Miðvikudagur, 19.7.2017
Innflutt siðferði? Hælisleitendur stela ítrekað hjólum Suðurnesjamanna!
Það er nógu slæmt að hálfgerðir mafíósar (frá Eystrasalti?) hafa laumazt í þvottahús og hjólageymslur á höfuðborgarsvæðinu og hirt þar öll dýr og vönduð hjól, jafnvel til gámaútflutnings!
En hælisleitendur á Suðurnesjum hafa ýmsir sýnt, að þeir virða ekki eignarrétt náungans.
Hér er ný frétt á DV.is:
Stolin hjól í Reykjanesbæ finnast hjá flóttamönnum
Síðastliðin misseri hefur hefur það orðið æ algengara að hjólum sé stolið í Reykjanesbæ. Í allmörgum tilvikum finnast hjólin við híbýli hælisleitenda á vegum Útlendingastofnunar á Ásbrú.
Suðurnes.net greinir frá þessu. Þar segir að margir á Suðurnesjum hafi greint frá reiðhjólaþjófnaði á samfélagsmiðlunum undanfarna daga. Fjöldi þeirra segjast hafa sótt hjólin til hælisleitenda.
Um fjörutíu hælisleitendur er í húsnæðinu á Ásbrú en Útlendingastofnun hefur tekið til leigu allt húsnæði Airport-inn gistiheimilisins.
Áður hafa fáeinir hælisleitendur í Reykjanesbæ orðið berir að kynferðislegri áreitni við stúlkur á svæðinu og um það verið skrifað í Víkurfréttum.
Útlendingastofnun hefur nú sagt upp húsnæði sínu fyrir hælisleitendur á Kjalarnesi. Ekki er það óvinsæl ákvörðun meðal Kjalnesinga! En þeim mun ósáttari eru Suðurnesjamenn við, að þeim mönnum verður beint í húsnæðið á Ásbrú!
Sú endanlega lausn þarf að komast á þessi mál, að hælisleitendum frá löndum, þar sem ekki er stríðsástand, verði tafarlaust vísað úr landi, innan tveggja sólarhringa. Þetta geta Norðmenn, þetta getum við, ef við erum ekki með rolur og hugleysingja í stöðum ráðamanna.
Jón Valur Jensson.
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Löggæsla, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.