Bloggfærslur mánaðarins, október 2016

Íslenska þjóðfylkingin heilsar lands­mönn­um á nýjum baráttu­vettvangi

Velkomin á bloggsíðu Íslensku þjóð­fylkingar­innar!

Við horfum djarfhuga fram til kom­andi alþingis­kosn­inga, hugsjóna­fólkið í þessum unga flokki sem er kominn til að gæta hagsmuna almennings, landsréttinda í bráð og lengd og að vera afl til skynsamlegra og réttlátra stjórnarhátta.

Mörg okkar hafa nú þegar að baki baráttu fyrir landi og lýð í Icesave-málinu, þar sem við Íslendingar fórum með sigur af hólmi gegn því sem ýmsir töldu ofurefli liðs: tveimur yfirgangssömum fyrrverandi nýlenduríkjum, Bretlandi og Hollandi. 

Þá hafa margir hér reynt að standa dyggan vörð um fullveldisréttindi Íslands í ræðu og riti, en ekki sízt í vefskrifum, og borið vitni um fásinnu þess, að Íslendingar gefi eftir fyrir þeirri ásókn áhrifaafla, að við látum sogast inn í stórveldi Evrópusambandsins.

Við höfum lagt réttlætismálum lið, fjallað um kjara- og lífeyrismál, tekið þátt í verkalýðsbaráttu, félags- og hugsjónastörfum, erum með breiða starfsreynslu til lands og sjávar að baki, sem gefur okkur innsýn í kjör alþýðu, ólíkt þeim sem fæddir eru með silfurskeið í munni og áttu greiða leið að völdum í gamla Fjórflokknum.

Eins og við höfum unnið þannig kauplaust í þágu réttlætis- og þjóðþrifa­mála, þannig vinnum við einnig fyrir þennan nýja flokk, sem enn hefur engan launaðan starfsmann og ekki launaða erindreka um allt land eins og stóru flokkarnir (launaðir með ríkisframlagi, teknu af skattgreiðendum).

Við erum þó með ágætt skrifstofuhúsnæði á leigu að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði; með eigin framlögum flokksmanna höfum við getað staðið undir því, sem og nokkrum auglýsingum, skilta- og fánagerð o.fl. Einmitt nú, næstu vikurnar, vantar meira fé í hálftómann kassann til að standa undir frekara útbreiðslu­starfi, ekki sízt með ferðum í NV- og NA-kjördæmin til að safna bæði meðmæl­endum og fleiri frambjóðendum á listana. Framlög berist á styrktarreikning Íslensku þjóðfylkingarinnar, bankanr. 1161-26-4202 (kt. 420216-0330).

Þið munuð öll hafa heyrt flokk okkar atyrtran, en trúið því ekki! Við erum að sönnu eini flokkurinn sem hefur þor og dug til að hafna nýju útlendinga­lögunum og það af ærnum ástæðum, ekki sízt með hliðsjón af gjaldþrota innflytjenda­stefnu annarra norðlægra landa, sem komin eru allt of langt í háskalegu ferli sem virðist erfitt að gíra niður eftir á og haft hefur nú þegar margar sorglegar afleiðingar (sjá dæmin mörg í nýrri bók Hege Storhaug: Þjóðaplágan Íslam).

En hitt er þó fjarri öllum sanni, að við höfnum nokkrum manni vegna húðlitar hans eða trúar. Þvert á móti fordæmum við allt kynþátta- og útlendinga­hatur og viljum að vel sé gert við þá innflytjendur sem aðlagast íslensku samfélagi. 

Fyrir þá, sem vilja gerast meðmælendur framboðs okkar (án þess þar með að verða sjálfkrafa meðlimir flokksins og án skuldbindingar um það, hvað þeir muni kjósa hinn 29. næstkomandi!), er hér vefslóð á síðu með öllum kjör­dæmunum:  http://www.thjodfylking.is/kjoerdaemi 

Til dæmis er hér vefslóð beint inn á NA-kjördæmis-eyðublaðið (sem þar er svo hægt að prenta út úr tölvuprentara):
 
Fáið nöfn meðmælenda á blaðið og sendið vinsamlegast Þjóðfylkingunni, Dalshrauni 5, 220 Hafnarfirði.
 
Og hér er stefnuskrá flokksins með öllum helztu stefnumálum hans:  http://www.thjodfylking.is/stefnan

Þar gefst ykkur gott lesefni. Látum þetta nægja hér í bili. X-E fyrir Ísland og Íslensku þjóðfylkinguna!


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband