Héldu ekki vatni yfir "morði" á hvalsfóstri sem kom við hvalveiðar, en í lagi að drepa nánast fullþroska barn á 18. viku!

Frá Svandísi Svavarsdóttur heil­brigðis­ráðherra Vinstri grænum : "Fóst­ur­eyðing verður heim­il fram að lok­um 18. viku meðgöngu, verði frum­varp um ný heild­ar­lög um þung­un­ar­rof samþykkt." Hræsni vinstri­vill­inga er átak­an­leg. Þeirra græn­metis- og vegan­istar borða ekki það sem þarf að aflífa  Þeir héldu ekki vatni yfir "morði" á hvalsfóstri sem kom við hvalveiðar. En það er í lagi að drepa nánast fullþroska barn á 18 viku í móðurkviði  Barnið er drepið með eitur­sprautu og svo er það klippt niður í parta inni í móðurinni og dregið þannig út með töngum  Vinstrið vill kalla þetta þungunarrof  en er í raun morð.

PS. 

Guðlaugur Ævar Hilmarsson

mbl.is Fóstureyðing verði heimil fram að 19. viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danmörk fyrir Dani fyrst og fremst

Nú er Pia Kjærsgaard í fararbroddi fyrir því að skera niður styrki um 50% til innflytj­enda til Danmerkur, er ekkert að hika við það, enda til hvers? Á ekki Danmörk að vera fyrir Dani í 1., 2. og 3. lagi og svo aðra eftir því sem bezt hentar og sann­gjarnt er? Gest­risni er gömul og góð dygð, sem þó má ekki láta yfirgangs­sama misnota sér.

Um þetta er nú grein í Financial Times, gott að sjá það mál með þeirra glögga gestsauga, hér er hún: Denmark to cut immigrant benefits in half.

Já þetta eru gleðitíð­indi frá Dan­mörku. Vonandi sjá íslensk stjórnvöld að sér og skera niður útgjöld og uppihalds lúxusinn til hælis­leitenda. Útgjöld vegna þeirra námu sex milljörðum króna á árinu 2017 einu saman, og er það engin hemja, sex þúsund milljónir! En hitt stendur í sjórnvöldum að veita tveimur milljónum króna til Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands! Það er greinilegt, að Íslend­ingar eru ekki nr. 1, 2 og 3 í huga núverandi stjórnvalda, en til hins eru þeir hentugir: að skattpína þá!

Jón Valur Jensson og Guðlaugur Ævar Hilmarsson,

eiga báðir sæti í flokksstjórn ÍÞ.


Förum okkur hægt í móttöku flóttamanna og hælisleitenda! Önnur mál miklu brýnni ...

Banda­ríkjastjórn­ ætlar að draga úr árlegum fjölda flótta­manna sem fái að koma þang­að, nið­ur í 30.000. Það jafn­gild­ir um 30 manns hér, en hitt ber að hafa í huga, að ekki vor­um við ábyrg fyrir borg­ara­stríði í Sýr­landi, sem er stór or­sök hins al­þjóð­lega flótta­manna­vanda, en stjórn Obama og Hillary Clinton gerði sitt til að hrinda af stað upp­reisn­inni gegn Assad Sýrlands­forseta.

Stefna Vinstri grænna að taka hér við 500 flótta­mönn­um á ári er gersamlega út úr kú og tekur hvorki mið af getu okkar, siðferðis­legum skyldum né af fyrir­sjá­anlega vara­sömum afleið­ingum mikils flótta­manna­straums, eins og nágranna­þjóðir okkar hafa upplifað (Skandinavía, Bretland, Holland, Belgía, Þýzkaland).

Meðan ríkisstjórnin og sveitar­stjórn­ir sinna hvorki þeim stjórnar­skrár­bundnu skyldum sínum (76. gr.) að tryggja framfærslu fátækra, öryrkja og heimilis­lausra né að sinna brýnni þörf sjúklinga fyrir lífsnauð­syn­leg lyf, þá er fráleitt af þeim að ausa milljörðum í aðkom­andi flóttamenn og (að mestu leyti) ólöglega hælis­leitendur. Í fyrra kastaði ríkis­stjórnin, gegnum ýmis ráðuneyti sín, sex millj­örðum króna í hælisleitendur! Á sama tíma fá krabba­meins­sjúklingar jafnvel ekki þau lyf sem þeir þurfa á að halda! Ennfremur eru lyf hér mörg alls ekki í neinum gæðaflokki.

Stjórnvöldum í þessu lýðveldi ber að annast sína eigin borgara fyrst, áður en þau, undir þrýstingi annarlegra afla, fara að spá í að flytja inn fleiri flótta­menn og hælis­leit­endur. Og með hagkvæmni og nýtingu hjálpar­fjár í huga, er miklu skilvirkara að styrkja bágstadda í 3. heiminum í þeirra eigin löndum í stað þess að flytja vanda þeirra inn til Íslands, þar sem á báða bóga er erfitt um aðlögun að gerólíku samfélagi, menningu og siðferðisvenjum.

Jón Valur Jensson. Höf. er í flokksstjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar.


mbl.is Minnka flóttamannakvótann í 30.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfir 5.500 hæl­is­leit­end­ur "týndir"!

Lög­regl­an í Danmörku veit ekki hvar 5.564 hæl­is­leit­end­ur þar eru niður komnir, þar af 2.729 ein­stak­ling­ar, sem sótt hafa um hæli í Dan­mörku en ekki fengið niður­stöðu í mál sín, og aðrir 2.835 hæl­is­leit­end­ur, sem neitað var um hæli í Dan­mörku, og gætu þeir ýmist verið þar ennþá eða komnir til landa sem þeir geta auðveldlega flutzt til. Þeir gætu verið að stunda ólöglega vinnu og tekið störf af Dönum, og sumir þeirra gætu verið glæpamenn eða tilheyrt hryðju­verka­hópum að sögn lögreglunnar, sem leggur því mikla áherzlu á að hafa upp á þeim.

Sá, sem þetta tíndi saman í mbl.is-frétt, hefur áhyggjur af því, að slíkt lið eigi auðvelt með að færa sig hingað frá Skandinavíu; það væri þá viss öryggisógn við okkar samfélag. 

Jón Valur Jensson.


mbl.is Veit ekki um fjölda hælisleitenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur árangur Svíþjóðardemó­kr­at­a

Vitaskuld er það stórsigur Sví­þjóðar­demó­krata í kosningunum, ef þeir fá 19,2% atkvæða, í stað 12,9% fyrir fjórum árum. Á sama tíma hefur fylgi Sósí­al­demó­krata hrapað úr 31,0% í 26,2% og Móderata úr 23,3% 2014 (en 30,1% árið 2010) í 17,8% nú (sem Bogi Ágústsson vill þó kalla "átján prósent"). Sví­þjóðar­demó­kratar eru þar með orðnir stærstir meðal borg­aralegu flokkanna, en hafa þó aðeins setið 8 ár á þingi! Þetta er því einstaklega mikill árangur.

Þessar tölur byggja þó á útgönguspám, en kjörstöðum var lokað kl. 18.00 og búizt við að talningu ætti að geta lokið í kvöld.

Falli umhverfisflokkurinn Miljöpartiet út af þingi (hann er rétt ofan við 4% lágmarkið nú), er ríkisstjórn kratans Löfvens augljóslega fallin.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Sósíaldemókratar stærstir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinna Svíþjóðardemókratar stórsigur í kosningunum í dag?

Víst er talið, að flokk­ur­inn stór­auki fylgi sitt, en í kosn­ing­un­um 2014 fengu SD 12,9% at­kvæða og 49 þing­sæti af 349. Nú gætu þeir feng­ið um 19 eða jafn­vel yfir 20% atkvæða, en það fer m.a. eftir því, hvaða áhrif það hefur, að flokk­ur­inn ákvað að snið­ganga SVT, þ.e. sænska ríkis­sjón­varp­ið, á loka­degi kosn­inga­bar­átt­unn­ar, eftir áber­andi hlut­leysis­brot frétta­manna þar. Við í Ís­lensku þjóð­fylk­ingunni þekkjum sambærilega hlut­drægni sjón­varps­manna hér á Íslandi kvöldið fyrir síðustu borgar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Við í ÍÞ óskum Svíþjóðar­demó­krötum góðs gengis í þessum kosningum, um leið og við viljum hrósa flokks­foryst­unni fyrir að hreinsa út nazistísk öfl sem höfðu komið sér fyrir í flokknum, en voru þó í raun aldrei fjölmenn.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Spilað upp í hendur Svíþjóðardemókrata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband