Útlendingastofnun þekki sinn vitjunartíma

Þessi stofnun þarf að vanda sig, m.a. að grípa ekki til snögg­soð­inna undan­færslu­leiða til að komast hjá gagn­rýni "góða fólks­ins" sem ótt og upp­vægt vill auka sem mest straum hælis­leit­enda til lands­ins. Eitt dæmi um slíka van­hugs­aða fljót­færnis-ákvörðun, án samráðs við dóms­málaráðherra, var þegar ÚTL ákvað í meðvirkni með "No Borders"-krökkunum að hætta aldurs­greiningu "skeggjuðu barnanna" með tannsýnis-athugun, þó að Svíar hafi beitt þeirri aðferð og geri enn með miklum árangri, því að miklum meiri­hluta slíkra er vísað úr landi vegna falskra fullyrð­inga um aldur.

Þar að auki á ÚTL ekki að komast upp með að hleypa neinum vegabréfs­lausum inn í landið, viðkomandi gætu þess vegna verið hér á vegum Ríkis islam (ISIS), al-Qaída, Boko Haram eða Al-Shabab, en síðastnefndu hryðju­verka­samtökin starfa í Sómalíu og víðar í NA-Afríku og drápu árið 2016 hvorki fleiri né færri en 4.281 manns, fleiri en Boko Haram, sbr. hér: http://www.newswATNDrT1cPOtBk6szYYk8K4YGnLJksBn1CftxWP7xXVn1E5yuQtUulltAvQD04vtLHk1Wml9YmHnJHDW5By01mO4laeQ4Iz9KyA1dZwfF0xk1tyqsFgPIeek.com/isis-africa-al-shabaab-boko-haram... -- en fjöldi Sómala er nú á Norður­löndunum, og einnig þeir sækja hingað. Til samanburðar verður þó að geta þess, að í febrúar í fyrra höfðu Boko Haram-samtökin drepið yfir 29.000 manns frá árinu 2010 (sama heimild).

Meðlimir þessara samtaka byrja ekki jafnóðum að drepa fólk í nýju landi, en bíða viðbúnir að grípa til aðgerða, þegar kallið kemur frá foringjum þeirra erlendis, af hvaða tilefni eða í hvaða tilgangi sem þeim þókknast. Og þetta eru herskáir islamistar, allt þetta stórvarasama hyski.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Hælisleitandinn 22 ára en ekki 18
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. mars 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband