Gunnlaugur telur Ísl. þjóðfylkinguna geta orðið stærsta flokkinn með tímanum, ef ...

... hinir skella skollaeyrum við ábend­ingum hennar. Glæsi­lega stóð hann sig í löngu viðtali á Stöð 2. Þar var hann þrá­fald­lega spurður út úr, en hafði svör við öllu. Hér er það augljóst öllum að sjá og frammistaða hans frábær:

„Ef hinir flokk­arnir hlusta ekki á þau varnaðarorð sem Íslenska þjóð­fylk­ingin hefur fram að færa þá skal ég lofa ykkur því að Íslenska þjóð­fylk­ingin verður innan skamms orðin stærsti flokkur á Íslandi,“ sagði Gunn­laugur Ingvars­son, oddviti Íslensku þjóðfylk­ingarinnar í Reykja­víkur­kjör­dæmi suður, í beinni útsendingu í Kosn­inga­spjalli Vísis í morgun.

Gunnlaugur sagðist aðspurður finna fyrir hræðslu meðal fólks að opinbera stuðning sinn við flokkinn. „Fólk er hrætt við það að vegna þess að það er hér í gangi svo pólitískur rétt­trúnaður og rétthugsun að ég hugsa að þetta sé verra heldur en þetta var nokkurn tímann í Austur-Þýskalandi á tíma kommúnismans og Erichs Honecker, því hér er fólki hreinlega hótað,“ sagði hann og bætti við að hann hefði sjálfur orðið fyrir aðkasti vegna skoðana sinna.

 

Orð hans um, að ÍÞ gæti orðið flokka stærst, styðjaast ekki aðeins við það, hvílíkt leiðtogaefni hér er augljóslega komið fram í sjálfum honum (já, horfið á myndbandið!), heldur nefnir hann sjálfur dæmin frá Danmörku og Svíþjóð þar sem einmitt þetta hefur verið að gerast, með Sví­þjóð­ar­demókrata með mesta fylgið nú í skoðanakönnunum og danska Þjóðarflokkinn sem stærsta og leiðandi flokkinn á þinginu.

Og þannig ritar fréttakona 365 um málið og vitnar í Gunnlaug Ingvarsson:

Íslenska þjóðfylkingin, sem býður fram í öllum kjördæmum, er einna helst þekkt fyrir umdeildar skoðanir sínar á málefnum innflytjenda. Hefur flokkurinn verið kallaður rasískur, þjóðernisflokkur, flokkur sem ali á andúð á útlendingum og þar fram eftir götunum. Gunnlaugur hafnar því þó alfarið að um sé að ræða rasískan flokk.

„Við viljum halda í okkar menningu, í okkar tungu og okkar sérkenni. Við erum enginn rasistaflokkur. Við viljum bjóða útlendinga velkomna sem eru tilbúnir að samlagast okkar þjóðfélagi og vinna landinu hér gagn. [...] Við erum bara venjulegt fólk. Við erum bara að segja að lærum að reynslu nágrannaþjóða okkar þar sem þessi reynsla er mjög slæm.“

Það var sannarlega tími til kominn asð þessi rödd fengi að heyrast hátt og snjallt og án þess að vera kveðin í kútinn með því að meina henni umfram aðra um málfrelsi, eins og andinn hefur gjarnan verið á RÚV.

Hér er kjördæmasíða flokksins (smellið á línuna, skrollið aðeins niður til að sjá Íslandskortið, smellið þar á línu ykkar kjördæmis, og þá blasir við undirskriftalisti meðmælenda). Hafið samband við skrifstofu flokksins um skil á meðmælendalistum í kjördæmum á höfuðborgarsvæðinu, í síma 789-6223 (Dalshrauni 5, Hafnarfirði) en um skil á listum í Norðausturkjördæmi, hringið annaðhvort í Snorra Óskarsson á Akureyri: 897-1174, hs. 481-1876, eða í mig í síma 616-9070, og við reddum málunum og útvegum hjálp til að koma öllum meðmælenda- og frambjóðendalistum í NA-kjördæmi til yfirkjörstjórnar á Akureyri í tæka tíð fyrir kl. 12 á hádegi nk. föstudag 14. okt., hálfum mánuði fyrir kosningarnar þar sem við þurfum koma rækilega á óvart með fylgi í takt við hinn góða málstað sem Gunnlaugur flutti svo vel í rökræðu sinni á Stöð 2 í gær.
Hér er hægt að skrá sig í flokkinn (afritið): x-e.is
Hér er stefnuskrá flokksins: thjodfylking.is/stefnan

Jón Valur Jensson.


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ath.:

http://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/2182246/#comment3638223

Jón Valur Jensson, 17.10.2016 kl. 08:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband