin svöðu­sárum tugum saman.

Líf Magneudóttir er prestsdóttir og forseti borgarstjórnar!

Hér þarf marga konar viðbúnaður að koma til. Þetta, sem Líf nefnir, er bara endinn á spýtunni. En verði hryðjuverkavarnir engar, eins og hún virðist kjósa, fá áfalla­streitu­sérfræð­ingar sennilega margfalt fleiri verkefni, sem setja þá sjálfa í brýna þörf fyrir áfalla­streitu­meðferð um langan tíma!

Það gengur ekki að vera með svona ábyrgðar­lausa pólitíkusa eins og þá fulltrúa Vinstri grænna, sem hver eftir annan og undir forystu sjálfs formanns­ins hafa verið með grófar yfir­lýsingar í þessu máli, sem beinast í raun að lögreglunni og yfirstjórn almanna­varna. Þau ættu að láta fagmennina um verkin, eins og tíðkast um þetta meðal annarra þjóða, sem gefa ekki ungæðislegum viðhorfum vinstri-pacifista neitt færi á því að hafa áhrif á landvarnir og löggæzlu í brýnustu öryggismálum.

Svo er þetta einmitt sá flokkurinn, sem ásamt Pírötum og leifum Samfylkingar og hverfandi Bjartri framtíð vill stórauka hingað flæði flóttamanna og hælis­leit­enda, þrátt fyrir að úr hópum þeirra (m.a. frá Írak og Afganistan) koma hingað menn sem naumast hafa sloppið við að vera þátttakendur í borgara­styrjöldum og kunna þannig "til verka"! Þetta eru þeir hópar, þar sem marg­falt meiri líkur eru á því að við fáum útsendara ISIS og annarra hryðjuverka­samtaka heldur en frá því íbúamengi, sem fyrir var hér í landinu.

En VG heldur áfram í sinni vanvizkulegu andstöðu við varnir landsins og andvaraleysi frammi fyrir þeirri ógn, sem steðjað hefur að ýmsum nágranna­þjóðum okkar.

Með fordóma sína gegn landvörnum hefur hin lítt reynda, sæta friðardúfa Katrín Jakobsdóttir, sem skortir mjög á víðsýni í þessum málum öllum, ekkert erindi í Þjóðaröryggisráðið, sem nýstofnað er. Með því að tala sífelldlega gegn örygg­is­ráðstöfunum lögreglu, sem ná aðeins til tiltekinna viðburða, er hún að reyna að grafa undan vörnum almennings. 

Og í þessu tekur þátt Fréttablaðið, sem ítrekað slær upp skopmyndum á leið­arasíðunni, þar sem sérsveitarmenn á útifundum eru búnir vélbyssum, ólíkt því sem er í reynd, að þeir eru búnir skammbyssum. Hystería vinstri manna gegn vopnabúnaði nær engri átt, og minna má þá á, að margoft hefur Landhelgis­gæzlan þurft að manna fallbyssur sínar og skjóta viðvörunarskotum og með þeirri beitingu vopnavalds tekizt að þvinga erlenda landhelgisbrjóta til hafnar og leiða þá fyrir rétt, fyrir utan enn eitt leynivopn LHG: frægt, en einfalt valdbeit­ingartæki sem lamaði brezka togara til ólöglegra veiða hér!

Og rétt eins og sérsveitin hefur nú þegar meðal íslenzkra borgara komið í veg fyrir að úr harmleikjum yrði enn meiri skaði en átti sér stað, þá getur það sama enn frekar átt sér stað, ef hér kemur upp hryðjuverk öfgamanna.

  • Á örfáum mínútum tókst vopnaðri lögreglu að koma í veg fyrir, að hatursfullur vinstrimaður næði að salla niður fjölda bandarískra þingmanna í gærmorgun
  • Án vopnaðar lögreglu í Lundúnum hefðu hnífaárásamennirnir fyrir nokkrum dögum getað haldið áfram að drepa fjölda manns.
  • Án viðnáms frönsku lögreglunnar hefðu hryðjuverk þar í landi orðið enn mannskæðari.

Er þetta óskamynd Lífar Magneudóttur og félaga hennar í VG: að hryðju­verka­menn fái fullt svigrúm til að stunda fjöldamorð án tafarlausra viðbragða vopnaðrar lögreglu?

Lítum svo aftur á innflytjendamálin60% fjölg­un um­sókna um vernd milli ára er ein nýjasta frétt dagsins. 

Heild­ar­fjöldi um­sókna það sem af er ári er 420. Fjölg­un­in sam­an­borið við árið 2016, bendi enn til þess að fjöldi um­sókna um alþjóðlega vernd á ár­inu geti orðið á bil­inu 1.700 til 2.000. (Mbl.is)

Af 82 umsækjendum um alþjóðlega vernd í maí 2017 voru flest­ir frá múslima­löndunum Alban­íu (29) og Írak (12), en 46% um­sækj­enda ríkj­um Balk­anskag­ans (sem innifelur Albaníu, Makedóníu og Kósóvó, öll ríki með meirihluta múslima).

Og taka menn ekki eftir þessu í fréttinni: "78% um­sækj­enda voru karl­kyns og 22% kven­kyns." En hvers vegna ættu karlmenn að þurfa á hæli að halda þrisvar og hálfu sinni fremur en konur?! Eru þetta kannski fyrrverandi stríðs­aðilar frá Írak eða islam­istar áfjáðir í að komast til Vestur-Evrópu? Hvað vitum við, og hvað veit Útlendingastofnun? Og hvað vita þessir ábyrðar­lausu pólitík­usar í borgar­stjórn og á sjálfu Alþingi? Ungir karlmenn frá múslima­löndum -- á í alvöru að setja þá fremsta á biðbekk hælisleitenda á Íslandi? Teldu okkar nágrannaþjóðir, með sína reynslu, það skynsamlega forgangsröðun? Af hverju ekki að vísa þessum mönnum frá án tafar?

S.k. "efn­is­leg meðferð" innflytj­endamála kostar okkur nú þegar milljarða á hverju ári eða sem nemur einum til tveimur Dýra­fjarðar­göngum. Þótt minnihluti umsækjenda sleppi inn, eftir dýrkeyptar langdvalir hér á landi, þá er eitt sem víst er, að það verður áfram reynt, með hjálp fimmtu herdeildar hér, að troða hingað inn fólki frá múslimalöndum þar sem jafnvel ekkert stríðsástand ríkir. 

En þessi afhjúpun Vinstri grænna á eigin vanþekkingu og varna-andstöðu kann þó að hafa eitt gott í för með sér: að íslenzkur almenningur snúi baki við þess­um flokki og öðrum ámóta, þar sem ekki er tekizt af ábyrgð á við það hlutverk að gæta öryggis íslenzkra borgara og ferðamanna þar að auki, gleym­um því ekki. Ísland á ekki að verða eina Natólandið þar sem engar varnir eru fyrir almenning gegn hryðjuverkum, því að slíkt spyrðist þá brátt til þeirra ill­ræðis­samtaka, sem jafnan reyna að sæta lagi til að valda sem mestum skaða og hörmungum, ekkert síður meðal þeirra þjóða sem hafa krossinn í fána sínum.

Og svo er það Dagur B. Eggertsson, sem vill helzt leggja niður hátíðarhöld á 17. júní, af því að þau eru svo mikil móðgun við fjölmenningarstefnu hans!!! En í Svíþjóð vakti slík tillaga enga lukku hjá lesendum Dagens Nyheter í gær og fyrradag. Tveir sænskir prestar í múslimaborginni Malmö höfðu lagt til, að sænska kirkjan tæki afstöðu gegn þjóðhátíðardeginum og færi fram á að hann yrði lagður niður, enda sé hann "barn síns tíma og eigi að heyra sögunni til, auk þess sem þeir segja að föðurlandsást og þjóðernisstefna leiði ekkert gott af sér" (sjá frétt hér á vef Útvarps Sögu). En þvílíkar virðast einmitt öfgar borgar­stjórans í Reykja­vík, og er hann nú bara sakleysis­legur Samfylkingar­maður! En 83% lesenda Dagens Nyheter reyndust hins vegar ósammála afstöðu Dags B. og sænsku prestanna tveggja!

Jón Valur Jensson.


mbl.is 60% fjölgun umsókna um vernd milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættan kemur einnig innanfrá

Mjög góð og mergjuð grein eftir félaga okkar Kjartan Örn Kjartansson.

Image result for Kjart­an Örn Kjart­ans­son Nú hefur þjóðar­örygg­is­ráð verið sett á lagg­irnar. Ég veit ekki um vald­svið þess, en vona að það sé annað og meira en einhver labb-rabb-sam­ráðs­vett­vangur, heldur hafi nægt afl til þess að beita sér með festu þegar nauðsyn krefur og ætli sér að gera það.

Ég leyfi mér að gera ráð fyrir því að formaður VG sé að öðru leyti hin ágætasta mann­eskja þótt mér líki ekki áherslur hennar í samfélagsmálum, en það er einmitt þeirra vegna sem það vekur umhugsun og áhyggjur að einn æðsti prestur þeirra afla, sem landinu stafar hver mest hætta af á svo mýmörgum sviðum, skuli vera meðlimur ráðsins. Það mætti e.t.v. segja að það ætti frekar að vera eitt af verkefnum slíks ráðs að hafa gætur á slíkum öflum og afleið­ingum gjörða þeirra í stað þess að hafa hugsanlega eins konar fimmtu herdeild þar innanbúðar.

Nýlegt dæmi um óábyrgan hugs­unar­háttinn varðandi öryggi fólks er að for­maður VG fann að því að lögreglan skyldi hafa leyft sér að hafa uppi gæslu á ýmsum útifögnuðum og krafðist þess að lögreglan auglýsti það vandlega fyrir fram hvað hún ætlaði að gera. Hermt er þegar þetta er skrifað að einn þing­maður VG ætli sér að taka málið upp á Alþingi í mótmælaskyni við varkárni lögreglunnar, en slíkt aðgát krefðist „umræðu“ og skoðunar. Þá vaknar hins vegar alvarleg spurning um hvers vegna eða þá hvar í heiminum löggæslan upplýsi hugsanlega glæpamenn um viðbúnað sinn, hvar hún er hverju sinni og með hvaða hætti hún ætlar sér að verjast ógnum þeirra? Eru þetta ekki afar óæskileg pólitísk afskipti af löggæslumálum og þá ómaklegt vantraust á íslensk lögregluyfirvöld, sem hafa skyldum gagnvart almenningi að gegna? Vill VG frekar láta allt reka á reiðanum og það verkast sem verkast vill?

Þetta er af sama meiði og það að vilja hafa landamæri Íslands opin fyrir öllum sama hvað það kostar í peningum eða öðru eða hvaða afleiðingar það hafi. VG & Co. eru t.d. andvíg því að snúa þeim tafalaust við sem að eru allt í einu vegabréfalausir við komuna til landsins, en þeir hinir sömu hafa varla komist um borð í flutningsför sín án vegabréfs. Þetta fólk er andsnúið því að gera bakgrunnsgreiningu á landleitarfólki áður en því er veitt landvistarleyfi til skemmri eða lengri tíma eða þá að banna frávísuðum endurkomu til landsins og gera þá að persona non grata sem ætti auðvitað að vera, en það ku hins vegar hafa borið á því að slíkir komi aftur til þess að njóta dvalarinnar og ýmissar frírrar þjónustu á kostnað almennings á meðan verið er að „skoða málið“ mánuðunum saman. Og svo er sumum veittur ríkis­borgara­réttur í flýti með pólitískum þrýstingi nefndra afla og ríkisborgararétturinn þar með felldur að virðingu og gildi og settur niður á einhvers konar tilboð eða útsölu.

Það er ótrúlegt að til er fólk sem vill halda því fram að með því að hafa vopn nálægt sé lögreglan að gera sig og aðra að skotmörkum en ekki að verjast og snýr þar með hlutunum á haus. Ein samlíkingin gæti væri strútfuglinn heimski sem heldur að engin sé hættan á meðan að hann sér hana ekki með hausinn grafinn í sandinn. Hvar annars staðar í veröldinni skyldi slík furðu­hugmynda­fræði vera til? Afneitar þetta fólk því kannske almennt að ofbeldis­glæpir gerist, þrátt fyrir öll dæmin sem sanna annað, eða þá kaldrifjuðum morðum hryðju­verka­kommúnista hér áður fyrr eða jafnvel ógnarverkum og haturs­glæpum múslima sem við hafa tekið og tröllríða heimsbyggðinni? E.t.v. ætti formaður VG og hennar líkir að gefa óupplýstum löndunum í kring um okkur ráðin sín, t.d. að afvopnast og vera ekki að trufla vitfirringuna á forsendum þess að trúfrelsi ríki og að allir eigi að vera góðir við minni máttar eða þá að löndin verði auðvitað að gera sér grein fyrir að morðin eru auðvitað Vesturlöndum og kristni að kenna og því mjög skiljanleg, ekki satt?

Að öllu háði slepptu þótt verðskuldað sé þá þarf vart að minna á að andstaðan við veru Íslands í NATO hefur jafnframt verið eitt helsta baráttumál íslenskra sósíalista og markmiðið ætíð að gera landið varnarlaust, enda séu þeir svo fjarska miklir friðarsinnar. Þetta fólk vill engan lærdóm draga af mannkyns­sögunni gamalli eða nýrri og það lokar augum og eyrum ef eitthvað fellur ekki að þröngsýni og öfga­hugmynda­fræði þess. Almenningur verður að gera sér betur ljóst hvílík áhætta það er að treysta félagshyggju­öflunum svoköll­uðu fyrir þjóðaröryggi okkar, frelsi, lífi og limum.

Kjartan Örn Kjartansson.

Höfundur er öryrki og eldri borgari.


mbl.is Vill sem minnstan vopnaburð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryggismál almennings gagnvart hryðjuverkahættu færast í skárra horf en áður, en betur má, ef duga skal. Úrtöluhjal vinstri manna á ekki að stýra för!

Þetta á þjóðarör­ygg­is­ráð, sem kemur öðru sinni saman í dag, að vita, m.a. að auka þarf fjárveitingar til lögreglu vegna þeirra nauðsynlegu ráðstafana sem hafnar eru til að tryggja hér öryggi, eins og sást í þremur ólíkum aðgerðum lögreglu um helgina, en full þörf verður á með ítrekuðum hætti næstu mánuði og misseri.

Að kalla út 120 manna lögreglulið á vakt, eins og gert var í gærkvöldi til öryggisgæzlu 10.000 áhorfenda við landsleik Íslands og Króatíu, er meðal kostnaðarmeiri aðgerða, og nokkuð hliðstæð var gæzlan við Litahlaupið í fyrradag, auk þess sem hindrunum var komið fyrir til að tryggja svæðið. En vegna sjómannadags-hátíðahalda á Grandagarði í gær, sem margir tóku þátt í og fóru hið bezta fram, var gengið svo vel frá málum með lokun götunnar báðum megin frá, að þar þurfti ekki lögreglulið á staðinn; en björgunar­sveita­menn voru á svæðinu og fleiri til eftirlits.

Vinstri græn eru á grunni sinnar meintu friðarhyggju farin að hnýta í yfirstjórn lögreglu og stjórnvöld vegna þessara ráðstafana, sem Katrín Jakobsdóttir telur t.d. að hefði átt að tilkynna almenningi um fyrir fram. En þeir, sem mættu á svæðin, upplifðu fremur öryggistilfinningu en óþægindi af návist okkar ágætu löggæzlumanna.

Fráleitur málflutningur um þessi mál birtist í leiðara Fréttablaðsins í dag, í grein eftir menningarblaðamanninn Magnús Guðmundsson. Það verður ekki af þeim skafið vinstri mönnum á Íslandi, að þeir hafa lengi óraunsæir verið og ábyrgð­ar­lausir í varnar- og öryggismálum, og þarna birtust skýr dæmi þess.

Engin ástæða er til að ætla, að á Íslandi sé fyrir fram útilokað að hryðjuverk geti átt sér stað. Kæmust illræðis­menn ISIS eða annarra hryðju­verka­samtaka á snoðir um, að hér væru litlar sem engar varnir gegn árásum á almenning og lykil-samkomustaði, þá væri viðbúið, að þeir gætu gengið á lagið. Öryggis­keðjan í vörnum Vesturlanda er ekki sterkari en veikasti hlekkurinn, og fyndu óvinir vestrænnar kristni, samfélags og menningar, að hér væri einn veikasti hlekkurinn, ættu þeir fullt færi á að nýta sér það, með allt það ferðafrelsi og miklu umferð til landsins, sem hér ríkir, og jafnvel í krafti þess að geta laumað liðs­mönnum öfga­samtaka til landsins undir yfirskini flótta frá stríðs­ástandi og/eða hælis­leitar vegna bágbor­inna kjara í heimalandinu. Má þar hafa hugfast, að af báðum þeim svæðum er helzt "von" múslima, en eins og kunnugt er, eru yfir 80% hryðjuverka í heiminum á þessari öld framin af meðlimum múslima­safnaða af ýmsu tagi. En jafnframt er vitað, að á síðustu tímum hafa hryðju­verkamenn beitt ýmsum óhefð­­bundnum "vopnum", tiltækum í flestum löndum, í baráttu sinni gegn Vestur­landa­mönn­um, og enn gæti sú barátta þeirra harðnað með ófyrir­leitnum vopnum. Á enginn Íslendingur með sjálfsvirðingu að stuðla að því, að færi verði gefið á almenningi með ákvörðunum byggðum á óraunsæi, óskhyggju og andvaraleysi.

Við eigum m.a. að nýta okkur aðildina að NATO til að varnar­bandalagið leggi fram bæði tækjabúnað, sem okkur kann að vera nauðsynlegur, þjálfun lögreglu­manna til að fyrirbyggja og glíma við hryðjuverk og aðgang að gagna­bönkum þeirra aðildar­þjóða sem skráð hafa grunsam­lega einstaklinga, en á móti getum við miðlað upplýs­ingum til baka, ef einhverjir þeirra eiga leið hér um, og mun það síðastnefnda reyndar nú þegar í gangi með virkum hætti að einhverju leyti (sbr. hér). FRH.

PS.  Skoðanakönnun stóð yfir á vef Útvarps Sögu um helgina og niðurstaðan birt nú í hádeginu. Þar var spurt: Ertu andvíg/ur vopnaburði lögreglu? NEI sögðu 81,43%. JÁ sögðu 16,43%, en hlutlaus voru 2,14%. Þetta styður í raun þær aðgerðir, sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip til nú um helgina.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Þjóðaröryggisráð fundar í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gripið verður til æ betri varnarkerfa gegn óvinum þjóðfélagsins

Ánægjuleg er sú tækniframför sem þýzka lögreglan er nú að koma í gagnið: and­lits­grein­ing á lest­ar­stöðvum "í því skyni að hjálpa lög­reglu að finna hryðju­verka­menn."

Thom­as de Maizi­ere inn­an­rík­is­ráðherra sagði að tækn­in verði prófuð á sjálf­boðaliðum á Su­ed­kr­euz-stöðinni í Berlín og að gef­ist til­raun­in vel verði hún inn­leidd á fleiri lest­ar­stöðvum. 

„Við höf­um nú þegar mynd­bands­eft­ir­lit á lest­ar­stöðvum. En við höf­um ekki getað sett mynd af hryðju­verka­manni í kerfi sem læt­ur okk­ur vita þegar hann kem­ur í mynd,“ sagði Maizi­ere í viðtali við dag­blaðið Tagespieg­el. „Reyn­ist tækn­in áreiðan­leg ætti hún líka að vera notuð til að finna ann­ars kon­ar glæpa­menn.“ (Mbl.is)

Þannig reynist sókn alþjóðlegra glæpamanna gegn almenningi verða til þess með eins konar pendúls-áhrifum, að gripið verði til æ betri varnarkerfa.

Sam­kvæmt frétta­skýr­ingu Tagespieg­el er ekki lík­legt að nýja kerfið verði fyr­ir laga­legri mót­stöðu vegna þess að það yrði aðeins notað til að finna þá sem liggja und­ir grun. Þannig bryti það ekki á rétt­ind­um þeirra sem koma rann­sókn­inni ekki við. 

Hér á Íslandi þurfum við að gæta þess, að meint persónuvernd verði ekki látin ganga fyrir öryggi almennings.

Nýjasta stóra hryðjuverkið í Þýska­landi var mann­skæð árás á jóla­markaði í Berlín árið 2016 þegar maður frá Tún­is keyrði flutn­inga­bíl á mann­fjölda og drap tólf manns.

JVJ.


mbl.is Greina andlit á lestarstöðvum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsamleg varúð gagnvart möguleikanum á hryðjuverki

Það er eðlilegt, að Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu hafi varann á sér vegna sam­komu­halds sumars­ins og óski eft­ir áhættu­mati grein­inga­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra vegna hryðju­verka­ógn­ar sem vof­ir yfir Evr­ópu­löndum, enda tryggjum við ekki eftir á. 

Í frétt­um Stöðvar 2 í kvöld hafði

... frétta­stof­an eft­ir Ásgeiri Þór Ásgeirs­syni, yf­ir­lög­reglu­þjóni hjá Lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, að lög­regla muni óska eft­ir mati grein­ingar­deild­ar­inn­ar í tengsl­um við þær hátíðir sem haldn­ar verða í höfuðborg­inni í sum­ar. „Til þess að við get­um bet­ur markað þær ör­ygg­is­ráðstaf­an­ir sem við get­um gripið til,“ sagði Ásgeir.

Við blasir, að Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu ætlar ekki að gleypa við þeim fullyrðingum Guðlaugs Þórs utanríkis­ráðherra, að hér sé lítil hryðjuverka­hætta, en grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hefur að undanförnu metið hættu­stig vegna mögu­legra hryðju­verka á Íslandi "í meðallagi".

Í nokkr­um þeirra hryðju­verka­árása sem framdar hafa verið í Evr­ópu á und­an­förn­um miss­er­um hafa stór öku­tæki verið notuð til þess að aka á gang­andi veg­far­end­ur og marg­ir látið lífið eða örkuml­ast. Slíkt veki upp spurn­ing­ar um það hvort hætta sé á slík­um aðgerðum hér á landi,

segir ennfremur í frétt af þessu á Mbl.is.

Hér eru of mikil mannleg verðæti í húfi til að menn geti bara yppt öxlum og talið ekkert geta breytzt í þessum efnum hér á Íslandi. Það þarf ekki nema einn erlendan vígamann hingað til að hann geti fengið sér öflugan bíl til að aka yfir mannfjölda. Þar skiptir miklu máli að forvarnir og eftirlit sé í lagi, m.a. með bílaleigum, en hér skal einnig minnt á þann lærdóm Frakka af Nice-hryðju­verk­inu mann­skæða, að öflugar veghindranir með reglu­bundnu millibili, þar sem mikill mann­grúi kemur saman, getur takmarkað, jafnvel lágmarkað áhrifin af slíkri fjölda­morðs­tilraun.

Jafnvel brezka lögreglan nagar sig nú í handarbökin fyrir að hafa ekki fylgzt nógu vel með öfgamúslimum sem búið var að benda henni á fyrir nokkrum misserum, en hún skellti skollaeyrum við þeim ein­dregnu viðvörunum, og því fór sem fór, að bæði Manchester- og Lundúna­hryðju­verkin fyrir hvítasunnuna dundu yfir óviðbúna brezku þjóðina. 

Látum ekkert í þessa áttina gerast hér!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Óska eftir áhættumati á hryðjuverkaógn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ærnar ástæður til að gæta fyllsta öryggis tónleikagesta og annarra við fjöldaatburði

Rokk­hátíðin Rock am Ring í Nür­burg í Þýzka­landi er örugg­lega ekki sú síð­asta til að verða aflýst eða frestað vegna hryðju­verka­ógn­ar. 

Búist er við að um 85 þús­und manns sæki hátíð­ina sem átti að standa yfir í þrjá daga. Skipu­leggj­end­ur hátíðar­inn­ar segja að lög­regl­an hafi kraf­ist þess að hátíðin yrði stöðvuð og svæðið rýmt. Þeir segj­ast aðstoða lög­regl­una eft­ir fremsta megni en von­ast til að hátíðin geti haldið áfram á morg­un [laugardag 3/6].

Í yf­ir­lýs­ingu frá lög­regl­unni seg­ir að ákveðin gögn hafi bent til yf­ir­vof­andi hættu og að ekki hefði verið hægt að úti­loka hryðju­verka­ógn. (Mbl.is)

Öryggi tón­leika­gesta sé for­gangs­atriði, seg­ir lögreglan og horfir þar eflaust til tónleikanna í Manchester Arena (22 drepnir) og í Bataclan-tónleika­höllinni í París, þar sem 89 manns voru drepnir í hryðju­verkum ISIS-manna 13. nóv­em­ber 2015 og alls 130 manns að meðtöldum öðrum fórnarlömbum í borginni. 

En nú þegar er eðlilega verið að kosta miklu meira til en áður hefur tíðkazt vegna slíkra fjölda­atburða:

Ákveðið var að auka ör­ygg­is­gæslu á Rock am Ring eft­ir árás­ina í Man­chester og um 1200 manns hafa sinnt þar gæslu. (Mbl.is)

Enginn smáhópur þar. Og einnig hér á Íslandi þarf að gæta öryggis almenn­ings, þar sem margir koma saman. Vanræksla í því efni á ekki lengur að koma hér til greina, enda eiga óskráðir meðlimir öfga­samtaka auðveldan aðgang að Íslandi, m.a. frá Skandinavíu, og hafa nú þegar átt hér leið um landið.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Hátíð stöðvuð vegna hryðjuverkaógnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hyggst Sigmundur Davíð breyta einhverju verulegu í grundvallar­atriðum, eða vill hann andlitslyftingu þess gamla?

Eðlilegt er að spurt sé, m.a. með hliðsjón af góðri hvatningu Guðm. Jónasar Krist­jáns­­sonar á Moggabloggi hans:

Hvað boðar Sigmundur og Framfara­félagið?

   Fróðlegt verður að vita hvað pólitísk skilaboð
Sigmundur Davíð hefur að bjóða í Rúg­brauðs­gerð­inni
nú á laugar­dags­morgun.

  Verður þetta enn einn kjafta­klúbburinn með miðju-
moðs-ívafi, opinn í alla enda, já svokölluð samræðu-
stjórnmál, sem hingað til hafa engu skilað nema enn 
meiri pólitískum glundroða, eða verður eitthvað bita-
stæðara í boði? Já t.d. í einhverjum pólitískum takti
við það sem hefur verið að gerast og gerjast í stjórn-
málum beggja vegna Atlantsála síðustu misseri?

  Verður hinum pólitíska rétttrúnaði á Íslandi með
RÚV-liðinu í forsæti settur stóll fyrir dyrnar? Og
hvað með þjóðhyggjuviðhorfin sem nú fara sigurför um
Evrópu í dag? Já hvað með Evrópumálin, s.s. Schengen-
ruglið, EES, sem þarfnast mikillar endurskoðunar, auk 
hinna stórgölluðu útlendingalaga, og stjórnleysið í
hælisleitenda-og flóttamannamálum? Að ógleymdri íslams-
væðingu Evrópu og fyrirhugaðri moskubyggingu á Íslandi?

   Verður skautað fram hjá öllum slíkum pólitískum
stórmálum? Hitamálum! [...]

Já, þannig má spyrja með Guðm. Jónasi, en ætli svörin komi fram? Þorir Sigmundur fremur en aðrir í Sjöflokknum á þingi að taka á þessum grund­vallarmálum, sem varða framtíð landsins og barna okkar svo miklu?

Það er ekki undarlegt, að þessi gagnrýnandi nefni RÚV í sinni upptalningu, en jafnvel Fréttablaðið sér fáránleikann í því, hvernig Rúv er "stríðalið" af ríkinu og einkareksturssinnuðum (!) stjórnvöldum á sama tíma og aðrir fjölmiðlar eru að deyja út vegna fjárskorts, sbr. þennan skelegga leiðara Kristínar Þorsteinsdóttur aðalritstjóra í blaðinu í dag: Ohf. er bastarður.

Svo skal að endingu minnt hér á merkilega frétt sem birtist hér árdegis, líklega fyrst hér, af öllum fjölmiðlum íslenzkum (en RÚV þagði um málið í hádeginu!):

Bretland hýsir 23.000 jíhadista (fylgismenn heilags stríðs). Huge scale of terror threat revealed (The Times)

Jón Valur Jensson.


mbl.is Breytt stjórnmál kalla á viðbrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitrað fyrir Robert Spencer á Íslandi

Af frásögn hans og af trúverðugleika að dæma, sem fundarmenn kynntust um daginn, og af rannsókninni á spítala er ljóst, að það er engin ástæða til að bera brigður á þann alvarlega atburð, að hér á landi var reynt að eitra fyrir þessum fræga rithöfundi (12 bóka höfundi m.m.).

Ofstækið gegn þessum manni fekk að birtast hér strax í aðdraganda fyrir­lesturs­ferðar hans, og það er ekki að undra, að

Spencer fer ... hörðum orðum um um­fjöll­un fjöl­miðla og annarra um heim­sókn hans til lands­ins. Fjöl­miðlar hafi verið upp­full­ir af frétt­um um að vond­ur maður væri á leiðinni til lands­ins og rætt við þá nokkra tugi ein­stak­linga sem mót­mælt hafi komu hans. Hins veg­ar hafi ekki verið leitað eft­ir viðbrögðum hans sjálfs.

Ein sjón­varps­stöð hafi tekið viðtal við hann í tengsl­um við fund­inn en fréttamaður­inn hafi verið upp­tek­inn af meintri ábyrgð hans á morðum norska fjölda­morðingj­ans And­ers Brei­vik en Brei­vik hef­ur vísað í skrif Spencers. Spencer seg­ist ekki frek­ar geta borið ábyrgð á gerðum Brei­viks en Bítl­arn­ir á gerðum banda­ríska fjölda­morðingj­ans Char­les Man­son. (Mbl.is)

Og honum leynist ekki, hvernig ástandið er hér í fjölmiðlaheiminum, þar sem við sjálf vitum, hve uppivöðslusamir og "héraðsríkir" vinstri menn hafa verið, sér í lagi í ríkisfjölmiðunum, og vísvitandi margbrotið þar hlutleysisreglur og kröfur um hlutlægni í frásögnum, sem þeim er ætlað að hlíta, og gert þetta bæði í orði og með niðurþöggun fréttnæmra hluta.

Í beinu framhaldi af ofangreindri tilvitnun segir Robert Spencer í viðtali við blaðamann Mbl.is og bendir hér á kýlið:

Hins veg­ar væri ljóst af þessu að ís­lenskir fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn vildu ekki að al­menn­ing­ur ræddi íslam­svæðingu og íslam­isma. Þeir sem berðust gegn því teldu sig án efa vera að gera göf­uga hluti en hefðu með fram­göngu sinni gert fólk eins og hann að skot­mörk­um. Fyr­ir vikið kæmi það hon­um ekki á óvart að reynt hefði verið að eitra fyr­ir sér.

Dæmigert var, að ekki einn einasti áberandi stjórnmálamaður sótti fundinn góða í Grand-hóteli í liðinni viku. Samt hefði þessi afburðagreindi ræðumaður getað frætt þá um svo margt sem þeir ekki vissu!

Það verður ekki látið nægja að segja frá þessu í fjölmiðlum, heldur unnið að rannsókn á þessari alvarlegu árás eins og full ástæða er til.

Til eru upptökur á veitingastaðnum, þar sem samskipti Spencers og mannanna tveggja áttu sér stað, og á spítalanum liggja fyrir þau gögn sem benda til að honum hafi verið byrlað eitur. Og alveg er ljóst, að þetta er ekki komið til í neinu skjóthugsuðu óðagoti, heldur er um glæp að yfirlögðu ráði að ræða, enda ber venjulegt fólk ekki á sér eitur dagsdaglega! Og greinilega hefur Robert Spencer því verið veitt eftirför af fundinum eða með öðrum hætti njósnað um ferðir hans.

Grím­ur Gríms­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ist aðspurður í sam­tali við mbl.is geta staðfest að slíkt mál hafi komið inn á borð lög­regl­unn­ar. Rann­sókn á mál­inu sé á frum­stigi og verið að afla gagna um það. (Mbl.is)

Mál þetta er allt okkur til áminningar um, að átök islamista og fylgismanna þeirra við vestræna aðila hafa nú þegar náð hingað til Íslands. (Áður er vitað um a.m.k. tvö dæmi um komu manna hingað með tengsl við hryðju­verka­sam­tök.) Þetta er vænt­an­lega rann­sóknar­mál líka fyrir okkar þjóðarörygg­isráð og þá deild lögreglunnar sem sér um varnir gegn hryðjuverkum.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Telur að eitrað hafi verið fyrir sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað fyrir okkur að læra af? Flóttafólk frá Sýrlandi fremur fáa glæpi meðal þýzkra, en hælisleitendur marga

Þessi frétt á Eyjunni 30. apríl mun hafa farið fram hjá mörgum:

"Glæpum hælisleitenda í Þýskalandi fjölgar um meira en 50%

Thomas de Maizere, innanríkisráðherra Þýskalands.

Nýjar tölur sem birtar voru fyrir skömmu varpa ljósi á gríðarlega aukningu glæpa sem hælisleitendur fremja í Þýskalandi. Margir óttast að þessar tölur verði nýttar af hægriöflum í Þýskalandi í aðdraganda þingkosninga sem fram fara í landinu í september. Samkvæmt innanríkisráðuneytinu sem tók saman tölurnar fjölgaði tilkynningum um glæpi sem talið er að hælisleitendur hafi borið ábyrgð á um 52,7% frá 2015 til 2016.

Þetta er ekki eitthvað til að líta framhjá. Þeir sem fremja alvarlega glæpi hér missa þar með rétt sinn til að dvelja hér,

segir Thomas de Maizere, innanríkisráðherra Þýskalands.

Samkvæmt tölunum eru hælisleitendur grunaðir um að hafa framið 174.438 glæpi árið 2016. Fjöldi þeirra í Þýskalandi jókst mikið á sama tíma en hækkunin var samt „langt umfram“ fjölgunina segir Maizere.

Hlutfall þeirra sem grunaðir eru og eru af erlendu bergi brotnir, einkum hælisleitenda er hærri hjá almennum borgurum.

Innanríkisráðherrann varar þó við því að allir hælisleitendur séu dæmdir vegna glæpa lítils minnihluta.

Við getum ekki látið flóttafólk sem býr meðal vor liggja undir stöðugum grun. Mikill meirihluti býr með okkur og fylgir lögum okkar og reglum.

Flestir glæpirnir eru framdir af síbrotamönnum og einungis 1% hælisleitenda bera ábyrgð á 40% allra þeirra glæpa sem hælisleitendur fremja. Flóttafólk frá Sýrlandi er samkvæmt tölfræðinni ólíklegra til að fremja glæpi en þeir sem koma frá öðrum ríkjum.

Þeir sem koma frá Balkanskaga, Marokkó, Alsír og löndum sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum fremja flesta glæpi en þeir eiga einnig litla möguleika á að vera veitt hæli.

Heildarfjöldi glæpa í Þýskalandi dróst eilítið saman í fyrra en glæpir sem framdir eru af öfgasinnum á hægri væng stjórnmálanna jukust um 14,3% prósent. Árásum á flóttamannahæli fækkaði úr 1031 árið 2015 niður í 995 í fyrra. Telegraph greinir frá."

-----------------------

Stefnir í að Ísland verði mesta fóstur­eyðinga­land Norður­landa og þótt víðar væri leitað!

Fjölgun fóstureyðinga í 1021 í fyrra og HRIKALEG áform alþingismanna um langtum róttækari lagaheimildir gefa tilefni til að minna á, að Íslenska þjóð­fylkingin, sem er kristinn flokkur, ólíkt flokkunum sjö á Alþingi, samþykkti eftirfarandi ályktun á landsfundi sínum 2.apríl sl.:

"Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýfram­komnum hugmyndum um róttækar breyt­ingar á fóstur­eyðinga­löggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstur­eyðingum."

Hér var um ánægju­lega ákvörðun að ræða í stefnu­málum flokksins og full sátt um hana.

En með  fjölgun fóstureyðinga um næstum 100 milli ára (úr 926 árið 2015) þá er tíðnin hér komin upp í 13 fóstur­eyðingar á hverjar þúsund konur á frjósemis­aldri (15-49), en eru 13,3 á hverjar 1000 konur á Norður­löndunum. Með "líber­alíseringu" laganna frá 1975 -- með því að gera þetta formlega að "sjálfs­ákvörðunarr­étti" konunnar einnar og með lengingu fósturvígs­heimildanna úr 12/16 vikum upp í fullar 22 vikur -- stefnir þess vegna í, að Ísland verði mesta fóstur­eyðinga­land Norður­landa og þótt víðar væri leitað!

Gegn þessu mun einn flokkur standa og veita ábyrgðarlausum og gersamlega óupplýstum alþingismönnum fullt aðhald. Sá eini flokkur er Íslenska þjóð­fylkingin.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Fjölgun fóstureyðinga ekki óvenjuleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband