Miðvikudagur, 17.7.2019
"Alltaf langað til að drepa kristna manneskju!"
sagði hælisleitandi hér á landi í lögreglubíl eftir handtöku. Hryllilegar eru líflátshótanir hans við íslenzka lögreglumenn, hótaði jafnvel að afhöfða annan þeirra og drekka blóðið því til fögnuðar! Sjá frétt DV (Mbl.is virðist enn ekki vaknað í málinu).
Minnt skal á, að þótt múslimar á Íslandi séu enn hlutfallslega fáir, um eða undir 2.000, þá hafa þrír múslimskir karlmenn nú þegar myrt hér tvær konur (á Akranesi og Hagamel) og eitt gamalmenni. Slík hryllingsverk eru ekkert til að alhæfa út frá, en hitt jafn-ljóst, að kæruleysisummæli eins og þau, að múslimar séu almennt meinlausir, eru billeg alhæfing.
Viðauki.
Nú hefur Mbl.is birt frétt um málið, en virðist ósýnt um, að blogga megi um fréttina. Þar kemur m.a. fram, að Landsréttur hafi úrskurðað karlmann þennan í gæsluvarðhald til 9. ágúst "fyrir þjófnað, hótanir, valdstjórnarbrot og líkamsárásir. Maðurinn er hælisleitandi og á engan sakaferil hér á landi."
Undarlega brást héraðsdómur við ósk um gæzluvarðhald þessa glæframennis, en Landsréttur gerði betur:
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að maðurinn yrði látinn sæta gæsluvarðhaldi en Landsréttur sneri þeirri niðurstöðu við í gær.
Samkvæmt rannsóknargögnum hafði lögregla níu sinnum afskipti af manninum á tímabilinu 12. mars til 12. júlí á þessu ári.
Fram kemur að maðurinn hafi hótað lögregluþjóni lífláti með því að ætla að taka af honum höfuðið þegar lögregla hafði afskipti af honum vegna þjófnaðar í Smáralind.
Á leið á lögreglustöðina sagði kærði að h[ann] hafi alltaf langað til þess að drepa kristna manneskju og þegar það yrði þá ætlaði hann að skera höfuð hennar af og drekka blóðið úr henni því til fögnuðar og beindi þeim orðum til lögreglumannsins að hann gæti orðið fyrir valinu hjá honum, segir í greinargerð málsins.
Alls er maðurinn sakaður um fjögur þjófnaðarbrot, tvær líkamsárásir, hótanir og valdstjórnarbrot. Auk þess er maðurinn sakaður um að hafa hótað starfsmönnum lífláti sem gómuðu hann við þjófnað. (Mbl.is)
Jón Valur Jensson.
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)