Föstudagur, 25.8.2017
Viljum við svona sýndarmennsku-stjórnmálamenn?
Frönsku forsetarnir Macron, Hollande og Sarkosy eiga það sameiginlegt að hafa sólundað af ríkisfé í það að láta sminka sig og farða! Rakari Hollandes fekk 12,6 millj.kr. árlega úr ríkissjóði. Kona hans var á háum ríkislaunum, Macron vildi einnig ráða sína í forsetahöllina. Hann er fyrir vikið hrapaður niður í það að vera óvinsælli en Trump Bandaríkjaforseti, sá sem manna mest er rægður nú um stundir í fréttastofum heims.
Sarkozy eyddi 8.000 evrum, einni milljón króna, á mánuði í förðun þegar hann gegndi embætti forseta! Þvílík pjattrófa!
Um þetta hafði verið fjallað í Vanity Fair, og er það einmitt við hæfi!
En hreykjumst ekki upp gagnvart Frökkum; gætum fremur að okkar eigin yfirstétt, eins og seðlabankastjóranum og ýmsum ráðherrum sem þiggja óverðskulduð laun og fríðindi á kostnað skattgreiðenda. Það sama á við um borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa, þrátt fyrir takmörkuð fundahöld og vinnu. Þetta þarf allt að endurskoða, þegar þar að kemur.
Jón Valur Jensson.
Háar fjárhæðir í förðun forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt 26.8.2017 kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)