Dæmigerð leyndarhyggja vinstri flokka sem þóttust gagnsæir: fela að þeim leyfðist ekki að ljúga í bréf­um, m.a. til útlendinga, að hér sé "skylda að kjósa"

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi kvartar réttilega, að bók­an­ir hans við vafa­samar gerðir Dagsmanna verða ekki op­in­ber­að­ar fyrr en eft­ir kosn­ing­ar. Í út­send­um bréf­um til nýrra kjós­enda er rang­lega full­yrt, að það sé „Skylda að kjósa“ í þessum kosningum!

Ástæðan fyr­ir því að bók­un hans var tal­in inni­halda gögn sem ekki mátti birta op­in­ber­lega er, að sögn Kjart­ans, sú að í bók­un hans ger­ir hann at­huga­semd við orðalag í bréf­um, sem senda átti nýj­um kjós­end­um Reykja­vík­ur­borg­ar og vís­ar til orðalags í bréf­un­um.

Í bók­un­inni vís­ar Kjart­an nán­ar til tekið til þeirr­ar full­yrðing­ar að það sé "skylda að kjósa." Kjart­an gerði at­huga­semd­ir við þetta orðalag í bréf­um sem senda átti nýj­um kjós­end­um, ungu fólki og inn­flytj­end­um og taldi það vill­andi (Mbl.is).

Vitaskuld er það villandi, því að það er engin borgaraleg skylda hér að kjósa, hvorki til sveitarstjórna né til Alþingis. En svo örvæntingarfullur virðist nú vinstri meirihlutinn (sem enn hangir í dag sem slíkur) að þau reyna nú allt hvað þeir geta til að fiska upp atkvæði útlendinga hér, ekki af því að þeir flokkar séu betri kostur fyrir útlendingana heldur en aðrir, heldur trúlega af þessum ástæðum:

  1. að fólk nýlega komið hingað þekkir ekki til hörmulegs valdaferils vinstri flokkanna og ömurlegrar frammistöðu þeirra við stjórn fjármála og annarra mála borgarinnar, en gæti því öðrum fremur látið gabbazt af áróðri Dagsmanna & Co.,
  2. að þeim mun fremur sem Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum er illa við óskert sjálfstæði og fullveldi Íslands, ímynda þeir sér, að Evrópumönnum sé vel við þá; en þroskaðir og sjálfstætt hugsandi útlendingar láta ekki, er þeir kynna sér málin, telja sér trú um, að það sé neinu landi til góðs að svín­beygja sig fyrir ofurvaldi stórveldis sem æ ofan í æ og helzt hvarvettna reynir að fjarstýra þar hlutum með íhlut­unar­semi og reglu­gerðar­skógi og meiri laga­átroðningi en nokkurn tímann hafa fundizt dæmi um í gervallri veraldar­sögunni og er þar að auki sjálft, þetta Evrópusamband, stór­hættu­legt eigin þjóðum með árveknis­leysi sínu og linkindar­stefnu gagnvart ofurflæði múslima inn í Evrópu, ofurfjölgun þeirra þar og þegar til orðnum margvís­legum vandræðum og jafnvel mannskæðum hryðju­verkum vegna öfga­hreyfinga sem þrífast í  meiri hluta landanna meðal harðlínu-múslima öðrum fremur.
Allt reyna desperat Dagsmenn,
daprir í kosningasvindli,
að finna sér líklega lagsmenn
með Degi, þeim ESB-dindli.

Jón Valur Jensson.


mbl.is „Aldrei kynnst öðrum eins vinnubrögðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband