Brezkur almenningur vill fleiri vopnaða lögreglumenn á göturnar

Enn eitt hryðjuverk var framið í London í gær. 29 særðust, en hefðu flest­allir farizt, ef sprengjan hefði sprung­ið til fulls. Þó­nokkr­ar til­raunir til fleiri hryðju­verka hafa verið gerðar á ár­inu, en afstýrt af lögreglu, auk þeirra sem "heppn­uðust" að ósk öfga-islamista í Bretlandi, með 34 manna dauðsföllum. Almenn­ingur stendur með stjórn­völdum og vill að lögreglan í götu­eftirliti og við lestar­stöðvar og sérstakar fjölda­samkomur sé vopnuð. Ennfremur var virkjuð áætlun, Temperer, sem felur í sér þátttöku hermanna.

Meintur tilræðismaður, 18 ára karlmaður, hefur nú verið handtekinn. "Ríki islams" lýsti yfir ábyrgð á glæpnum. (Byggt á Rúv.is, Mbl.is, http://www.bbc.com/news/uk-41292528)

Jón Valur Jensson.


mbl.is Maður handtekinn í tengslum við hryðjuverkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Brezkur almenningur ætti bara sjálfur að vopnast.  Þannig þyrftu þeir ekki að bíða í korter ef:
1: terroristi réðist á þá þar sem verðir eru ekki

2: terroristar dræpu vopnuðu verðina fyrst.

Og það myndi spara þeim pening og draga úr ýmsum öðrum glæpum.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.9.2017 kl. 17:16

2 identicon

Eins og fyrrverandi SAS maður Phil Campion segir - allir grunaðir jihadís og fólk eins og þau ætti að vera læst iveg og rannsökuð áður en tilraunir eru gerðar til að drepa fleiri fólk í Bretlandi.

Merry (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband