"Gervi-hælisleitandi" að verki á Hagamel?

Er það rétt, sem Sveinn R. Pálsson hermir, að gerandinn í þessu óhugn­an­lega máli á Haga­mel hafi verið "gervi-hælisleitandi"?*

Er þá mynztur sem þekkist frá Noregi** farið að eiga sér stað hér?

Sé eitthvað til í þessu, gefur það augljós­lega ástæðu til að láta ekki umfjöllun hælis­leit­enda­mála dragast úr hömlu, sem og að framfylgja sem fyrst brott­vísunar­úrskurðum, áður en í óefni er komið, eins og átti sér einmitt stað í til­felli Marokkó­mannsins vanstillta sem fekk brott­vísunar­úrskurð í janúar sl., en átti síðan glæpa- og vandræðaferil hér, unz hans var dæmdur af Hæstarétti í gæzlu­varðhald fyrir nokkrum dögum (og gildir fram í október).

Hér er í raun ekkert fullyrt um atburðinn á Hagamel og ekkert gefið um nein smáatriði um eðli þessa sorglega verknaðar eða hver gerandinn nákvæmlega var; í bili vitum það eitt, samkvæmt viðtengdri frétt, að hann var erlendur karlmaður á fertugsaldri. Við verðum að bíða niðurstöðu rannsóknar lögreglu og dómsúrskurðar, áður en neitt annað verði fullyrt hér í reynd.

* Sjá innlegg Sveins hér í morgun, 24.9.2017, kl. 07:43

** Þ.e., að í stað þess að hlíta brott­vísunar­úrskurði grípi tilhæfu­laus hælis­leitandi til þess örþrifa­úrræðis að skaða annað fólk (það sama gerðist í tilfelli Úzbekistan-mannsins í Finnlandi, sem framdi morð). Við þekkjum hins vegar dæmi þess hér, að hælis­leitandi hafi skaðað sjálfan sig: þegar einn þeirra kveikti í sjálfum sér. Um ástæður drukknunar annars hælis­leitanda, frá Georgíu, í sjálfum Gullfossi vitum við hins vegar ekki.

PS. 26/9: Það reyndist vera rétt, að hinn grunaði er erlendur hælisleitandi, sjá hér: http://www.visir.is/g/2017170929471/fjoldi-mordmala-yfir-medaltali-sidustu-ara -- Í færslu á Facebók var hann sagður múslimi, en staðfestingu vantar fyrir því.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ekki verið yfirheyrður um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í IKEA í svíþjóð var 2 svenskar drepið í ágúst 2015 - en 55 ára kona og hennar 28 ára son - av en mann frá Eritrea sem var neitað hæli.

Hann gerði þetta til að vera í fangelsi - sem er brandari í svíþjóð - ekki som en alvöru fangelsi.

Frábært ! - að vera slátrað af hælisleitanda þegar þú ert að handla í IKEA.

Aðrar árásir á borð við þetta hafa verið gerðar.

Merry (IP-tala skráð) 24.9.2017 kl. 19:38

2 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

PS. 26/9: Það reyndist vera rétt, að hinn grunaði er erlendur hælisleitandi, sjá hér: http://www.visir.is/g/2017170929471/fjoldi-mordmala-yfir-medaltali-sidustu-ara -- Í færslu á Facebók var hann sagður múslimi, en staðfestingu vantar fyrir því. --JVJ.

Íslenska þjóðfylkingin, 26.9.2017 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband