Föstudagur, 7.12.2018
Engan fullveldisskerðandi og þjóðskemmandi SÞ-fólksflutningapakka hingað!
Á vef Útvarps Sögu -- utvarpsaga.is -- er nú spurt: "Á Ísland að skrifa undir Marokkóyfirlýsinguna?" Tökum þátt og mótmælum með því áformum fullveldis-svíkjandi pólitíkusa, því að með undirskrift SÞ-fólksflutninga-sáttmálans (sem margar þjóðir hafna*) myndu þeir opna hér allar gáttir á innflyjendaflóð úr Asíu og Afríku á næstu árum!
Þjóðtungan, velferðarkerfið og þjóðríkið eru hér í beinni, yfirvofandi hættu, verði þetta lið ekki stöðvað.
Arnþrúður á Útvarpi Sögu var að greina frá því (samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu), að utanríkisráðherra hafi ákveðið að senda ráðuneytisstjóra til Marokkó vegna undirskriftafundarins (hallelújasamkomu fjölmenningarhyggjunnar) í Marokkó 10. þessa mánaðar!!!
Sjálfstæðismenn, standið undir nafni og mótmælið við þingmenn ykkar og Valhöll með skæðadrífu netbréfa og hringinga. Það sama ættu allir árvakrir kjósendur að gera gagnvart þingmönnum sínum. HÉR er hægt að komast í netföng þeirra og símanúmer!
Og málið er enn alvarlegra en hér er komið fram, fyrir sjálft málfrelsi landsmanna!
Nánar verður fjallað um þetta mál hér e.h. á laugardag.
* Meðal ríkja, sem hafna þessum Sameinuðu þjóða-fólksflutninga-sáttmála, eru Ástralía, Austurríki, Bandaríkin, Búlgaría, Eistland, Ísrael, Króatía, Pólland, Slóvakía, Sviss, Tékkland, Ungverjaland. Önnur ríki, t.d. Danmörk og Noregur, munu ekki skrifa undir nema með alvarlegum fyrirvörum til að tryggja rétt sinn. Ítalía mun trúlega fresta ákvörðun um málið, enda er það víðast hvar lítt eða ekki rætt meðal þjóða, t.d. meðal Þjóðverja. Í Þýzkalandi, eins og víðar, m.a. hér á Íslandi, hafa stjórnmálamenn, fjölmiðlar og flestir álitsgjafar haldið uppi markvissri þöggun um málið!
Jón Valur Jensson (á sæti í flokksstjórn ÍÞ).
Innflytjendamál | Breytt 8.12.2018 kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)