Hjátrúin á loftslagshlýnun af mannavöldum nær nýjum hápunkti

Eigum við nú að fara að taka mark á Árna Finns­syni um nátt­úru­vernd­ar­mál? Hann hefur löngum verið þar á yzta kanti, umboðs­laus sem hann þó er til nokkurra ábúð­ar­mik­illa yfir­lýsinga, þó verið óspar á þær, s.s. um hvala­mál og jafnvel þorsk­veiðar.

Hjátrúin á loftslags­hlýnun af manna­völdum nær nú hápunkti í viðleitni þýzkra vald­hafa og einkum vinstri manna til að sverta Trump Banda­ríkja­forseta fyrir að taka ekki þátt í Parísar­ráðstefnu­samkomu­laginu. Gamlir óvinir Banda­ríkj­anna stökkva fram úr sínum skúma­skot­um eins og þeir upplifi nú endur­nýjun líf­dag­anna. Þó hefur jörðin áður mátt reyna mörg hlýinda- jafnt sem ísaldar­skeiðin. En ótrúlegasta skynsemdar­fólk lætur einföld gröf "sannfæra" sig.

Og nú reynir Árni Finnsson, formaður hinna dularfullu Náttúru­verndar­samtaka Íslands, af öllum mönnum að kalla Íslendinga til liðs við þessi ósönn­uðu hjá­fræði og hyggur sig geta snúið útgerðar­mönnum um fingur sér! Lítt dugar það honum til vegs­auka í þessu máli, að hann fekk eitt árið viður­kenningu frá ófaglegum hópi í utanveltu­samtökum, m.a. Semu Erlu Serdar, Einari Kárasyni rithöfundi, einum borg­ar­full­trúa "Besta flokks­ins" og Gunn­ari Hólm­steini Ársæls­syni ESB-predikara.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ákvörðun Trump „mikil ógn við Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkavæðingar- og frjálshyggjustjórnin herðir enn að ríkisfjármálum, almenningi til bölvunar

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára felur í sér brot gegn fyrri lögum, 3% samdrátt í samneyzlu, 2% samdrátt til menntakerfisins, sem hafði í kosningum verið lofað rýmri framlögum eftir langtíma samdrátt. Annað eftir þessu!

Engin loforð ráðandi flokka um aukin framlög til heilbrigðismála næsta árið er að finna í þessari áætlun sem var samþykkt sem ályktun Alþingis í nótt. Þar inni í var framlag til að kaupa þriðju þyrlu fyrir Landhelgisgæzluna, en ekki til að standa undir útgjöldum til að manna þá þyrlu!

Samgöngumál eru áberandi vanrækt, og mætti halda, að stefnt sé að því að fjölga slysum á þjóðvegum! 

Almennt er einkavæðingar- og frjálshyggjustefnan á fullu í þessari fimm ára áætlun, og ræður Sjálfstæðisflokkurinn för, einnig um það að standa ekki við loforð um að rétta kjör öryrkja. Vinstrimennska Bjartrar framtíðar heyrir nú til sögubóka.

Undirritaður fylgdist vel með umræðunum á þingfundi sem stóð til kl. 2.10 í nótt og skrifaði um málið þessa grein: Flokksræðið á fullu á Alþingi, í bæði stjórnarflokkum (sem ana áfram í óverjanlegri 5 ára áætlun) og stjórnar­andstöðu. Margt mjög athyglisvert kom fram í þeirri umræðu allri, m.a. að þrjú bandalög virðast nú við lýði á Alþingi og óvæntir "bedfellows" þar í einu þeirra.

Jón Valur Jensson.

PS. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir fengju sam­tals 22 þing­menn ef kosið væri í dag, sem er 10 þing­mönn­um minna en þeir fengu í alþing­is­kosn­ing­un­um síðasta haust, en stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina hef­ur dreg­ist jafnt og þétt sam­an frá kosn­ing­um.Stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina hef­ur dreg­ist sam­an um 3% frá síðustu mæl­ingu en 36% styðja nú rík­is­stjórn Sjálf­stæðis­flokks, Viðreisn­ar og Bjartr­ar framtíðar. Þetta kem­ur fram í nýj­um þjóðar­púlsi Gallup. Rúv greindi fyrst frá.

Heimild:

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/06/01/enn_faerri_stydja_rikisstjornina/


mbl.is Fjármálaáætlun samþykkt með ágreiningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. júní 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband