Bloggfærslur mánaðarins, júní 2017

Donald Trump er raunsærri en borgarstjóri Lundúna

Það er vitaskuld laukrétt tístað hjá Trump Banda­ríkja­for­seta, að það er engan veg­inn í lagi, þegar "í það minnsta sjö létu lífið og 48 slös­uðust í hryðju­verka­árás", að borg­ar­stjóri Lund­úna segi að það sé "eng­in ástæða til að vera ótta­sleg­inn""! 

Sadiq Khan, hinn músl­imski borgar­stjóri, hefur áður verið gagn­rýndur fyrir ummæli sín vegna öfga­stefnu meðal múslima, en þessi svör fekk hann frá Trump sem þóttu viðbrögð Khans við árás­un­um í London í gær­kvöldi ekki nógu eindregin. 

„Við verðum að hætta að reyna að sýna póli­tíska rétt­hugs­un og verðum að vernda fólkið okk­ar. Ann­ars versn­ar þetta bara,“

skrifaði Trump á Twitter, og virðist það bæði rétt mat og sann­gjarnt.

Eitt sem Manchester-hryðju­verkið hafði í för með sér virðist vera að við­bragðs­flýt­ir brezku lögreglunnar hafi aukizt. Frá því að árásin hófst í gær þar til morð­ingjarnir voru felldir, liðu ekki nema átta mínútur.

Annar lærdómur getur sannarlega orðið fyrir­byggj­andi gegn fleiri hryðju­verk­um: að menn láti af allri glópa­bjartsýni og von um að þessu fari senn að ljúka. Það gerir það ekki án þess að menn efli forvarnir að miklum mun, en þar gæti þetta verið efst á blaði:

  • að efla netnjósnir með múslimum innanlands og í tölvu­samskiptum þeirra við fólk í múslimskum ríkjum og með skrifum þeirra á alþjóðlega vefi;
  • að koma fyrir hlustunar­búnaði í öllum moskum, ef þær eiga að fá starfsleyfi áfram;
  • að sett verði tímabundið bann á ferðir eða a.m.k. innflutning múslima til Evrópu, þar til múslimskir hryðju­verkamenn hafa látið af dráps­athæfi sínu þar um ákveðinn tíma, 1-2 ár eða svo. Haldi þeir síðan áfram fjölda­morðum á nýjan leik, má aftur skella á öðru slíku tímabundnu innflutn­ings­banni frá múslima­ríkjum.

Þetta gæti reyndar orðið varanlegt bann áratugum saman, en við því er ekkert að segja, heldur hrein nauðsyn og örugglega til að draga úr þessum árásum, þótt hitt beri að viðurkenna, að önnur og þriðja kynslóð frá innflytjendum er oft mun róttækari en sú fyrsta. En þar verður þá þeim mun meira undir því komið að fylgja þeim kynslóðum vel eftir í uppeldinu: í gegnum skóla­kerfið og félags­lega þátttöku og með aðlögun að vestrænum hugunar­hætti, sem múslimar verða að tileinka sér, vilji þeir öðlast fullan þegnrétt í landi Breta­drottningar. Komi full andstaða við slíkt í ljós meðal þeirra eða grunur um þátt­töku í and­brezkri starfsemi, á að binda svo um hnútana, að vísa megi þeim til baka til síns upprunalands. Slíkar valdheimildir hafa frönsk stjórnvöld, og Bretum er engin vorkunn að því að taka upp sömu vinnubrögð. Ættu stjórnvöld hér á landi sömuleiðis að tryggja sig með sérstökum skilmála-ákvæðum, sem fylgja beri allri mótttöku nýrra ríkisborgara, að þeim sjálfum og jafnvel börnum þeirra megi vísa úr landi fyrir skrif eða athafnir sem fela í sér stuðning við erlendar hryðjuverka­hreyfingar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Trump gagnrýnir borgarstjóra Lundúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt blóðbað í Lundúnum. ISIS fagnar. Trump gefur gild ráð: lokið á innflutning múslima!

Óhugnaðurinn er ekki lítill: fyrst ekið yfir fólk á sendibíl, síðan ruðzt út með langar sveðjur og menn stungnir hver af öðrum og m.a. tvítug stúlka. Þeir voru þrír saman þessir hrottar, þetta er enginn einfari, þetta eru víslega múslimar af svæsnustu gerð, sem offramboð er af nú um stundir. London er öll í uppnámi, almenningur, lögregla og stjórnvöld.

Það er verið að breyta friðsælu Englandi í vígvelli einn af öðrum. Annarleg mannhaturs-hugmyndafræði öfga-islamista býr að baki. Fagrir staðir með aldalangar minningar, eins og Vauxhall, verða skyndilega atburðasvið ógnar og skelfingar. 

Hér er sonnetta Johns Keats (1795-1821), tileinkuð konu sem hann sá bregða fyrir í Vauxhall fimm árum fyrr:

XLIII. sonnetta

Til konu sem skáldið sá nokkur andartök í Vauxhall



Í fimm ár útfall sjávar séð ég hef

og sendna fjöru án afláts breyta sér,

frá því þín fegurð óf mig í sinn vef,

mitt auga, er dróstu hanzka af fingrum þér.

Og enn, ef himna lít ég næturljós,

er ljómi þinna augna sefi minn;

mig gleður ei hin unga villirós,

mín andans fró er rjóður vangi þinn;

mig gleður ei hið bjarta lífsins blóm,

en blítt mitt eyra hlustar eftir því

hvað vakti þrá, við vara þinna óm,

þá vaknar löngun mín til þín á ný.

Þú varpar skugga á heimsins yndi allt.

Án þín er lífið hryggðarfullt og kalt!

Jón Valur Jensson þýddi.

Fegurðin ríkir ekki lengur, nú er jafnvel vegið að saklausri, ungri konu með haturssveðju í nafni islams!

Og nú talar helzti meintur friðarspillir allra vinstrisamkvæma heimsins inn í þessa brezku atburði, Donald Trump Bandaríkjaforseti: Eina ráðið er að loka á innflutning allra múslima til Vesturlanda!

Hvað finnst lesendum um það?

JVJ.


mbl.is Urðu vitni að stunguárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur virðist aðeins bákn til óþurftaverka

Sirrý Hallgrímsdóttir átti frábæra bakþanka í Frétta­blaðinu í dag, bendir á þá sóun að kasta 160 millj­ónum í mann­rétt­inda­skrifstofu Reykja­víkur og búa þar til 12 störf út í loftið, sennilega bitlinga fyrir pólitíska áhang­endur meiri­hlutans í borgar­stjórn. Ætli t.d. Sema Erla hafi fengið þar inni, af öllum mönnum?!

Notum frekar framlög borgarbúa til bágstaddra og barna sem skortir stuðning!

Já, til hvers er þetta tólf manna bákn sem eyðir 640 milljónum króna á hverju kjörtímabili?!! Hvað hefur það svo sem afrekað? Er ekki hlutskipti öryrkja og útigangsfólks í Reykjavík jafnvel verra en það var áður? Og njóta forsjárlausir feður og börn þeirra nokkurra mannréttinda, ef fráskildum mæðrunum þókknast að slíta öllu sambandi barnsins við föður þess, föðursystkini, frændsystkini önnur og afann og ömmuna? Ætlar mannrétt­inda­skrifstofa Reykjavíkurborgar seint að átta sig á því, að jafnvel Barna­verndar­stofa er farin að skilgreina umgengnis­tálmun foreldris sem OFBELDI? (Undir­ritaður tekur fram, að aldrei hefur hann orðið fyrir þessu sjálfur, en þekkir menn, sem saklausir hafa liðið mikið fyrir þetta, og vitað er um slíka, sem framið hafa sjálfsvíg vegna þess.) En seint verður sagt, að þessi mann­rétt­inda­skrifstofa sé mest í því að rétta hlut þeirra, sem snauðastir, bágstadd­astir og ofsótt­astir eru í samfélaginu, sbr. þessa blogggrein undirritaðs frá 17. apríl 2016:

Borgin vanrækir umönnun útigangsmanna

Það er til skammar fyrir borgina að mál útigangs­manna hafa verið vanrækt. Kona finnst á vergangi í Hafnarfirði með pjönkur sínar í ferðatöskum, hafði misst húsa­skjól fyrir útigangs­menn á Granda; at­hvarf­ið á Lind­ar­götu var tekið úr hönd­um hinna mjög svo hæfu Hvíta­sunnu­manna í Samhjálp (borgar­kerfi Dags B. þykist geta gert betur!); ekki bætir úr skák, að þangað sækir líka vaxandi fjöldi útlendinga; og altöluð er orðin nýbirt grein manns sem var á heimilinu á Álfsnesi á Kjalarnesi, en varð að víkja þaðan, af því að borgin lætur hælisleitendur, sem fara þó sumir alls ekki að húsreglum, njóta forgangs fram yfir íslenzka öryrkja.

Ef eitthvað er, má borgin teljast líkleg til að fara í enn meiri óreiðu og vitleysu með þessi mál það sem eftir lifir af kjörtímabilinu. En rauðbleika borgar­stjórn­in heldur víst eins og Frakka­konungur á sínum tíma að hrunið komi eftir sinn dag!

Jovist, eftir að hennar Dagur verður að kveldi kominn!

Aðeins einn maður í vinstri meirihlutanum hefur staðið með þessu illa stadda fólki, sem nú er að komast á vergang (og fær þó hjálp á kaffistofu á Granda, sjá fréttartengil neðar), og sá er Þorleifur Gunnlaugsson, vara­borgar­fulltrúi Vinstri grænna, sem verið hefur góður talsmaður útigangs­manna innan borgar­stjórnar sem utan og á heiður skilinn fyrir; en hann fær víst engu að ráða.

Hér er grein undirritaðs um þessa mannréttindaskrifstofu frá 4. júlí 2014:

Meint björgunarstarfsemi "mannréttindaráðs" borgarkrata á sér miður þekkilegar hliðar

Mann­rétt­indaráð Reykjavíkurborgar hefur þungvæg verkefni:

1) Að hindra skólabörn í að fá Nýja testamentið.

2) Frægt er þegar það níddist á Íslensku Kristskirkjunni, brá fæti fyrir lögboðið framlag til byggingar hennar.*

3) Að bjarga andarungum á Tjörninni.

Hvað ætli vegi nú þyngst í hugum þessa fólks, Margrétar Sverrisdóttur (Hermannssonar), formanns (sem er örugglega sérmenntuð í andarunga- og mannréttindum), og félaga – Nýjatestamentis-fjandskapurinn, gróf mismununin gagnvart kristnum söfnuði eða andarunginn?

Og hvernig stóð á því að Siðmenntarfólk átti þar svo greiðan aðgang til setu í nefndinni? Ekki eru þeir frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands, það er eitt sem víst er, og ennþá síður frá kristnum stofnunum, enda vinnur "ráðið" gegn kristni og gerir það býsna drýgindalega.

Hins vegar var "ráðinu" alveg fyrirmunað að bæta fyrir vanrækslu borgar­stjórnar og borgarráðs við fátæka í höfuðborginni – útigangsmenn fengu þar ENGAR umbætur á aðstöðu sinni, þótt höfuðgnarrinn hafi lofað því 2009 og enda þótt hr. Þorleifur Gunnlaugsson hafi margsinnis hvatt til þess á því kjörtímabili. Ennfremur var ekkert verið að púkka upp á Mæðrastyrks­nefnd og Fjölskyldu­hjálp Íslands, allt framlag til þeirra skorið við nögl eins og áður, þótt þúsundir hefðu soltið, ef ekki hefði komið til gjafmildi góðra aðila og sjálfboðastarf þessara samtaka að úthlutun matargjafa.

* Íslenska Kristskirkjan er ekki hin kaþólska Kristskirkja í Landakoti, heldur safnaðarkirkja séra Friðriks Schram og trúsystkina hans, sem starfa af miklum heilindum, í evangelískum anda og af þrótti, en kirkjan þeirra er í Grafarvogi, ekki langt frá Egilshöll. Friðrik þekkja margir af þáttum hans á Omega, Trúin og tilveran. En séra Friðrik, ólíkt meirihluta Þjóðkirkjupresta, hefur biblíulegt við­horf í samkynhneigðra­málum, og það fór fyrir brjóstið á "mannréttinda­ráð­inu" sem launaði honum hreinskilnina og hrein-pálínskan kristindóminn með því að koma í veg fyrir lögboðnar fjárveitingar til byggingar safnaðarheimilis. Og það eru ekki mörg ár síðan, þótt fjölmiðlamenn virðist ekkert af þessari mismunun vita.

Jón Valur Jensson.


Ærnar ástæður til að gæta fyllsta öryggis tónleikagesta og annarra við fjöldaatburði

Rokk­hátíðin Rock am Ring í Nür­burg í Þýzka­landi er örugg­lega ekki sú síð­asta til að verða aflýst eða frestað vegna hryðju­verka­ógn­ar. 

Búist er við að um 85 þús­und manns sæki hátíð­ina sem átti að standa yfir í þrjá daga. Skipu­leggj­end­ur hátíðar­inn­ar segja að lög­regl­an hafi kraf­ist þess að hátíðin yrði stöðvuð og svæðið rýmt. Þeir segj­ast aðstoða lög­regl­una eft­ir fremsta megni en von­ast til að hátíðin geti haldið áfram á morg­un [laugardag 3/6].

Í yf­ir­lýs­ingu frá lög­regl­unni seg­ir að ákveðin gögn hafi bent til yf­ir­vof­andi hættu og að ekki hefði verið hægt að úti­loka hryðju­verka­ógn. (Mbl.is)

Öryggi tón­leika­gesta sé for­gangs­atriði, seg­ir lögreglan og horfir þar eflaust til tónleikanna í Manchester Arena (22 drepnir) og í Bataclan-tónleika­höllinni í París, þar sem 89 manns voru drepnir í hryðju­verkum ISIS-manna 13. nóv­em­ber 2015 og alls 130 manns að meðtöldum öðrum fórnarlömbum í borginni. 

En nú þegar er eðlilega verið að kosta miklu meira til en áður hefur tíðkazt vegna slíkra fjölda­atburða:

Ákveðið var að auka ör­ygg­is­gæslu á Rock am Ring eft­ir árás­ina í Man­chester og um 1200 manns hafa sinnt þar gæslu. (Mbl.is)

Enginn smáhópur þar. Og einnig hér á Íslandi þarf að gæta öryggis almenn­ings, þar sem margir koma saman. Vanræksla í því efni á ekki lengur að koma hér til greina, enda eiga óskráðir meðlimir öfga­samtaka auðveldan aðgang að Íslandi, m.a. frá Skandinavíu, og hafa nú þegar átt hér leið um landið.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Hátíð stöðvuð vegna hryðjuverkaógnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heldur einhver að þetta nýbirta myndband frá Frakklandi sé leikin kvikmynd? Dæmi um góða "aðlögun"?

Sprengingarnar í höfuðborg Filippseyja eru trú­lega af völdum öfgamúslima sem herinn hefur átt í bardögum við að undan­förnu; þar eins og víðar stendur styrr um þá.

Skemmdarverkamenn sýna innræti sitt með svæsnum árásum á lögreglumenn og bíla þeirra á þessu myndbandi, og skoði nú og dæmi hver fyrir sig:

JVJ.


mbl.is Sprengingar í höfuðborg Filippseyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjátrúin á loftslagshlýnun af mannavöldum nær nýjum hápunkti

Eigum við nú að fara að taka mark á Árna Finns­syni um nátt­úru­vernd­ar­mál? Hann hefur löngum verið þar á yzta kanti, umboðs­laus sem hann þó er til nokkurra ábúð­ar­mik­illa yfir­lýsinga, þó verið óspar á þær, s.s. um hvala­mál og jafnvel þorsk­veiðar.

Hjátrúin á loftslags­hlýnun af manna­völdum nær nú hápunkti í viðleitni þýzkra vald­hafa og einkum vinstri manna til að sverta Trump Banda­ríkja­forseta fyrir að taka ekki þátt í Parísar­ráðstefnu­samkomu­laginu. Gamlir óvinir Banda­ríkj­anna stökkva fram úr sínum skúma­skot­um eins og þeir upplifi nú endur­nýjun líf­dag­anna. Þó hefur jörðin áður mátt reyna mörg hlýinda- jafnt sem ísaldar­skeiðin. En ótrúlegasta skynsemdar­fólk lætur einföld gröf "sannfæra" sig.

Og nú reynir Árni Finnsson, formaður hinna dularfullu Náttúru­verndar­samtaka Íslands, af öllum mönnum að kalla Íslendinga til liðs við þessi ósönn­uðu hjá­fræði og hyggur sig geta snúið útgerðar­mönnum um fingur sér! Lítt dugar það honum til vegs­auka í þessu máli, að hann fekk eitt árið viður­kenningu frá ófaglegum hópi í utanveltu­samtökum, m.a. Semu Erlu Serdar, Einari Kárasyni rithöfundi, einum borg­ar­full­trúa "Besta flokks­ins" og Gunn­ari Hólm­steini Ársæls­syni ESB-predikara.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ákvörðun Trump „mikil ógn við Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkavæðingar- og frjálshyggjustjórnin herðir enn að ríkisfjármálum, almenningi til bölvunar

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára felur í sér brot gegn fyrri lögum, 3% samdrátt í samneyzlu, 2% samdrátt til menntakerfisins, sem hafði í kosningum verið lofað rýmri framlögum eftir langtíma samdrátt. Annað eftir þessu!

Engin loforð ráðandi flokka um aukin framlög til heilbrigðismála næsta árið er að finna í þessari áætlun sem var samþykkt sem ályktun Alþingis í nótt. Þar inni í var framlag til að kaupa þriðju þyrlu fyrir Landhelgisgæzluna, en ekki til að standa undir útgjöldum til að manna þá þyrlu!

Samgöngumál eru áberandi vanrækt, og mætti halda, að stefnt sé að því að fjölga slysum á þjóðvegum! 

Almennt er einkavæðingar- og frjálshyggjustefnan á fullu í þessari fimm ára áætlun, og ræður Sjálfstæðisflokkurinn för, einnig um það að standa ekki við loforð um að rétta kjör öryrkja. Vinstrimennska Bjartrar framtíðar heyrir nú til sögubóka.

Undirritaður fylgdist vel með umræðunum á þingfundi sem stóð til kl. 2.10 í nótt og skrifaði um málið þessa grein: Flokksræðið á fullu á Alþingi, í bæði stjórnarflokkum (sem ana áfram í óverjanlegri 5 ára áætlun) og stjórnar­andstöðu. Margt mjög athyglisvert kom fram í þeirri umræðu allri, m.a. að þrjú bandalög virðast nú við lýði á Alþingi og óvæntir "bedfellows" þar í einu þeirra.

Jón Valur Jensson.

PS. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir fengju sam­tals 22 þing­menn ef kosið væri í dag, sem er 10 þing­mönn­um minna en þeir fengu í alþing­is­kosn­ing­un­um síðasta haust, en stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina hef­ur dreg­ist jafnt og þétt sam­an frá kosn­ing­um.Stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina hef­ur dreg­ist sam­an um 3% frá síðustu mæl­ingu en 36% styðja nú rík­is­stjórn Sjálf­stæðis­flokks, Viðreisn­ar og Bjartr­ar framtíðar. Þetta kem­ur fram í nýj­um þjóðar­púlsi Gallup. Rúv greindi fyrst frá.

Heimild:

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/06/01/enn_faerri_stydja_rikisstjornina/


mbl.is Fjármálaáætlun samþykkt með ágreiningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband