Bloggfærslur mánaðarins, október 2016

Íslenska þjóðfylkingin stendur með sjómanna­fjölskyldum og strandbyggðum landsins

Stefna okkar er "endurskoðun fisk­veiði­stjórn­unar frá grunni og frelsi í sjávar­útvegsmálum. Stór­aukið frelsi í strand­veiðum. Fisk­veiði­auðlindin verði sameign þjóðarinnar skv. stjórn­arskrá. Erlent eignarhald verði afnumið í sjávarútvegi." – Stóraukna frelsið til strandveiða merkir í raun margföldun á veiðiheimildum á bolfisk og sömuleiðis kvótalausar makrílveiðar.

 

Þá er okkar stefna líka 6% skattafsláttur af tekjum sjómanna. Sumir hafa mælt gegn sjómanna-afslætti sem "mismunun", sem ekki sé þörf á fyrir stétt sem hafi tiltölulega góðar tekjur. Þar á móti kemur, að nánast engin umræða er um að hátekjumenn í öðrum stéttum eru bæði með ofurbónusa og önnur fríðindi ofan á laun sín og setjast ekki til vinnu eftir ráðningu sína fyrr en þeir hafa tryggt sér (oft) milljónatuga-starfslokasamninga!

En enginn þarf að öfunda sjómenn, þeir leggja mikið til samfélagsins án þess að nýta samfélags­þjónustu í sama mæli og aðrir, þeir eru langtímum saman fjarri fjölskyldum sínum, vinna gjarnan 12 tíma eða lengur á dag, eru með styttri starfsævi en aðrir og meiri slysatíðni. Áhætta þeirra og framlag til þjóðlífsins verðskuldar viðurkenningu.

Þar að auki er gróði af smáútgerð jákvæður kostur, ekki löstur. Hann smyr samfélög strand­byggðanna með aukinni veltu, útsvörum og öðrum gjöldum, og það er einungis jákvætt ef efnahagur sjómanna hjálpar þeim ekki aðeins til að borga hratt niður skuldir á dýrum bátum sínum og þeim tæknibúnaði, sem þar er þörf á, heldur líka til að geta með tím­anum hjálpað börnum sínum að kaupa sér sjálf bát til útgerðar. Þá verður mun líflegra að líta til athafnalífs við hafnir landsins: dæmið snýst við, og aflaheim­ildirnar hætta að streyma þaðan til vellríkra fákeppnis­útgerða, en haldast og aukast hjá fólkinu sjálfu, með veiði­aðferðum sem aldrei geta skemmt sjávarbotninn eða gengið á fiskistofna landsins.

 

Vefsíður ÍÞ: x-e.is – thjodfylking.is – stefnuskrá: http://www.thjodfylking.is/stefnan – thjodfylking.blog.is – https://www.facebook.com/groups/447238292142338


Íslenska þjóðfylkingin hefur skynsamlega stefnu í útlendingamálum ... XE

Takið eftir, að Íslenska þjóðfylkingin er ekki haldin útlendingaandúð, hvað þá að hún sé "rasista-flokkur". Við látum engan kalla okkur það. "ÍÞ fordæmir allt kynþátta- og útlendingahatur," þótt hún vilji "herta innflytjendalöggjöf og innleiða 48 tíma regluna í málefnum hælisleitenda" í stað þess stjórnleysis sem nú ríkir í innflæði hælisleitenda, sem fimmfaldast í fjölda frá því í hittiðfyrra (127) þar til nú (7–800 á þessu ári og þar af 2/3 síðustu mánuðina frá Albaníu og Makedóníu, þar sem engin stríðsneyð er fyrir hendi).  Þessu fólki er þó boðið upp á það að gista nú fínustu hótel í Reykjavík og Hafnarfirði á kostnað þjóðarinnar, í stað þess að beita Dyflinnar-reglugerðinni og senda það tafarlaust til baka! 

Ekki bötnuðu horfurnar með samþykkt sameinaðs Sexflokksins á Alþingi á nýjum útlendingalögum sem gefa hælisleitendum "rétt" til að koma inn í landið vegabréfslausir og setjast upp á okkur! Fjölkvænismenn frá fjarlægum heims­álfum fá þar líka "rétt til að sameina fjölskyldur sínar" með því að kalla hingað foreldra sína og öll sín börn, sama hve mörg. Dæmin eru ýmis um slíka í Noregi, eins og Sómala sem gat kallað til sín 17 í fjölskyldunni (þó aðeins eina af eiginkonum sínum), en einmitt þetta er hin nýja stefna stjórnarflokkanna, í útlendinga­lögunum sem taka hér gildi 1. janúar næstkomandi: þ.e. að taka upp þá stefnu sem norrænar frændþjóðir okkar eru nú sem óðast að hafna eftir að hafa haft af henni mjög slæma reynslu, svo að vægt sé til orða tekið. Eini flokkurinn, sem stendur gegn þessu og gegn hugsanlegri islamsvæðingu landsins, er Íslenska þjóðfylkingin.

En flokkurinn "vill styðja þá innflytjendur sem aðlagast íslensku samfélagi" og er meðal annars með fjórar konur frá Brasilíu, Portúgal, Póllandi og Fil­ipps­eyjum á framboðslistum sínum. En til þess að nýbúar aðlagist hér vel og geti fallið vel að samfélaginu, m.a. í þjónustu­störfum á hjúkrunar-, elli- og aðhlynn­ingar­stofnunum, þurfa þeir að læra tungumálið að gagni. Við fögnum slíku.

Vefsíður ÍÞ: x-e.is – thjodfylking.is – stefnuskrá: http://www.thjodfylking.is/stefnan – thjodfylking.blog.is – https://www.facebook.com/groups/447238292142338/ 

JVJ.


mbl.is Fram og til baka vegna misskilnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur framboðslisti í Rvík-norður

Kjördæmisráð Ísl. þjóðfylkingarinnar í Reykjavík sendi frá sér fullskipaðan framboðslista fyrir Rvík-norður nú í kvöld. "Vekjum athygli á því að á listanum eru 3 góðir innflytjendur sem við erum stolt af að hafa í framboði E-listans!" segir Gunnlaugur Ingvarsson, oddamaður á lista flokksins í Rvík-suður.

1. Gústaf Níelsson sagnfræðingur, Reykjavík
2. Inga Guðrún Halldórsdóttir félagsliði, Reykjavík
3. Svanhvít Brynja Tómasdóttir, öryrki, fv. markaðsstjóri, Reykjavík
4. Marteinn Unnar Heiðarsson bifreiðastjóri, Reykjavík
5. Ágúst Örn Gíslason ráðgjafi, Reykjavík
6. Natalia Vico framkvæmdastjóri, Kópavogi
7. Magnús Sigmundsson rafiðnfræðingur, Reykjavík
8. Cirila Rós Jamora snyrtifræðingur, Reykjavík
9. Kristinn Snæland, eldri borgari, fv. leigubílstjóri, Reykjavík
10. Guðmundur Jónas Kristjánsson bókari, Reykjavík
11. Unnar Haraldsson trésmiður, Reykjavík
12. Hanna Björg Guðjónsdóttir vaktstjóri, Reykjavík
13. Arnór Valdimarsson flugvirki, Reykjavík
14. Hilmar Sigurðsson málarameistari, Reykjavík
15. Árni Thoroddsen kerfishönnuður, Reykjavík
16. Kári Þór Samúelsson stjórnmálafræðingur, Reykavík
17. Guðmunda Guðrún Vilhjálmsdóttir sjúkraliði, Kópavogi
18. Elena Skorobogatova íþróttakennari, Reykjavík 
19. Magnea Grímsdóttir, eldri borgari, Reykjavík
20. Andri Þór Guðlaugson verslunarmaður, Reykjavík
21. Benedikt Heiðdal öryrki, Reykjavik
22. Marta Bergmann, fv. félagsmálastjóri [Hafnarfjarðar], Garðabæ


Íslenska þjóðfylkingin fordæmir allt kynþátta- og útlendingahatur. Flokkurinn er bezti valkostur sjómanna

Þessi andstaða okkar við rasisma var alla tíð ljós frá upp­hafi og sér­stak­lega áréttuð á ný á flokks­stjórnar­fundi í fyrra­dag. Meðal ann­arra tíð­inda þaðan er form­legur stuðn­ingur ÍÞ við 6% sjó­manna­afslátt.

Þetta síðar­nefnda stefnu­mál gerir það alger­lega ljóst, að Íslenska þjóð­fylk­ingin er langbezti pólitíski valkostur strandbyggða og sjómanna­fjöl­skyldna, því að við erum bæði með margföldun strandveiða smábátasjó­manna og 6% sjómannaafslátt á stefnuskránni.

Enginn á að sjá ofsjónum yfir því, að sjómenn fái 6% afslátt frá tekjuskatti (takið eftir, að nánast engin umræða er um að hátekjumenn í öðrum stéttum eru bæði með ofurbónusa og önnur fríðindi ofan á laun sín og setjast ekki til vinnu eftir ráðningu sína fyrr en þeir hafa tryggt sér (oft) milljónatuga-starfslokasamning!)

Enginn þarf að öfunda sjómenn, þeir leggja mikið til samfélagsins án þess að nýta samfélagsþjónustu í sama mæli og aðrir, eru langtímum saman fjarri fjölskyldum sínum, vinna gjarnan 12 tíma eða lengur á dag, eru með skemmri starfsævi en aðrir og meiri slysatíðni. Áhætta þeirra og framlag til þjóðlífsins verðskuldar viðurkenningu.

Þar að auki er gróði af smáútgerð jákvæður, ekki löstur. Hann smyr samfélögin og það er einungis til aukinna framfara ef sjómenn geta hjálpað börnum sínum að kaupa sér sjálf bát til útgerðar. Það er löngu kominn tími til að þessi stétt og landsbyggðin fái að njóta nábýlis síns við fiskimið landsins. Þar hefur undir­ritaður starfað um árabil við sjómennsku bæði frá Seyðisfirði, tveimur stöðum frá Vestfjörðum og þremur höfnum hér syðra og er til vitnis um það fjör­mikla athafnalíf, sem þar var að finna, en hefur verið haldið á bremsunni og jafn­vel í nokkurri gíslingu á síðari tímum af stjórnvöldum sem hafa ekki nægan skilning á gildi frjáls atvinnurekstrar, heldur hlaða undir ríkustu útgerðirnar og selja þeim jafnvel sjálfdæmi um að leggja einstök fyrirtæki og byggðarlög í rúst, þegar það hentar þeim.

Jón Valur Jensson.


Baráttusöngur Íslensku þjóðfylkingarinnar? Nei, án efa ekki!

En þetta lag vildi ágætur, sunnlenzkur Þjóðfylkingarmaður, Reynir Heiðarsson, að yrði baráttulag ÍÞ. Hvert er álit áhorfenda, hlustenda?

Vitaskuld yrði þó opinber söngur flokksins aldrei nema á íslenzku. Þetta er einfaldlega stuðlag sem samhljómaði líklega með sigri íslenzka landsliðsins yfir Finnum, 3:2, í fyrradag. Í bezta falli gæti þetta lag, í íslenzkum búningi, orðið baráttulag fyrir ungliðadeild flokksins. En þetta var samt meira til gamans gert að sýna hér og sjá hvernig brezk rokksveit lét íslenzka baráttuandann frá ÓL í Frakklandi verða sér að innblæstri til að semja og flytja lag til heiðurs slíkri kappgirni og þeim draumum sem ungir drengir ala í brjósti sér um íþrótta­ástundun sína og hvernig hún megi verða landi þeirra til vegsauka.

Undirritaður hefur þó fengið eindregna ábendingu um, að einum stofnenda flokksins þyki þessi færsla alls ekki við hæfi á bloggsíðunni, flokkurinn sé þjóðfrelsisflokkur sem berjist fyrir fullveldi landsins og að það standi umfram allt utan þess stórveldabandalags, sem kennt er við Brussel. Taki flokkurinn upp einkennissöng, eigi það að vera Öxar við ána eða Ísland er land þitt, sagði hann og hafði þar mikið til síns máls.

RADSPITZ | ICELAND CALL | official Video

ICELAND CALL - the new Song by RADSPITZ. A great Song about will and passion. Love it - Like it - Share it!
 
Um leið og þetta er sett hér á netið viljum við hvetja velvildarmenn flokksins okkar til að taka þátt í undirskriftasöfnun meðmælenda á vegum hans. Hægt er að hafa samband við eftirfarandi aðila:
1) Skrifstofu Íslensku þjóðfylkingarinnar, Dalshrauni 5, Hafnarfirði, sími 789-6223, opin alla daga kl. 14-21.
2) Með netbréfi á netfang flokksins, thjodfylkingin@x-e.is
3) Með pósti: til Íslensku þjóðfylkingarinnar, Dalshrauni 5, 220 Hafnarfirði. 
4) Með símtali til Jóns Vals Jenssonar, 2. á E-lista í Rvk-suður: 616-9070.
 
Hér er hægt að skrá sig í flokkinn (afritið): http://x-e.is/
Hér er stefnuskrá flokksins: http://www.thjodfylking.is/stefnan
 

Hræðslubandalag Sjöflokksins útilokar Íslensku þjóðfylkinguna, þótt æ fleiri sjái þverbrestina í innflytjenda­stefnunni

Þetta gefa þeir allir út, foringj­ar bæði stjórnar- og stjórn­ar­and­stöðu­flokka á Alþingi og "Við­reisn" að auki, í frétta­skýr­ingu í nýju DV og þykj­ast ugg­laust snöggt­um skárri fyrir vikið. Allt þetta óforsjála fólk, með Sigurð Inga og Bjarna Ben. í farar­broddi og Katrínu Jakobs, Oddnýju Harðar, Óttar Proppé, Benedikt Jóhannesson (sem er skotspónn sérstakrar aðfinnslu­greinar í Mbl. í dag vegna hugsan­legra innherja­viðskipta) og Smára McCarthy í sínu föruneyti, kann fótum sínum greinilega ekki forráð. Þau ætla ekki að sjá að sér í inn­flytj­enda­málum fyrir kosn­ing­arnar, og þó er þegar farið að kvarnast úr sannfæringu sumra í flokkum þeirra.

Svo er nefnilega mál með vexti, að jafnvel innanríkisráðfrúin, Ólöf Nordal, hefur sýnt merki um, að hún sé farin að læra af reynslunni í þessu efni: "Við þurf­um kannski að herða á regl­un­um, þannig að þeir sem ekki upp­fylla skil­yrði um neyðar­hjálp verði sem fyrst send­ir aft­ur úr landi,“ seg­ir Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráðherra skv. þessari frétt í Mbl. í morgun.

Um þetta ritar Ívar Pálsson viðskiptafræðingur, einn af gleggstu mönnum á Moggabloggi:

"Nú rignir yfir Ísland hælisleitendum á röngum forsendum, þar sem t.d. 2/3 hluti þeirra í september var frá Albaníu og Makedóníu. Ekki eru það stríðshrjáð sýrlensk börn. Fullhraustir ungir menn frá þessum og öðrum löndum taka sénsinn á því að koma hingað og nýta sér upplausnarástandið sem skópst fyrir botni Miðjarðarhafs, en á okkar kostnað og með okkar fyrirhöfn." (Ber­um enga ábyrgð á þeim)

Og hann bendir á stóran meinbug á landamæravörzlu okkar: 

Auðvelt er að komast hingað eftir að búið er að lauma sér inn á Schengen-svæðið. Ef eitthvert vit á að vera í kerfinu hér, þá verður að snúa þeim umsvifalaust við sem ekki uppfylla einföld skilyrði eins og það að vera frá stríðshrjáðu landi til þess að umsóknin verði tekin til greina. Ekki á að taka mark á hælisumsókn frá þegnum landa sem eru í lagi, þótt erfitt sé að búa þar. Auðvitað er sósíalisminn ýmsum erfiður, en við getum ekki tekið á þeim mistökum annarra, nógu erfitt er slíkt hér á landi. (Lbr.jvj)

En Íslenska þjóðfylkingin er eini flokkurinn sem vill uppsögn Schengen-samningsins. Höfum þá líka í huga, að hvorki Bretland né Írland eru á Schengen-svæðinu, og hefur það hjálpað þeim að hafa meiri stjórn á innflytjendastraumnum en ella hefði tekizt.

Þá ritar Ívar:

Milljón á mann?

Íslendingar gera sér fæstir grein fyrir því hvað þessi efnahags-ferðalög ungu mannanna kosta okkur. Hver og einn sem fær þessa flugu í höfuðið að sækja um á rokbitna eldfjallaskerinu (til þess gjarnan að koma sér síðan annað) er verulega íþyngjandi fyrir kerfin hér ...

Auk Ólafar Nordal hefur fyrrverandi dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, ritað af viti og hyggindum um þessi mál, m.a. þetta (leturbr. jvj):

Jón Brynjar Birgisson, sviðsstjóri neyðarvarnasrviðs Rauða krossins, segir Rauða krossinn hafa verið viðbúinn auknum fjölda hælisleitenda hér á landi á þessu ári en ekki hafi verið búist við að svo margir kæmu í einu, líkt og hefur verið á síðustu vikum.

Allt ber hér að sama brunni og áður. Á sama tíma og nágrannaþjóðir fagna fækkun hælisleitenda, fjölgar þeim hér. Fjölgunin á einkum rætur að rekja til komu fólks frá Albaníu og Makedóníu sem á engan lagalegan rétt til að fá hér hæli en er í nokkrar vikur, mánuði og jafnvel ár á opinberu framfæri hér á meðan mál þess velkist í kerfinu – nú dragast mál á langinn hjá opinberri kærunefnd og þeim sem framkvæma brottflutning fólksins eftir úrskurð um brottvísun.

Þarna sést, í hvílíkan ólestur ríkisstjórn og Alþingi hafa komið þessum málum. En einnig þetta í sama pistli Björns er harla lærdómsríkt:

"Það er í sjálfu sér frekar nöturlegt að gamalt húsnæði Lögregluskólans skuli notað sem neyðarrými til bráðabirgða fyrir hælisleitendur. Virðist þeirri ráðstöfun tekið sem næsta sjálfsögðum hlut í fréttum í stað þess að leita skýringa á hvers vegna svona er komið í þessum málaflokki þegar unnt er að beita mun öflugri úrræðum en gert er til að draga úr fjölda þeirra sem hingað koma.

Ólöf Nordal innanríkis­ráðherra hefur lýst áhyggjum af ástandinu. Hún glímir hins vegar við sama vanda og ýmsir forverar hennar á stóli dómsmála­ráðherra sem sætt hafa gagnrýni þingmanna, vilji þeir efla varnir á þessu sviði sem öðrum.

Sé því hreyft að huga þurfi að hervörnum Íslands eða vopnum fyrir lögreglumenn reka þeir gjarnan upp ramakvein sem mega ekki heyra minnst á að allt sé gert sem lög leyfa til að stemma stigu víð ólöglegri komu fólks hingað. Hér er áhrifamikill hópur sem vill engar ráðstafanir til að verja eða vernda land og þjóð, allt á að standa opið."

En varnaðarorð hins reynda Björns Bjarnasonar hrína ekkert á frænda hans Bjarna Benediktssyni. Áfram skal fylgt í fullri meðvirkni þeirri innflytjenda­stefnu sem hönnuð var af vinstri­flokkunum á Alþingi, unz fjallið tók jóðsótt og fæddi ... ekki mús, heldur þessi lúseralög, sem fengu nafnið Útlendingalög og opna landið nánast upp á gátt frá 1. janúar næstkomandi, en þar fá hælisleitendur t.d. "rétt" til að farga vegabréfum sínum og eiga samt heimtingu á langtíma-afgreiðslu hér og fínu uppihaldi, jafnvel þeir sem ljúga því til, að þeir séu á barnsaldri þrátt fyrir augljóst útlit um annað. Að vísu mætti þá taka af þeim lífsýni til að ganga úr skugga um aldurinn, og er þá ekki málið farsællega leyst? Ekki aldeilis, því að þá búa þessi Útlendingalög til nýja undankomuleið: að ekki megi neyða neinn til að gefa lífsýni, af því að það brjóti í bága við lög um persónuvernd! Og svo mega hælisleitendur flytja stórfjölskyldur sínar hingað, jafnvel allt að 20 manns hver, til að "sameina fjölskylduna" í nýrri heimsálfu!

En nógu slæmt var ástandið fyrir: Hælisleitendum fjölgar úr 127 árið 2014 í um 700-800 á þessu ári. Ánægjulegt hlýtur það að vera fyrir Unni Brá Konráðs­dóttur (sem sendi tveimur stórum, albönskum fjölskyldum gratís vegabréf án lagaheimildar um síðustu jól), að um 2/3 þeirra eru Albanir og Makedóníumenn og frá síðarnefnda landinu mest albanskt fólk, en þar í landi er meirihlutinn múslimskur.

Engin furða að handarhöggsmaðurinn Salmann fagni þessu og hafi jafnvel, hinn 15. ágúst sl., látið sig hafa það að taka sér stöðu á Austurvelli við hlið Samtak­anna 78 til að fylkja sér um Útlendingalögin, þótt máttar­stólpar trúboðs strang­trú­ar-súnníta á Vestur­löndum, wahhabítarnir í Saudi-Arabíu, kasti samkyn­hneigðum fram af klettum og háhýsum í því pílagríma­landi hins meinta höfuðspámanns.

En það er engan bilbug að finna á forystuliði Sjöflokksins í pólitíska rétttrún­aðinum. Jafn-harðákveðið er það í því og Salmann Tamimi að lýsa Íslensku þjóðfylkinguna óalandi og óferjandi, og samt er hún einfaldlega að tjá hér hógværan þjóðarandann og þó fastan fyrir, þegar á hann er gengið, rétt eins og í Icesave-málinu, þegar þjóðin hafði vit fyrir sínum stjórnmálamönnum.

En þannig talar Sigurður Ingi forsætisráðherra, nýbúinn að finna sér annan og skæðari andstæðing en forvera sinn: "Ákveðin stef í grunnstefnu Íslensku þjóð­fylkingarinnar eru ósamrým­anleg stefnu Framsóknar­flokksins."

Og hin siðprúða Oddný Harðardóttir vill ekki að minnsti grunur falli á hana um husanlegt makk við þennan flokk: "Ég get algjörlega útilokað samstarf við hann, algjörlega [gott að tvítaka þetta, aldrei er of varlega farið!]. Við í Sam­fylkingunni munum ekki starfa með Íslensku þjóðfylkingunni, aldrei. Það er alveg á hreinu." (Feitletr. jvj.)

Þá dregur enn einn formaður, Óttarr Proppé, ekki af sér hér í innihalds­lausum stórmælum: "Þeir sem standa fyrir rasisma og kynþáttafordóma, flokkar sem kynda undir fordómum, sundrung og hræðslupólitík, þeir koma ekki til greina sem samstarfsflokkar Bjartrar framtíðar, hvort sem það er Íslenska þjóð­fylk­ingin, sem sannarlega stendur fyrir þetta allt, eða aðrir." --Hann hefði ekki getað staðið sig laklegar í rökstuðningi þessi!

Og IPA-konan Katrín Jakobsdóttir, sem útilokaði svo sannarlega ekki samstarf við Evrópusambandið (sjá nýútkomna Villiketti Jóns Torfasonar og Atla Gísla­sonar), hún segir hér í sínu hvítþvegna sakleysi um samstarf við Íslensku þjóðfylkinguna: "Ég sé það ekki fyrir mér. Stefnumál flokkanna virðast mér algjör­lega ósam­rýmanleg hvað varðar málefni útlendinga. Ég held ég geti sagt það hreint og beint að ég útiloka samstarf við þennan flokk."

Ekki kannski furða þegar hún burðast með annað eins og þetta í bakpokanum frá stefnumótun VG um alþjóðamál nú fyrir kosningarnar (leturbr.jvj):

Tökum á móti fleiri flóttamönnum
Sífellt fleiri eru á flótta í heiminum undan stríðsátökum og afleiðingum loftslagsbreytinga. Ísland þarf að taka þátt í því að axla ábyrgð í þessum efnum. Þess vegna eigum við að taka á móti umtalsvert fleiri flótta­mönnum, að lágmarki 500 á ári. Jafna þarf aðstæður hælisleitenda og svokallaðra kvótaflóttamanna og tryggja fullnægjandi framkvæmd nýrra útlendingalaga með fjármagni og mannafla.

Það er eins gott að kjósendur VG hingað til viti af þessari ofurróttækni flokksins!

Og þá er það Smári McCarthy, meint forsætisráðherraefni Pírata að sögn Birgittu, þessi sem "sagði í myndbandi árið 2010 að hann vilji sjá atvinnuleysi fara í 40-50% sem yrði frábært" (Viðskiptablaðið), hann hlýtur jú að hafa einhverja lífsspeki að færa okkur, og hér er hún: að "hann hafi kosið að leiða ekkert hugann að Íslensku þjóðfylkingunni," og bætir við: "Íslenska þjóð­fylk­ingin stendur fyrir málefni sem eru eiginlega eins langt frá málefna­stöðu Pírata og hægt er að hugsa sér." --Já, bezt að hann haldi áfram að láta sig dreyma um atvinnuleysið og sín "borgaralaun" fyrir að gera ekki neitt!

Benedikt Jóhannesson, sá sem var í fréttum í morgun, formaður ESB-fanklúbbsins Viðreisnar, svaraði spurningunni um hugsanlegt samstarf við ÍÞ með eindregnum hætti: "Nei."

Og þá er það sá síðasti í hópi sjömenninganna, Bjarni Benediktsson, sem tjáir sig um Íslensku þjóðfylkinguna: hann taldi Sjálfstæðisflokkinn og ÍÞ "eiga litla samleið":

"Ég ætla ekki að segja annað en að ég er mjög ósammála flestu í stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar" [t.d. örugglega um það að gera fiskveiðar frjálsar og margfalda strandveiðar, aths. jvj.], "en tjái mig að öðru leyti ekki um það hvað ég geri ef einhverjar aðstæður koma upp að loknum kosningum. Þannig staða er uppi í stjórnmálum í dag að það getur orðið snúið og flókið verkefni að mynda ríkisstjórn. Þess vegna ætla ég ekkert að tjá mig um það hvernig við munum vinna úr niðurstöðum kosninganna. Það verður bara verkefni þess tíma. Það er augljóst að þeir flokkar sem eru lengst frá okkur í stefnumálum, og ég lít á Þjóðfylkinguna í þeim hópi, það eru minnstar líkur á því að maður nái saman við þá aðila. Mér finnst að á sumum sviðum séu þeir með algjörlega óásættanlega nálgun," sagði Bjarni í þessu DV-viðtali án áþreifanlegra raka!

Samflokksmaður hans, a.m.k. til skamms tíma, Halldór Jónsson verk­fræð­ingur, ritar hins vegar í grein á Moggabloggi sínu í kvöld: Þjóð­fylk­ingin, og takið nú eftir nýjum og hressi­legum andblæ -- reyndar gustar af honum:

"Þjóðfylkingin er ekki rasistaflokkur heldur þjóðernis­sinnaflokkur sem vill ekki óheftan innflutning múslíma til landisins. Þetta get ég skrifað undir.

Þjóðfylkingin vill ganga úr Schengen og verja landamæri ríkisins. Það vil ég líka.

Þjóðfylkingin vill nota þá peninga sem nú fara í hælisleitendur til aðstoðar í heimalöndum þeirra.  Þeir segja féð rýrna hérlendis í allsskyns óþarfa kostnaði. Ég er sammála þessu.

Þjóðfylkingin vill draga dám af reynslu Norður­landanna af inn­flutn­ingi múslíma. Það vil ég líka.

Þjóðfylkingin vill beita 48 tíma reglunni á hælis­leit­endur eins og Norðmenn gera. Það vil ég líka.

Þjóðfylkingin styður aðild Íslands að SÞ, NATO, EFTA og norrænu sam­starfi. Það geri ég líka.

Þjóðfylkingin vill endurskoðun á EES með tvíhliða viðskipta­samning við ESB í huga, sbr. Sviss. EES hentar ekki íslenskum hagsmunum. Þetta samþykki ég heilshugar.

Þjóðfylkingin hafnar alfarið aðild Íslands að ESB og TISA af pólitískum ástæðum. Það geri ég líka.

Þjóðfylkingin vill stórefla löggæslu, landhelgis- og tollgæslu og auka þátttöku Íslands í eigin vörnum. Varðskipaflotinn verði stórefldur og nýjar þyrlur keyptar fyrir gæsluna og sótt verði um styrk til þess til mannvirkja­sjóðs NATÓ. Þátttaka Íslands í vörnum landsins verði aukin, meðal annars með endurreisn Varnarmálastofnunar. Þessu er ég sammála.

Þjóðfylkingin er alfarið á móti að moskur verði reistar á Íslandi eins og þegar er gert í fjölmörgum ríkjum, bann verði lagt við búrkum, umskurði kvenna af trúarlegum ástæðum og skólum íslamista á Íslandi. Þessu fylgi ég af sannfæringu.

Þjóðfylkingin vill að núverandi staðsetning innlandsflugvallar verði til framtíðar. Þessu fylgi ég af hita. Vil fá beint millilandaflug líka frá Reykjavíkurflugvelli.

Þjóðfylkingin vill að Landsvirkjun verði ætíð að fullu í eigu þjóðarinnar og ekki verði lagður rafmagns-sæstrengur úr landi. Sumu af þessu er ég sammála.

Þjóðfylkingin hafnar hugmyndinni um fjölmenningu á Íslandi en styður öflugar aðgerðir til aðlögunar þeirra sem setjast hér. Þessu er ég mjög harðfylgjandi sammála.

Af hverju get ég ekki fengið neinu þessu framgengt með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Þar verð ég að horfa á þær Unni Brá og Áslaugu Örnu, uppáhaldsframbjóðanda formannsins, dansa stífidans á Landsfundi fyrir óheftum innflutningi múslíma undir stjórn formanns kjördæmisráðs í SV og velvilja formanns og þola bælingu umræðna um málefni flóttamanna.

Á ég að styðja þetta?

Af hverju fæ ég ekki einu sinni að ræða þessi innflytjendamál á vettvangi flokksins míns? Þar eru reyndustu stjórnmálamennirnir sem ég hef trú á og vil fylgja. En af hverju hunsa þeir mig og aðra svona gersamlega? Erum við svona lítið seglskip sem ekki getur pípt, að þeir geti látið sem við séum ekki til? 

Hvað er Sjálfstæðisflokkurinn að reyna að gera mér?

Það er eðlilegt að maðurinn spyrji! -- sá reynslumikli vitmaður. Og einnig hér sjáum við brestina í meðvirku innflytjendastefnunni, þeirri sem Bjarna og ráðandi félögum hans í flokknum þókknaðist að taka upp til þægðar vinstri flokkunum og ríkinu í ríkinu: Fréttastofu Rúv, í stað þess að læra af mistökum hinna Norðurlandaþjóðanna, sem eru óðara að snúa bakinu við þessari afleitu og dýrkeyptu stefnu.

Jón Valur Jensson.


Seðlabankinn enn með sína afleitu hávaxtastefnu, dragbítur á marga

Enn viðheldur hann 5,5% stýrivöxtum og stuðlar þar með að því vaxta­okri bank­anna sem hefur leikið margan íbúðar­eig­andann grátt. Vaxta­greiðslur íbúða­lána eru nú 3,66 sinnum hærri en allar verðbætur sömu lána,* þannig að ljóst er, að miðað við núverandi verðbólgustig (1,8% skv. nýjustu mælingu) eru það vextirnir sem mest eru að sliga menn, margfalt meira en verðtryggingin.

Íslenska þjóðfylkingin hefur á stefnuskrá sinni almenna skuldaleiðréttingu íbúðalána (enda allt of skammt gengið í þá átt af núverandi ríkisstjórn) og að afnema verðtryggingu. Síðarnefnda markmiðinu hefur Framsóknarflokkurinn ekki náð: þótt 40 ára verðtrygging á íbúðalánum hafi verið afnmumin, eru 25 ára verðtryggð lán enn í gildi.

Undirritaður talaði fyrir því í flokksstjórn ÍÞ, að takist ekki að fá verðtrygg­inguna afnumda á næsta löggjafarþingi, verði sett vaxtaþak á öll verðtryggð íbúðalán: 2 prósent á ári, og þar var þeirri tillögu mjög vel tekið. Ennfremur vill flokksstjórnin, að verðtryggðir vextir á lán fólks til fyrstu íbúðakaupa verði a.m.k. framan af að hámarki 1%. Óverðtryggðum, endurskoð­unar­legum vöxtum þarf svo einnig að kippa niður úr þeim upphæðum sem þeir eru nú í, okurvextir eins og hinir.

Seðlabankinn á ekki að starfa í þágu stórgóðabanka sem fá allt of mikið í sinn hlut af kökunni í þjóðar­búskapnum og af aflahlut launafólks.

* Allar verðbætur verðtryggðs Íls.-láns með 5% vöxtum: a) afborgun verðbóta og b) verðbætur vegna vaxta (2,47 sinnum hærri en afborgun verðbóta). Þar til viðmiðs eru svo: vextir. Miðað var hér við greiðsluseðil skuldabréfs á gjalddaga 1. þ.m.

Jón Valur Jensson.


mbl.is „Reyndu að fá til þín iðnaðarmann“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umboðslaust mannhatur

Þetta er fyrirsögn greinar Guðmundar Andra Thorssonar, sem að titlar sig rithöfund, sem birtist í Fréttablaðinu 26. september sl. Þau, sem að hafa þrek til þess að lesa pistlahugleiðingar Guðmundar án þess að verða miður sín, ættu að hafa í huga að orðið rithöfundur merkir þann sem er höfundur skáldverka i óbundnu máli, en orðið að skálda getur m.a. þýtt að ýkja og að skrökva samkvæmt orðabókinni. 

Veit ekki en fullyrðir samt

Í greininni ræðst Guðmundur með illmælgi á mann sem að hann þekkir ekki, en sem að ég hins vegar geri. Maðurinn er Helgi Helgason, stjórnmálafræðingur og sem nú er einnig formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar (Íþ) og var sem slíkur ásamt með öðrum formönnum stjórnmálaflokkanna í skammarlegu furðuviðtali Ríksútvarpsins á dögunum, en Rúvið eins og það kallar sig er þekkt fyrir afar vilhallar og óheiðarlegar umfjallanir.

Guðmundur finnur Helga allt til foráttu, ég endurtek: án þess að vita neitt, en ég get þá upplýst að ljúfari og heiðvirðari maður en Helgi er vandfundinn. Rithöfundurinn leyfir sér að kalla Helga rasista, þ.e. kynþáttafordómamann og er vinsælt hatursyrði fólks af sama sauðarhúsi og rithöfundurinn. Ekkert er fjær sannleikanum, en Guðmundur segir jafnframt að Helgi sé “...fulltrúi þeirra sjónarmiða að ekki eigi að rétta öðru fólki hjálparhönd...” og að “... mismunun sé æskileg, óréttlæti sé nauðsyn”.

Ja hérna. Ég þekki engan mann íslenskan sem er með viðlíka skoðanir og birtist í hugarfari rithöfundarins, en uppspuni er þekkt “let them deny it”-baráttuaðferð misindisfólks, sem að svífist einskis til þess að koma höggi á ímyndaða andstæðinga. Guðmundur fullyrðir einnig að það séu firrur og fleipur hvernig ástandið sé í Svíþjóð vegna gettóa sem múslimar hafa helgað sér þar. Vill Guðmundur e.t.v. leggja eitthvað til málanna um ástandið í Marseille, eða fara næstum daglegar fréttir af alls kyns hörmungum í nærlöndum okkar í Evrópu algjörlega fram hjá Guðmundi? Og hver er á móti góðkynja fjölmenningu eins og að borða margþjóða mat og horfa og hlusta á útlenda list og  kvikmyndir og meira að segja lesa útlendar bækur svo einhver dæmi séu tekin? Rithöfundurinn er annaðhvort illa lesinn og að sér eða að fordómar hans ráða för í einhverju umboðslausu hatri á það fólk og þau málefni, sem að eru honum ekki að skapi. 

Algjör vanþekking

Veit rithöfundurinn eitthvað um stefnuskrá Íþ? Íslenska þjóðfylkingin er sjálfsprottið afl alþýðufólks og var stofnuð til þess að koma betra skikki á hag og velferð Íslendinga. Ég tala ekki fyrir hönd Íþ en veit og vil upplýsa rithöfundinn að stefnuskráin er svo til hin sama og Hægri grænir, flokkur fólksins, var með fyrir síðustu kosningar og fjallar vítt og breitt um landsins gagn og nauðsynjar, praktískar lausnir á vandamálum, og leggur ásamt mörgu fleiru áherslu á frelsishyggju; kristin gildi; sjálfstæði og sjálfræði þjóðarinnar; andstöðu við innlimun landsins í ESB; að snúa EES-samningnum yfir í viðskipta­samning svo að við séum ekki neydd til þess að gleypa tilskipanir sem samdar eru af og fyrir ESB-löndin en passa okkur ekki nauðsynlega; öryggismál og löggæslu; gagngera endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins og að gera strandveiðar kvótalausar og frjálsar sem fyrsta skref; og svo velferðarmálin, m.a. með því að gjörbylta stuðningi við aldraða og öryrkja, afnema tekju­tengingar og hækka laun þeirra í kr. 300.000 á mánuði skattfrjálst.

Þótt menn geti greint á um markmið og aðferðafræði þá er erfitt að nokkur heilvita maður í jafnvægi geti fundið nokkuð illskiljanlegt hvað þá ljótt í þessari stefnuskrá. Á hverju byggir rithöfundurinn þá sleggjudóma sína?

Rithöfundurinn ætti að vita 

Það þekkja flestir með opin augu hina alvarlegu stöðu í Evrópu vegna landleitarfólks sem smyglar sér þangað til að þvinga fram vilja sinn. Kostnaðurinn og öll vandamálin þessu samfara eru miklu meiri en ríkin og íbúarnir afbera. Eftir að það kemst inn á Schengen-svæðið hrúgar þetta fólk sér einnig hingað og beitir misjöfnum ráðum til þess að öðlast landvist. Allir vilja komst á sósíalinn þótt þeir hafi engan sérstakan áhuga á Íslandi, menningu okkar eða sögu.

Þjóðirnar eru nauðbeygðar farnar að bregðast við með ýmsum hætti og Norðmenn t.d. senda nú alla nema þá sem að þarfnast einhverrar sérskoðunar við til baka úr landi innan tveggja sólarhringa. Sum lönd hafa alveg lokað fyrir fólkstrauminn. Hér er hins vegar allt svo viðkvæmt og vandasamt að lítið má gera af ótta við ofstopa rétttrúnaðarins, sem hirðir ekki um afleiðingarnar, hvorki til skemmri né lengri tíma. Vegna sívaxandi fjölda tekur það yfirvöld gjarnan langan tíma að afgreiða sum málin, en viðkomandi eru á meðan með dagpeninga, frítt uppihald, læknisþjónustu o.m.fl., sem réttrúnaðarfólkinu finnst ágætt vera og ætlast til að aðrir en þeir beri kostnaðinn.

Má ekki læra af reynslu annarra þjóða og ræða þessa hluti til þess að komast að einhverri ábyrgri og skynsamlegri niðurstöðu? Hvað er að því að Ísland hafi góða landamæravörslu og stjórni þvi sjálft hverja við viljum bjóða velkomna hingað og þá hverja ekki? Við þurfum á vinnuafli að halda og sjálfsagt að taka á móti vönduðu kunnáttufólki með óflekkað mannorð, sem að styður uppbyggingu landsins og er með atvinnuleyfi. Og þarf ekki að sundurgreina þau, sem leita að hingað af hagkvæmnisástæðum til að fá frítt uppihald og hafa það gott, og þau sem eru raunverulegir flóttamenn frá stríðshrjáðum svæðum? Og þarf svo ekki að spyrja hvort fátækir og húsnæðislausir Íslendingar eigi ekki að hafa einhvern forgang á landi hér? Ekki var það landleitarfólkið sem byggði upp velferðina á Íslandi.

Varasöm framtíðarsýn 

Formaður vinstri flokksins Björt framtíð lætur hafa það eftir sér að hann vilji að Íslendingar verði orðnir 800 þúsund árið 2050. Þótt landinn hefði sig allan við er þess vart að vænta að afraksturinn klári þá pöntun, sem þýðir að opna þarf landið fyrir öllum hinum. Eitthvað held ég að hrikti í hér og þar þegar bornir og barnfæddir eru orðnir í minnihluta og ráða ekki lengur sínu eigin landi. Er það e.t.v. sú framtíðarsýn sem að rithöfundurinn vill berjast fyrir með ofbeldi í garð hinna sem vilja fara varlega að?

Kjartan Örn Kjartansson.

Grein þessa sendi Kjartan Fréttablaðinu fyrir viku.

Hún birtist í gær á Visir.is og er endurbirt hér með góðfúslegu leyfi hans.

Kjartan, einn stofnenda Íslensku þjóðfylkingarinnar, situr í flokksstjórn hennar.


Smá-krydd í pólitísku tilveruna

Hér er frábær saga af Facebók Snjáfríðar Árnadóttur, aðeins til að létta okkur geðið, en öllu gamni fylgir nokkur alvara:

Ég heyrði sögu um konu eina sem var í rauðum loftbelg og það rann upp fyrir henni að hún hafði villst af leið.
Hún lækkaði flugið og sá mann einn á jörðu niðri. Hún lækkaði hæðina enn frekar og öskraði á manninn:
"Afsakið, en getur þú hjálpað mér"? "Ég átti stefnumót við vinkonu mína fyrir klukkutíma, en ég veit ekki hvar ég er stödd!" ... ... ...
Maðurinn svaraði: "Þú ert staðsett í rauðum loftbelg í ca. 30 feta hæð yfir jörðu á 55º41´47” norðlægðri breiddargráðu og 10º12´47” vestlægðri gráðu".
"Þú hlýtur að vera tæknimaður," sagði konan.
"Já það er ég," svaraði maðurinn, "en hvernig vissir þú það"?
"Tja," sagði konan, "allt sem þú hefur sagt, er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um það hvernig ég á að nota upplýsingarnar".
"Staðreyndin er, að ég veit enn ekki hvar ég er og það eina sem ég hef fengið út úr okkar samtali er að mér hefur seinkað enn frekar".
Maðurinn á jörðinni svaraði um hæl: "Þú hlýtur að vera Samfylkingarkona".
"Það er ég," svaraði konan, "en hvernig vissir þú það"?
"Það er svosem einfalt. Þú veist ekki hvar þú ert stödd, né hvert þú stefnir".
"Þú kemst ferðar þinnar á loftinu einu. Þú ert búin að gefa loforð sem þú ert ekki fær um að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þitt vandamál".
"Staðreyndin er að þú ert í sömu sporum og þú varst áður en þú hittir mig, en allt í einu er það mér að kenna"!


Íslenska þjóðfylkingin er stærst meðal "annarra flokka" en Sjöflokksins! Framsókn sígur niður, VG upp

Nýjasti Þjóðarpúls Gallup sýnir það. Sjálfstæðisflokkurinn er enn stærstur (23,7%), Píratar með 20,6%. VG í vexti með 15,6% og ESB-"Viðreisn" með 13,4%. ÍÞ hefur meira fylgi en öll samanlögð smærri framboðin (Dögun, Flokkur fólksins, Alþýðufylkingin og hvað þau nú heita öllsömul). 5,4% svarenda vilja aðra flokka, þar af tæp 3% sem styðja Íslensku þjóðfylkinguna. Þó er vitað, að vegna óbilgjarnra og ómaklegra árása bæði sumra fjölmiðla og andstæðinga þessa flokks veigra ýmsir sér við því að láta uppskátt um að þeir fylgi henni. Þó fordæmir Íslenska þjóðfylkingin allt kynþátta- og útlendinga­hatur. En það heldur ekki aftur af leigupenna Fréttablaðsins, Guðmundi Andra Thorssyni, að veitast með harla ósæmilegum hætti að flokknum sl. mánudag. Verður kannski nánar um það fjallað í annarri grein hér.

Samfylkingin mælist með 8,5% fylgi og Framsóknarflokkurinn er kominn niður í 8,2% fylgi, sem er fjórum prósentustigum minna en flokkurinn var að mælast með í könnunum MMR og Fréttablaðsins. Björt framtíð nær ekki inn manni með sitt 4,7% fylgi ... (Eyjan.is).

Greinilega er ríkisstjórnin ekki með þann meirihluta þingsæta, sem önnur nýleg könnun spáði henni: 

Samanlagt fylgi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins er 31,9% en þegar spurt var um stuðning við ríkisstjórnina svöruðu 35,9% því játandi,

segir Eyjan, en bætir við:

Gefur það til kynna að ríkisstjórnin haldi velli ef Viðreisn bættist við.

Og þetta mun trúlega vera vilji bæði Eyju-eigandans Björns Inga Hrafnssonar og Sigurðar Inga, sem á landsfundinum um helgina, eins undarlega og hann fór (með atkvæðasvindli?), naut stuðnings eindregna ESB-mannsins Jóns Sigurðssonar, fyrrv. seðlabankastjóra. Spurning hvort hér sé að myndast vanheilagt bandalag ESB-stefnu og Framsóknarflokks-foringja, sem sitja nú yfir höfuðsvörðum síns fyrri formanns. 

Rétt viðbragð framsóknarmanna við slíku --um land allt utan NA-kjördæmis þar sem Sigmundur á vísan stuðning -- kynni einmitt að vera stuðningur við eina alfarið einbeitta flokkinn sem hafnar með öllu Evrópusambands-inngöngu, en sá er Íslenska þjóðfylkingin. Kjósendur á Suðurlandi eiga þar t.d. völ á mjög vel kynntum, fullveldissinnuðum oddvita E-listans, Guðmundi Þorleifssyni, sem þekkir flesta bændur á Suðurlandi og er góður valkostur í stað Rúv-studda byltingarmannsins Sigurðar Inga!

Vinstri grænir bæta við sig rúmum tveimur prósentustigum milli mælinga Gallup og það sama gerir Björt framtíð. Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar minnka í fylgi, en Píratar eilítið meira. Tæplega 10% aðspurðra tóku ekki afstöðu eða neituðu neituðu að svara, 8,2% sögðust ætla að skila auðu.

Könnunin var gerð dagana 16. til 29. september 2016. Alls var haft samband við 3.035 einstaklinga og þátttökuhlutfall var 59,2%. Vikmörkin á fylgi við flokka eru 1,1-2,2%.

Þessar upplýsingar frá Gallup hræra enn upp í kosningaspám, og ekki er allur dagur úti enn, kosningabaráttan í sjónvarpi varla hálfnuð ennþá og margt eftir að breytast, ef að líkum lætur.

Á meðan heldur Þjóðfylkingarfólk áfram sinni öflugu undirskriftasöfnun meðmælenda, en framboðum þarf að skila til yfirkjörstjórna eigi síðar en á hádegi 14. þ.m., eftir 11 daga!

Jón Valur Jensson, 3. maður á E-listanum í Reykjavík-suður (næst á eftir Arndísi Hauksdóttur, presti í Noregi, og oddamanninum Gunnlaugi Ingvarssyni).

 
PS. Hér er hægt að nálgast undirskriftablöðin, á vefslóð á síðu með öllum kjördæmunum:
                 http://www.thjodfylking.is/kjoerdaemi 
og t.d. vefslóð beint inn á NA-kjördæmis-eyðublaðið (sem hægt er síðan að prenta út og fá sem flesta ættingja, vini og vinnufélaga og senda svo til Íslensku þjóðfylkingarinnar, Dalshrauni 5, 220 Hafnarfirði): og hér er til dæmis Reykjavíkurkjördæmi norður: http://media.wix.com/ugd/6d9610_e9da6dbc0cc1476c98aaa73802afe71f.pdf
 
Þá er hér að finna hina vönduðu stefnuskrá flokksins:
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband