"Fyr­ir hvern einn flótta­mann, sem við hjálp­um hér, get­um við aðstoðað 12 flótta­menn úti"

Birgir er oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi.  Þetta segir Birgir Þór­arins­son, ný­kjör­inn alþm. Mið­flokksins í Suð­ur­kjör­dæmi, og talar af reynslu: hann vann við flótta­manna­aðstoð á veg­um SÞ og er um­hugað um mál­efni flótta­manna. 82% sýr­lenskra flótta­manna vilja snúa aft­ur til síns heima, seg­ir hann.

Flótta­manna­stofn­un Sam­einuðu þjóðanna h[efur] víða unnið gott starf í flótta­manna­búðum, þar sem heilsu­gæsla, skól­ar og jafn­vel fé­lags­legt kerfi, [er] sett upp á undra­verðum hraða, að sögn Birgis. (Mbl.is-viðtal, sjá tengil neðar).

Hann tek­ur þó fram að hann sé að sjálf­sögðu hlynnt­ur því að Ísland taki á móti kvóta­flótta­mönn­um. „En ef hægt er að hjálpa þessu fólki á þess­um svæðum, þá er til mik­ils að vinna í þeim efn­um.“

Það er gott, að reyndur maður setji þessi mál í rétt samhengi. Af orðum Birgis er ljóst

  1. að sé það áhorfsmál fyrir okkur, hve mikið fé fari af fjárlögum til flótta­mannamála og vegna kostnaðar hér innan­lands í sambandi við þau, með hliðsjón af takmark­aðri getu velferðar­kerfisins til að ráða bót á sárri fátækt meðal sumra Íslend­inga, þá er leiðin greið að hjálpa tólf sinnum fleira fólki frá stríðshrjáðum löndum með aðstoð okkar þar eða í ná­granna­löndunum heldur en með því að kalla þá hingað til Íslands;
  2. að stór hluti flóttamanna vill í reynd hverfa til heimahaganna, ef og þegar stríðsástandi linnir, og taka þátt í uppbygg­ingu heima fyrir. Þess vegna óþarfi að ota ríkis­borgara­réttindum hér að fólki sem er alveg stolt af því að tilheyra öðru landi, þótt það fái hér tímabundið skjól og aðstoð. 

Við þurfum að læra af þeim, sem reynsluna hafa, ekki dvelja um of við það, sem æstir talsmenn "Góða fólksins" kunna að hrópa á samfélagsmiðlum, að hluta til í þeim tilgangi að reyna að koma höggi á meinta andstæðinga sína. Við eigum öll að hugsa um sameiginlegan hag Íslendinga, loka ekki augunum fyrir neyð heimsins, en hjálpa þar til með þeim hætti sem skil­virk­astur er og sam­rýmist getu okkar og vilja sem flestra. Hitt er ekki til farsældar að gera þessi mál að langtíma-misklíðarefni og stuðla að andstæðum í samfélaginu, hvað þá að varanlegu tveggja eða þriggja tungumála samfélagi í þessu litla landi feðra okkar og mæðra.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Vann við flóttamannaaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ég hélt Jón Valur að Íslenska Þjóðfylkingingin hafi dregið sig í hlé meðan lögreglurannsókn færi fram á vítaverðum kosningarbrotum hennar? í MÍNUM HUGA ER DAGAR HENNAR TALDAR!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.10.2017 kl. 00:21

2 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Þú kýst, Guðmundur Jónas, að gefa þér niðurstöðu rannsóknar þeirrar sem yfirkjörstjórn fór fram á. Sökina getur átt einstaklingur (eins og beinar vísbendingar eru um) eða einstaklingar, innan eða utan ÍÞ, en það gerir ekki flokkinn í heild né flokksstjórnina sjálfkrafa ábyrga fyrir þessum fölsunum.

Íslenska þjóðfylkingin, 4.11.2017 kl. 13:29

3 Smámynd: Íslenska þjóðfylkingin

Innleggið var mitt. JVJ.

Íslenska þjóðfylkingin, 4.11.2017 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband