Fimmtudagur, 5.10.2017
Kosningabaráttan er rétt að byrja - skoðið algera sérstöðu ÍÞ!
Í gær var t.d. fyrsta fjölmiðlaviðtalið við formann Þjóðfylkingarinnar og öflug auglýsingaherferð að byrja með flettiskiltum og öðrum stórum auglýsingum við alfaravegi.
Viðtalið við Guðmund Þorleifsson, sem er oddamaður flokksins í Rvík-norður, var kl. 4-5 í Útvarpi Sögu í gær, sjá hér: http://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2203690/
Enginn af Sjöflokknum á þingi hefur beitt sér gegn losaralegum Útlendingalögunum eins og ÍÞ gerir --- og heldur ekki Flokkur fólksins né Miðflokkur Sigmundar!
Hver vill MARGFALDA fjölda flóttamanna og hælisleitenda hingað, sem samþykktir verða á næsta ári (ef VG fær að að ráða)? Um 6.000 slíkir á næsta kjörtímabili, samkvæmt birtri stefnuskrá Vinstri grænna, og langlíklegast er, að mikill meirihluti þeirra verði múslimar!!!
Jón Valur Jensson.
Níu flokkar gætu náð inn á þing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.10.2017 kl. 04:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5.10.2017
Væri þessi nýja könnun marktæk, væri það gott start hjá ÍÞ og mest þó hjá tveimur efstu!
Ný skoðanakönnun á vef Útvarps Sögu sýnir enn sérstöðu hlustenda hennar, þar sem Flokkur fólksins hefur notið vinsælda -- þó umtalsvert minni nú en í síðustu könnun. Nýi hástökkvarinn er ótvírætt Miðflokkurinn.
Nú raðast flokkarnir þannig:
Flokkur fólksins: 32.45%
Miðflokkurinn: 26,95%
Sjálfstæðisflokkurinn: 20,04%
Íslenska þjóðfylkingin: 4,96%
Framsóknarflokkurinn: 3,90%
Samfylkingin: 2,84%
Vinstri græn: 2,84%
Skila auðu: 2,66%
Píratar: 2,13%
Alþýðufylkingin: 1,24%
Viðreisn: o,72%
Björt framtíð: o,00%
Þetta lítur vel út! En vitaskuld er þetta ekki marktæk niðurstaða meðal annarra en takmarkaðs hóps manna. En kynning á stefnumálum Íslensku þjóðfylkingarinnar er þó hafin; formaðurinn var t.d. í fróðlegu viðtali á Útvarpi Sögu í gær (Sjá það í síðustu færslu hér).
JVJ.
Skoðanakannanir | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 5.10.2017
Upplýsandi viðtal við formann ÍÞ
Hér er mjög fróðlegt viðtal við formann Íslensku þjóðfylkingarinnar, Guðmund Karl Þorleifsson, í Útvarpi Sögu þennan miðvikudag, sem hlusta má á í heild í gegnum hljóðskrá hér (og mynd fylgir af honum í heimsókn á ÚS): http://utvarpsaga.is/vilja-fara-norsku-leidina-i.../
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)