Föstudagur, 1.12.2017
Skjalafals og förgun vegabréfa á ekki að veita neinum aðgang að Íslandi
Samt hefur fimm manna fjölskylda komið hingað með þeim hætti, enn eitt tilfellið, og sótt um hæli. Í nýjum stjórnarsáttmála er gert ráð fyrir að gera vel við umsækjendur um hæli. Þetta er ein ástæðna þess að Íslenska þjóðfylkingin hafnar stuðningi við stefnu þessara stjórnarflokka.
Með því að koma vinnureglum okkar í innflytjendamálum á hreint, spyrst það fljótt út, að hér sé ekki hægt að hafa yfirvöld og þjóð að fíflum.
Og já, stefna stjórnarflokkanna í málum flóttamanna og hælisleitenda er dæmi um spillingu í stjórnmálum. Hér hafa Vinstri græn fengið að koma ár sinni svo fyrir borð, að stefnt er á innkomu þúsunda múslima til landsins á næstu fjórum árum. Sá er EKKI vilji landsmanna hér. Í því efni erum við í fullu samlyndi við yfirgnæfandi vilja fólks í helztu löndum Evrópu. Þeir, sem vita það ekki, eru úti að aka í einu helzta umræðuefni samtímans; á meðan er þeim ekki treystandi til skynsamlegra ákvarðana fyrir okkar hönd.
JVJ.
Kostaði fjölskylduna fimm milljónir að koma til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)