Útlendingastofnun býst við 1700-2000 hælisleitendum á þessu ári! Stöðvum þann straum!

Þetta er ófremdarástand og verður það meðan Sigríður innanríkisráðherra fylgir ekki eftir vel upplýstri sannfæringu sinni á þessum málum.

1. jan.-30. apríl sl. sóttu 285 manns um hæli hér á landi, voru 179 á sama tíma í fyrra.

Þessi mikli fjöldi um­sókna á fyrstu vik­um árs­ins þykir benda til þess að heild­ar­fjöldi hæl­is­um­sókna fari veru­lega fram úr töl­um síðasta árs, en þá komu hingað alls 1.132 hæl­is­leit­end­ur.

Kem­ur þetta fram í skrif­legu svari Útlend­inga­stofn­un­ar til Morg­un­blaðsins, en þar seg­ir einnig að stofn­un­in geri nú ráð fyr­ir að heild­ar­fjöldi hæl­is­um­sókna á þessu ári verði jafn­vel á bil­inu 1.700 til 2.000 um­sókn­ir. (Mbl.is)

Íslenska þjóðfylkingin vill, að hælisleitendum, sem koma frá löndum þar sem ekkert stríðsástand ríkir, verði vísað til baka innan tveggja sólarhringa.

En svo mikil var aðsóknin, einkum frá Albaníu og Makedóníu, síðustu mánuði liðins árs: 550 manns, að það var allt of margt til þess að Útlendingastofnun næði að afgreiða mál þeirra með þeim hraði sem til hafði staðið. (Hádegisútv. Rúv).

Fengju vinstri flokkarnir að ráða í þessum efnum, yrði stefnt út í algera ófæru, með miklu álagi á velferðarkerfi okkar, verðbólgu­hvetjandi áhrifum á leigu­markaði og með ófarsælli fjölgun múslima eins og í nágranna­löndum okkar á liðnum árum, þótt nú sé eitthvað reynt að takmarka þar innstreymið. En á sama tíma eru hér stjórn­mála­menn, sem vilja ekkert læra af reynslunni og fylgja fremur pólitískum rétttrúnaði og "leiðsögn" RÚV (ríkisins í ríkinu) sem stendur nær ösmáum öfgahópi, "No Borders!", heldur en íslenzkum þjóðar­hagsmunum.

Image result for Sigríður Andersen Verður nú á Sigríði Andersen treystandi í þessum málum, eða ætlar hún að lúffa fyrir harðlínu-fjölmenningarsinnum eins og Guðlaugi Þór Þórðasyni og Unni Brá Konráðs­dóttur í sínum eigin flokki? -- að ekki sé talað um ábyrgð­ar­lausu óráðs­mennina í hinum flokkunum!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Býst við um 2.000 hælisleitendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. maí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband