Óstjórn í innflytjenda- og hælisleitendamálum: Útlendingarlöggjöfin mistök sem þarf að afturkalla

Guðmundur Þorleifs­son, formaður Ís­lensku þjóð­fylk­ing­arinnar, er í ágætu viðtali á Mbl.is (tengill neðar). Enn öflugri og snarp­ari er þó grein hans á vef flokks­ins, x-e.is, með ofan­greindri fyrirsögn. Lesið hér á eftir! Meðmælin er auðvelt að veita. -JVJ.

Guðmudur í framboði til formanns

Formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar skrifar:

Það er augljóst að núverandi ríkisstjórn hefur enga stjórn á innflytjendamálum, hvort heldur eru hælis­leitendur eða flóttafólk.  Að ekki sé talað um óstjórnina á vinnumarkaðinum, þar sem talið er að veruleg vanhöld séu á eftirliti um þá er hér vinna og að þeir hafi tilskilin réttindi og njóti þeirra kjara sem samið hefur verið um að gildi á íslenskum vinnumarkaði.

Nýlegt dæmi er að vængbrotinn Sjálfstæðisflokkur, forystulaus með öllu, þó að í reynd séu þeir við stýrið á núverandi ríkisstjórn, þá hefur hann enga stjórn á þeim ráðherrum sem eru í Viðreisn og Bjartri framtíð.  Máttlausar eru tillögur dómsmála­ráðherra í að draga úr endalausum fjár­austri til afgreiðslu umsókna hælisleitenda. En velferðarráðherra Viðreisnar er snar í snúningum sem aldrei fyrr og boðar strax að hann komi til með að greiða fyrir þá sem Útlendinga­stofnun hafnar sem hælis­leitendum. Velferðar­ráðherra ætlar að greiða þeim eftir sem áður uppihald og aðlögunar­kostnað, þannig að tilhæfulausir hælis­leitendur, sem hefur verið hafnað, ná að nýta sér skattpen­inga hins almenna íslenska ríkisborgara.

Hvert erum við að stefna?

Íslenska þjóðfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn sem er með skýra stefnu í þessum málum og er ekki tilbúinn að hvika frá henni. Hún felur í sér að afnema núverandi útlendinga­lög, sett verði lög sem taka mið af fyrri lögum. Þá verði fyrirtæki sem flytja fólk til landsins gerð ábyrg fyrir þeim, þannig að komi slíkir farþegar skilríkja­lausir, verði þeim umsvifa­laust snúið strax við á ábyrgð þeirra sem fluttu þá til landsins. Þeim. sem hafa skilríki, en koma frá öruggum lönd­um, verði snúið við innan 48 tíma.  Þeir aðrir, sem talið er að eigi mögu­leika á að fá land­vistar­leyfi, fái víðhlítandi meðferð, enda geti þeir gert grein fyrir sér með skilríkjum og skal meðferð þeirra ekki taka meira en þrjá mánuði. Hvað varðar móttöku á flóttafólki sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að taka á móti, samkvæmt samn­ingum við Sameinuðu þjóðirnar, skal að öllu jöfnu leitast við að taka einstak­linga sem eru með áþekkar lífsskoðanir og tíðkast hér á landi og eru tilbúnir að leggja það á sig að læra tungumál okkar og laga sig að íslenskri menningu og háttum.

Íslenska þjóðfylkingin varar við fólki sem er eins og þekktur Ragnar Reykás, blaðrar út og í, hvernig sem vindurinn blæs hverju sinni. Stjórnmálamenn þurfa að þora að hafa skoðanir, hafa pólitíska sýn, en hlaupa ekki undan í flæmingi, vegna þess að þeir þola ekki að vera kallaðir illum nöfnum (rasistar t.d.). Ef þeir eru trúir sjálfum sér falla slíkar upphrópanir af mönnum, því málstaðurinn hlýtur að þola gagnrýni.

Þegar menn skoða allt það fjármagn sem í þennan málaflokk fer og áætla má að verði nær 10 milljörðum á þessu ári, þá er núverandi ríkisstjórn tilbúin að fórna eigin fólki, t.d. sauðfjárbændum, smábátasjómönnum og fleirum sem myndu kosta lítið brot af þessari óráðsíu. Það er greinilegt að núverandi ríkisstjórn er fjandsamleg Íslendingum, en er tilbúin að brjóta niður íslenskt samfélag með það að markmiði að þvinga landið inn í ESB.

Íslenska þjóðfylkingin kemur ætíð til með að standa fyrst og fremst vörð um hagsmuni landsins og þeirra sem hér búa. Því miður hefur flest það, sem Íslenska þjóðfylkingin varaði við fyrir gildistöku núverandi útlendingalaga og ítrekaði í aðdraganda síðustu alþingiskosninga, komið fram. Því ættu landsmenn að leggja við hlustir og láta ekki slá ryki í augu sín. Flokkurinn mun standa vörð um ykkar hagsmuni hvar í sveit sem þið standið.

Guðmundur Þorleifsson.


mbl.is „Okkur líst alltaf mjög vel á kosningar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband