Vinstri græn höfðu fram undir þetta næstmest fylgi, en hafa nú afhjúpað sig sem andstæðinga nauðsyn­legra varna almennings gegn hryðjuverkum!

„Sérsveitarmaður með byssu á engu eftir að breyta ef einhver hefur ein­beittan vilja til að valda fólki skaða,“ ritar fávís Líf Magneu­dóttir, forseti borgar­stjórn­ar, borgarftr. VG, og telur "nær­tæk­ara ... að setja saman teymi áfalla­streitu­sérfræð­inga eða hjálpar­sveitar­manna til að stíga inn í ófremdar­ástand og hryðju­verk. Gerði meira gagn en sérsveitar­maður með byssu."

Af hverju annaðhvort eða?! Þvílíkur glópur, sem valin hefur verið sem fulltrúi almenn­ings í borgar­stjórn! Og þvílík fáfræði að átta sig ekki á því, að snögg viðbrögð lögreglu eru einmitt þau úrræði sem nú þegar hafa bjargað tugum og hundruðum manna frá því að vera sölluð niður af hríðskota­byssum illræðis­manna eða keyrð niður af öðrum eins islamist­ískum brjálæð­ingum á flutn­inga­bílum (sbr. hryðjuverkið í Nice, sem eitt tók 81 mannslíf) eða stungin svöðu­sárum tugum saman.

Líf Magneudóttir er prestsdóttir og forseti borgarstjórnar!

Hér þarf marga konar viðbúnaður að koma til. Þetta, sem Líf nefnir, er bara endinn á spýtunni. En verði hryðjuverkavarnir engar, eins og hún virðist kjósa, fá áfalla­streitu­sérfræð­ingar sennilega margfalt fleiri verkefni, sem setja þá sjálfa í brýna þörf fyrir áfalla­streitu­meðferð um langan tíma!

Það gengur ekki að vera með svona ábyrgðar­lausa pólitíkusa eins og þá fulltrúa Vinstri grænna, sem hver eftir annan og undir forystu sjálfs formanns­ins hafa verið með grófar yfir­lýsingar í þessu máli, sem beinast í raun að lögreglunni og yfirstjórn almanna­varna. Þau ættu að láta fagmennina um verkin, eins og tíðkast um þetta meðal annarra þjóða, sem gefa ekki ungæðislegum viðhorfum vinstri-pacifista neitt færi á því að hafa áhrif á landvarnir og löggæzlu í brýnustu öryggismálum.

Svo er þetta einmitt sá flokkurinn, sem ásamt Pírötum og leifum Samfylkingar og hverfandi Bjartri framtíð vill stórauka hingað flæði flóttamanna og hælis­leit­enda, þrátt fyrir að úr hópum þeirra (m.a. frá Írak og Afganistan) koma hingað menn sem naumast hafa sloppið við að vera þátttakendur í borgara­styrjöldum og kunna þannig "til verka"! Þetta eru þeir hópar, þar sem marg­falt meiri líkur eru á því að við fáum útsendara ISIS og annarra hryðjuverka­samtaka heldur en frá því íbúamengi, sem fyrir var hér í landinu.

En VG heldur áfram í sinni vanvizkulegu andstöðu við varnir landsins og andvaraleysi frammi fyrir þeirri ógn, sem steðjað hefur að ýmsum nágranna­þjóðum okkar.

Með fordóma sína gegn landvörnum hefur hin lítt reynda, sæta friðardúfa Katrín Jakobsdóttir, sem skortir mjög á víðsýni í þessum málum öllum, ekkert erindi í Þjóðaröryggisráðið, sem nýstofnað er. Með því að tala sífelldlega gegn örygg­is­ráðstöfunum lögreglu, sem ná aðeins til tiltekinna viðburða, er hún að reyna að grafa undan vörnum almennings. 

Og í þessu tekur þátt Fréttablaðið, sem ítrekað slær upp skopmyndum á leið­arasíðunni, þar sem sérsveitarmenn á útifundum eru búnir vélbyssum, ólíkt því sem er í reynd, að þeir eru búnir skammbyssum. Hystería vinstri manna gegn vopnabúnaði nær engri átt, og minna má þá á, að margoft hefur Landhelgis­gæzlan þurft að manna fallbyssur sínar og skjóta viðvörunarskotum og með þeirri beitingu vopnavalds tekizt að þvinga erlenda landhelgisbrjóta til hafnar og leiða þá fyrir rétt, fyrir utan enn eitt leynivopn LHG: frægt, en einfalt valdbeit­ingartæki sem lamaði brezka togara til ólöglegra veiða hér!

Og rétt eins og sérsveitin hefur nú þegar meðal íslenzkra borgara komið í veg fyrir að úr harmleikjum yrði enn meiri skaði en átti sér stað, þá getur það sama enn frekar átt sér stað, ef hér kemur upp hryðjuverk öfgamanna.

  • Á örfáum mínútum tókst vopnaðri lögreglu að koma í veg fyrir, að hatursfullur vinstrimaður næði að salla niður fjölda bandarískra þingmanna í gærmorgun
  • Án vopnaðar lögreglu í Lundúnum hefðu hnífaárásamennirnir fyrir nokkrum dögum getað haldið áfram að drepa fjölda manns.
  • Án viðnáms frönsku lögreglunnar hefðu hryðjuverk þar í landi orðið enn mannskæðari.

Er þetta óskamynd Lífar Magneudóttur og félaga hennar í VG: að hryðju­verka­menn fái fullt svigrúm til að stunda fjöldamorð án tafarlausra viðbragða vopnaðrar lögreglu?

Lítum svo aftur á innflytjendamálin60% fjölg­un um­sókna um vernd milli ára er ein nýjasta frétt dagsins. 

Heild­ar­fjöldi um­sókna það sem af er ári er 420. Fjölg­un­in sam­an­borið við árið 2016, bendi enn til þess að fjöldi um­sókna um alþjóðlega vernd á ár­inu geti orðið á bil­inu 1.700 til 2.000. (Mbl.is)

Af 82 umsækjendum um alþjóðlega vernd í maí 2017 voru flest­ir frá múslima­löndunum Alban­íu (29) og Írak (12), en 46% um­sækj­enda ríkj­um Balk­anskag­ans (sem innifelur Albaníu, Makedóníu og Kósóvó, öll ríki með meirihluta múslima).

Og taka menn ekki eftir þessu í fréttinni: "78% um­sækj­enda voru karl­kyns og 22% kven­kyns." En hvers vegna ættu karlmenn að þurfa á hæli að halda þrisvar og hálfu sinni fremur en konur?! Eru þetta kannski fyrrverandi stríðs­aðilar frá Írak eða islam­istar áfjáðir í að komast til Vestur-Evrópu? Hvað vitum við, og hvað veit Útlendingastofnun? Og hvað vita þessir ábyrðar­lausu pólitík­usar í borgar­stjórn og á sjálfu Alþingi? Ungir karlmenn frá múslima­löndum -- á í alvöru að setja þá fremsta á biðbekk hælisleitenda á Íslandi? Teldu okkar nágrannaþjóðir, með sína reynslu, það skynsamlega forgangsröðun? Af hverju ekki að vísa þessum mönnum frá án tafar?

S.k. "efn­is­leg meðferð" innflytj­endamála kostar okkur nú þegar milljarða á hverju ári eða sem nemur einum til tveimur Dýra­fjarðar­göngum. Þótt minnihluti umsækjenda sleppi inn, eftir dýrkeyptar langdvalir hér á landi, þá er eitt sem víst er, að það verður áfram reynt, með hjálp fimmtu herdeildar hér, að troða hingað inn fólki frá múslimalöndum þar sem jafnvel ekkert stríðsástand ríkir. 

En þessi afhjúpun Vinstri grænna á eigin vanþekkingu og varna-andstöðu kann þó að hafa eitt gott í för með sér: að íslenzkur almenningur snúi baki við þess­um flokki og öðrum ámóta, þar sem ekki er tekizt af ábyrgð á við það hlutverk að gæta öryggis íslenzkra borgara og ferðamanna þar að auki, gleym­um því ekki. Ísland á ekki að verða eina Natólandið þar sem engar varnir eru fyrir almenning gegn hryðjuverkum, því að slíkt spyrðist þá brátt til þeirra ill­ræðis­samtaka, sem jafnan reyna að sæta lagi til að valda sem mestum skaða og hörmungum, ekkert síður meðal þeirra þjóða sem hafa krossinn í fána sínum.

Og svo er það Dagur B. Eggertsson, sem vill helzt leggja niður hátíðarhöld á 17. júní, af því að þau eru svo mikil móðgun við fjölmenningarstefnu hans!!! En í Svíþjóð vakti slík tillaga enga lukku hjá lesendum Dagens Nyheter í gær og fyrradag. Tveir sænskir prestar í múslimaborginni Malmö höfðu lagt til, að sænska kirkjan tæki afstöðu gegn þjóðhátíðardeginum og færi fram á að hann yrði lagður niður, enda sé hann "barn síns tíma og eigi að heyra sögunni til, auk þess sem þeir segja að föðurlandsást og þjóðernisstefna leiði ekkert gott af sér" (sjá frétt hér á vef Útvarps Sögu). En þvílíkar virðast einmitt öfgar borgar­stjórans í Reykja­vík, og er hann nú bara sakleysis­legur Samfylkingar­maður! En 83% lesenda Dagens Nyheter reyndust hins vegar ósammála afstöðu Dags B. og sænsku prestanna tveggja!

Jón Valur Jensson.


mbl.is 60% fjölgun umsókna um vernd milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Fyrrv. alþm. og ráðherra Alþýðuflokksins, Sighvatur Björgvinsson, ritar skarpa og hvassa gagnrýni á þess fráleitu afstöðu Lífar í aths. við frétt Eyjunnar af ummælum hennar.

JVJ.

Íslenska þjóðfylkingin, 15.6.2017 kl. 16:22

2 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Sighvatur Björgvinsson ritaði um þetta mál á Eyjuna í andsvari gegn tillögum Lífar:

"Skyldi það hafa tekið sérfræðinga í áfallastreituröskun skemmri tíma að stöðva hryðjuverkamennina í London, sem réðust með hnífum á saklausa vegfarendur, en það tók vopnaða lögreglumenn? Það tók vopnuðu lögreglumennina 8 mínútur. Skyldu morðingjarnir hafa haldið hlífiskildi yfir þeim sérfróðu áfallastreituröskunarmönnum, sem mætt hefðu þeim óvopnaðir og bara tekið þeim vel eða hefðu þeir beitt hnífunum á þá líka? Hvort þykir Líf vera sennilegra? Hlutverk lögreglumanna er að gæta öryggis samborgaranna og beita til þess þeim ráðum, sem þeir eru þjálfaðir til. Hlutverk sérfræðinga í áfallastreituröskun er að hjálpa aðstandendum þeirra, sem fyrir hryðjuverkamönnum falla, eftir að verknaðurinn hefur verið framinn. Hvorugur þessara hópa - löggæslumenn og sérfræðingar í áfallastreituröskun - getur komið í stað hins þegar á reynir. Ekki fremur en Halldór Halldórsson getur komið í stað Líf Magneudóttur í borgarstjórn Reykjavíkur - eða Líf Magneudóttir í stað Halldórs Halldórssonar."

(1) http://eyjan.pressan.is/frettir/2017/06/15/forseti-borgarstjornar-vill-bregdast-vid-hrydjuverkum-med-serfraedingum-i-afallastreitu-fremur-en-sersveitarmonnum/

Íslenska þjóðfylkingin, 15.6.2017 kl. 18:46

3 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Albert Jón Sveinsson ritar á Eyjuvefsíðuna:

Nú verður Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að fara að athuga kaffi-latte-vélarnar í veitingarhúsum í miðbæ Reykjavíkur, það getur ekki verið önnur skýring á þessu. Að detta það í hug að fara senda áfallastreitusérfræðinga eða hjálparsveitarmann þar sem er verið að fremja hryðjuverk, það toppar allt.

Íslenska þjóðfylkingin, 15.6.2017 kl. 20:14

4 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

En Þór Saari svara þá:


Hárrétt hjá Líf. Ein af fáum röddum skynseminnar í röðum stjórnvalda í þessu máli. Að sjálfsögðu á að aflýsa hátíðarhöldum í Reykjavík á 17. júní af þessu tilefni úr því það er ekki hægt að halda þau án vopnaðrar "verndar".

 

Reykjavík, svarar Þór:

Hvað ætli Bretarnir hefðu gert? Aflýst öllum samkomum og slökkt ljósin. Nei ekki vera kjáni Þór.

 

 

Sigurður Sigurðsson

Páll Hrannar Hermannsson Þór hefur væntanlega ekkert val - hann er kjáni ;) 

Íslenska þjóðfylkingin, 15.6.2017 kl. 20:20

5 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Og enn fleiri:

Gunnar Einarsson 

Það er breyttur heimur og fólk verður að átta sig á því.
Það þýðir ekki að bíða eftir að fólki verði slátrað í stórum stíl eins og við verðum vitni að í erlendum borgum. Það myndi einhver vera kallaður til ábyrgðar ef eitthvað skeður og menn væru sofandi á verðinum. það hefur stundum verið talað um að byrgja brunninn áður en barn dettur í hann og það á vel við hér.
Við erum að flytja inn fólk í stórum stíl sem er ekki með vegabréf og engin veit deili á og það er tímasprengja hvenær það kemur okkur í koll.

 

Fádæma fátæklegur málflutningur og ber merki um að konan hefur minni en engan skilning á framvindu slíkra mála. Hreint út sagt aumkunarverð kona.

 

Fáum bara fjölskyldu þína til að verja okkur Frú Líf

 

 

Áfallastreitusérfrfræðingar yrðu til lítils gagns, en nær væri fyrir forseta borgarstjórnar að leita til líkkistusmiðanna og útfararstofanna, ef viðkomandi mundu anna verkefninu án of langra biðlista.

 

Ég velti fyrir mér hverju samsett teymi áfallastreitusérfræðinga hefðu áorkað í að draga úr skaða og stöðva terrostana í London.

 

 

Works at Ístak

Við björgunarsveitamenn tæklum hryðjuverkamennina með ísöxum og kunnum hnúta til að kefla.þá. Hvaða hnút ætli sé best að nota á svona lið?

 

 

Þessari manneskju getur ekki verið sjálfrátt !

 

 

Það hlýtur að vera eitthvað rangt haft eftir henni.... óvopnaður hjálparsveitarmaður og sérfræðingur í áfallastreituröskun gera meira gagn í hryðjuverka-aðstæðum!? Á að setja saklaust fólk í hættulegar aðstæður, sem það er ekki þjálfað til? Má ég frekar biðja um lögregluna.

 

Jóhannes Kristjánsson

Maður fer hjá sér þegar sitjandi borgarfulltrúar tjá sig. Þetta eru eins og börn að tala. Það er ómögulegt að hafa þetta fólk þarna áfram.
Mikið ósköp, ósköp væri gott ef þverpólitíska framboðið hans Binga fer fram í Rvík. Eða bara einhver vitiborinn hópur sem er líklegur til að ná sterkri kosningu.

 

Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur!

 

 

Eigum við þá að leyfa drápi og morðum að eiga sér stað án þess að bera hönd fyrir höfuð og verja okkur? Eigum við að leyfa hryllingnum að koma yfir okkur, án nokkurrar fyrirstöðu og reiða okkur bara á áfallahjálp eftir hroðaverk? Maður trúir varla að nokkur geti sýnt af sér slíkt algjört dómgreindarleysi ... nema auðvitað ef hann er VG. Líf mun ekki halda lífi lengi ef hún fer þessa leiðina.

 

Birgir Finnsson

Góða fólkið lætur ekki að sér hæða! Sífellt að slá sjálft sig til riddara á grundvelli siðferðilegra yfirburða yfir okkur hinum, og aldrei virðist Góða fólkinu líða jafn vel og þegar það útskýrir vandlega fyrir öðrum af hverju það sé þeim æðra.

Óneitanlega er þetta hvimleitt blæti hjá þeim og leiðigjörn árátta að telja sig alltaf þurfa að hafa vit fyrir öðrum. Auðvitað tekur enginn skynsamur einstaklingur undir svona fráleitan málflutning, en höfum í huga að öll athygli - ekki síst neikvæð! - herðir Góða fólkið og eflir, því fátt er betra en góður skammtur af píslarvætti til að stappa í sig stálinu.

Best er að leiða svona vitleysu hjá sér og þykjast ekki taka eftir þessu, því ef Góða fólkið fær ekki athygli þá fer því að leiðast og leita sér að einhverju öðru máli til að hneykslast á. Við fáum þá allavega smá frið fyrir þeim á meðan.

Íslenska þjóðfylkingin, 15.6.2017 kl. 20:29

6 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Og sá síðasti í bili af Eyjusíðunni:

 

Er ekki í lagi með þessa konu, hún bullar bara út í eitt, eins og VG er siður að vera á móti og vekja athygli á sjálfri sér. Ef eitthvað hefði gerst og lögreglan ekki verið á varðbergi, hefði hún galað , hvar er lögreglan? En blessunarlega sá lögreglan við þessu og er klár í slaginn og er ekki að tilkynna það sérstaklega, hún er bara klár. Það er sorglegt að vita til þess að VG fólk tali niður það sem vel er gert eins og þeirra er siður að vera bara á móti, frábært framtak hjá lögreglunni.

Íslenska þjóðfylkingin, 16.6.2017 kl. 01:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband