Lögfræðingar Rauða krossins tala út og suður. RKÍ brýtur eigin lög og sýnir bágstöddum Íslendingum fyrirlitningu

Guðríður Lára Þrast­ar­dótt­ir, lög­fræðing­ur RKÍ, segir eitt, og annar lög­fræð­ingur, karl­maður, segir allt annað í há­degis­útvarpi Rúv.

Guð­ríður seg­ist ekki hafa áhyggj­ur því að hætta á man­sali skap­ist með breyt­ing­um sem gerðar voru á út­lend­inga­lög­um í gær, þótt bent hafi verið á, að allt að 90% hælis­leit­enda séu á vegum glæpa­samtaka smyglara.

„Ef þetta er samþykkt og það spyrst út að hér sé lög­gjöf sem sé sér­sam­in fyr­ir fólk með börn þá hafa vaknað spurn­ing­ar hjá mér og fleiri fagaðilum um hvort það skapi raun­veru­lega hættu á man­sali. Að hingað komi fólk með börn og fái sérmeðferð,“ sagði Sig­ríður And­er­sen dóms­málaráðherra í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær. (Mbl.is)

Greinilega nota fullorðnir börnin til að komast að í löndum sem hafa eftirgefanlega innflytjendastefnu. Noregur er ekki lengur eitt slíkra landa, en vinstrimenn og fals­líberalar á Íslandi (Viðreisn, BF o.fl.) vilja með atkvæðum sínum á Alþingi fiska eftir atkvæðum "Góða fólksins" sem hefur enga fyrirhyggju í þessum málum.

Guðríður viðurkennir þó, að gerðar hafi verið tilraunir til að smygla hingað börnum með öðrum en foreldrum þeirra (leturbr. jvj): 

Í þeim ör­fáu til­fell­um þar sem fólk hef­ur komið hingað til lands með börn sem það á ekki hef­ur lög­regla tekið á mál­um, að sögn Guðríðar. Þeim börn­um hafi annað hvort verið komið til síns heima eða í skjól. Hún seg­ir ekk­ert benda til að slík­um til­fell­um muni fjölga. [Svo!!] „Hafi stjórn­völd raun­veru­leg­ar áhyggj­ur af þessu þá þarf auðvitað að grípa til aðgerða til að auka fræðslu og skýra verklags­regl­ur í tengsl­um við skimun og rann­sókn á mögu­legu man­sali svo við get­um þá veitt þess­um börn­um viðeig­andi aðstoð og vernd.

“Hún seg­ir lík­ams­rann­sókn­ir hafa verið fram­kvæmd­ir hér á landi á börn­um og for­eldr­um til að ganga úr skugga um fjöl­skyldu­tengsl­in séu til staðar. Þær hafi þó ekki verið fram­kvæmd­ar á hæl­is­leit­end­um. „Það á því ekki að vera neitt mál að ganga úr skugga um það.“

En mjög er hætt við því, að aktívistar, No Borders-fólk, vinstri flokkarnir og lög­fræð­ingar Rauða krossins reki upp Ramakvein ef ætlazt verður til, að þessir einstaklingar gefi lífsýni, rétt eins og sömu aðilar amast við því að staðfest verði með líkams­skönnun hvort fullyrðingar skeggjaðra stráka standist um að þeir séu á barnsaldri !

Þá lætur Guðríður sem lagabreytingin í nótt hafi ekki áhrif til frambúðar, "aðeins" gagnvart 80 börnum sem hingað eru komin nú þegar (en aðstandendur þeirra, með þeim, gætu leikandi verið um 200). En vinstri menn með þetta frumvarp sitt stefndu greinilega í aðra átt með greinargerð þess (sem stenzt ekki í ýmsum atriðum, eins og Sigríður Andersen, konan með beinið í nefinu, benti á í Kastljósviðtali sínu í gær). Og þrátt fyrir að þessi lögfræðingur RKÍ, Guðríður, segi eitt í viðtali við Mbl.is, þá kom annar lögfræðingur, karlmaður, fram í hádegisútvarpi Rúv. og sagði allt annað og á honum greinilegt að skilja, að haldið verður áfram að reyna að rjúfa þær varnir sem þó er enn að finna í lögum og verklagsreglum Útlendingastofnunar.

Guðlaugur Ævar Hilmarsson, félagi í flokksstjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar, hefur bent á, að þvert gegn reglum sínum brýtur Rauði kross Íslands á bágstöddum landsmönnum og setur útlendinga langtímum saman fremst í röðina til að hjálpa. Í þeim reglum RKÍ, strax í 2. gr. laga samtakanna, er nefnilega tekið fram, að hann eigi "að standa vörð um og aðstoða þá sem verst eru staddir í samfélag­inu," en þetta orðalag vísar augljóslega til ÍSLENZKS samfélags.

Þessi ábending leiðir þannig í ljós, hvernig Rauði krossinn hér á landi hefur svikizt undan höfuðskyldu sinni og er farinn að taka aðvífandi útlendinga fram yfir okkar eigin bágstöddu landsmenn, sem honum ber þó skylda til að annast!

Þá hefur fr. Ásta Óla lagt til á Facebók, að höfðað verði mál gegn Rauða krossinum vegna þessarar vanrækslu hans við sínar ótvíræðu skyldur við bágstadda Íslendinga. Taka ber undir þá tillögu hennar.

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Ekkert í lögunum eykur hættu á mansali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband