Skrifstofan opin núna um helgina laugardag 23. og sunnudag 24. sept. kl. 14 – 16

Við verðum með opna skrifstofu núna um helgina laugardaginn 23. september og sunnudaginn 24. september frá kl. 14 til 16 báða dagana. Hvetjum alla stuðningsmenn til að nota tækifærið og koma á skrifstofu okkar og skrifa undir meðmæli með framboði okkar fyrir Alþingiskosningarnar og taka með sér meðmælalista og hjálpa okkur að safna meðmælum.

Við verðum með heitt á könnunni og með því.

Stjórnin.

Skrifstofa Íslensku þjóðfylkingarinnar er í Dalshrauni 5, Hafnarfirði, beint á móti Fjarðarkaupum (handan þjóðvegarins til Keflavíkur).


Fyrsta tilfelli hálf-brjálaðs islamista komið upp á Íslandi - verið hér undir fölsku nafni í tvö ár, ógnandi, í glæpum og hlynntur Ríki islams!

Undarleg er biðlund og þolinmæði lögregl­unnar og einkum Útlend­inga­stofnunar við þennan mann, sem á hér alls ekki heima og á sér engar máls­bætur. Ótrú­legur ferill hans er rakinn hér á Mbl.is (tengill neðar) og DV.is. Það er í meira lagi heppi­legt að þessi Marokkó­maður hefur engan mann drepið, eins og landar hans gerðu á Spáni og í Finnlandi nýlega.

Hér er upphaf DV-fréttarinnar:

Hælisleitandi á Íslandi gekk berserksgang nakinn og birti áróður fyrir íslamska ríkinu

Talinn brotamaður samkvæmt ógnarmati - Birti mynd á facebook tengda Ríki íslams og ritaði Ísland undir myndina

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur sem kveður á um að erlendur karlmaður, sem synjað var um hæli hér á landi skuli sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 2.október. Lögregla telur manninn ógna almannahagsmunum en hann hefur ítrekað komist í kast við lögin undanfarnar vikur. Maðurinn villti á sér heimildir fyrir íslenskum yfir­völdum og er brotamaður samkvæmt ógnarmati RLS.

Manninum var synjað um vernd síðast með ákvörðun kæru­nefndar útlendinga­mála 26. janúar á þessu ári Unnið er að því að brottvísa manninum frá Íslandi og er embætti Ríkis­lögreglu­stjóra í því skyni í samskiptum við yfirvöld í móttöku­landinu.

Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að maðurinn hafi sótt um hæli á Íslandi í september 2015. Gaf hann þá upp ákveðið nafn og sagðist vera frá Marokkó. Sagðist hann einnig hafa setið í fangelsi í Marokkó í fimm mánuði vegna þátttöku sinnar í andspyrnuhreyfingu.

Þá kemur fram að lögregla hafi ítrekað haft afskipti af manninum undanfarna mánuði, meðal annars vegna hótana, ógnandi og annarlegrar hegðunar hans, ofbeldis og fíkniefna­lagabrota. Í kjölfar þess hafi farið fram ógnarmat á mann­in­um hjá embætti Ríkislögreglu­stjóra þar sem meðal annars var óskað eftir upplýsingum frá erlendum löggæslu­stofnun­um um hann. Við gerð matsins kom í ljós að maðurinn hafði birt mynd á Facebooksíðu sinni 1. ágúst sl. tengda hryðju­verka­samtökunum Ríki íslams og ritað Ísland undir myndina.

Maðurinn leyndi eftirnafni sínu fyrir íslenskum yfir­völdum og villti þannig á sér heimildir. Gaf hann upp nokkur mismunandi nöfn og útgáfur af nafni sínu og annað fæðingarár, meðal annars í Noregi, Belgíu, Hollandi og Frakklandi. Samkvæmt upplýsingum frá alþjóðlegum löggæslu­stofnunum gerðist maðurinn sekur um þjófnaði í Noregi á árinu 2014, notaði fölsuð ferðaskilríki í Hollandi, braut útlendingalög í Frakklandi á árinu 2008 og þá er hann skráður í málaskrá lögreglu í Marokkó fyrir ofbeldi og hótanir í garð foreldra sinna árið 2012.

Niðurstaða ógnarmats RLS er sú að maðurinn sé brotamaður og fullt tilefni til að lögregla ynni í hans málum vegna ógnandi og undarlegs atferlis hans.

Mál sem eru til meðferðar og rannsóknar lögreglu undanfarna mánuði í tengslum við manninnn eru tíu talsins og eiga sér stað á tímabilinu 6.júlí til 2.september á þessu ári ...

----Rakið er þetta nánar á DV.is, látum fyrsta tilfellið nægja hér:

6. júlí sl. barst lögreglu tilkynning um að maðurinn hefði verið nakinn og blóðugur og gengið berserksgang. Braut hann topplúgu á bifreið og tók um andlit manns, reif af honum gleraugun og klíndi blóði í fötin hans. Sagðist hann hafa neytt lyfja og reykt maríjúana áður en þetta gerðist og því ekki getað ráðið við sig og ekki geta útskýrt hegðun sína....

----Að lokum: "Var það niðurstaða héraðsdóms að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 2.október og hefur Hæstiréttur sem fyrr segir staðfest úrskurðinn." (DV.is)

Já, hingað koma ýmsir sem notfæra sér gestrisni okkar og mis­nota aðstöðu sína, með álagi á okkar allt of fámenna lögreglu­lið, að ógleymdum ríkis­sjóði og skatt­greið­endum, en nú er talið, að heildarkostnaður vegna hælisleitenda og flóttamanna á þessu ári einu saman sé ekki undir 14 milljörðum króna. En í boði veik­lyndra pólitískra flokka eins og "Viðreisnar" og "Bjartrar fram­tíð­ar", auk VG, Samfylk­ingar og Pírata, sem og jafnvel í boði Sjálfstæðis­flokksins, hefur þetta verið liðið og umborið og því jafnvel hossað í umræðum manna sem dæmi um mannúð og umburðarlyndi!

Ef þetta, þessi óumbeðni kostn­aður sam­félagsins, er þeirra mannúð og umburð­arlyndi, biðjum þá heldur um vægð stjórnvalda við fátæka Íslendinga, aldraða og öryrkja og jafnvel fárveikt fólk sem hírist í tjöldum og má senn búast við mun kaldari nóttum!

Eitt er víst: að Íslenska þjóðfylkingin tekur málstað Íslend­inga fyrst og fremst, ekki þeirra sem misnota sér græsku­lausa gestrisni okkar og ástæðu­lausa vorkunnsemi.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ritaði Ísland undir mynd af Ríki íslams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband