STÓRTÍÐINDI Í HÆLIS­LEIT­ENDA­MÁLUM: Virkar aðgerðir til að senda tilhæfulausa hælisleitendur heim

Dómsmálaráðherra hefur gefið út reglu­gerð­ar­breyt­ingu sem dregur úr þjón­ustu við stóran hluta hælis­leit­enda sem fengið hafa synj­un eða dregið um­sókn sína til baka. Veru­lega verður dregið úr þjón­ustu, s.s. hús­næði og vasa­pen­ingum til hælis­leit­enda sem koma frá ríkjum sem skil­greind eru sem örugg skv. nýrri reglu­gerð sem tók gildi 1. september. Með þessu verður máls­meðferð flýtt til muna. Fari við­komandi ekki sjálf­viljugir úr landi, hefur Útlend­inga­stofnun vald til að vísa mönnum úr landi. "Innanríkisráðherra segir tilgang­inn að flýta máls­meðferð til muna, en Rauði krossinn gagnrýnir breytingarnar harðlega." (Stöð 2 í kvöld)

Stöð 2 segir frá:

Hersir Aron Ólafsson fréttamaður: "Breytingar á gildandi reglugerð um útlendinga voru staðfestar með undir­skrift dómsmála­ráðherra um síðustu mánaða­mót, en breyt­ingarnar lúta að málefnum hælis­leitenda. Eitt ákvæði hinnar nýju reglu­gerðar veitir Útlend­inga­stofnun heimild til að taka ákvarðanir í s.k. forgangs­málum strax að loknu fyrsta viðtali og án samhliða skriflegs rök­stuðnings. Til slíkra forgangs­mála teljast umsóknir sem eru taldar "bersýnilega tilhæfu­lausar.""

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra: "Það eru annars vegar þá umsóknir frá öruggum ríkjum svokölluðum og hins vegar umsóknir sem fela ekki í sér ástæðu fyrir hælisumsókn, svo sem eins og flótta undan stríðsátökum og þar fram eftir götunum."

Fréttamaður: "Það sem af er ári hafa um 40-45% hælis­umsókna hér á landi verið frá einhverju hinna svokölluðu öruggu ríkja, og falla umsóknir þeirra því í flokk hinna tilhæfulausu. Á síðsumar­mánuðum hefur hlutfallið þó verið mun hærra, en í júlí voru um 70% umsækj­enda frá skilgreindu öruggu ríki. Þetta skýrist þó helzt af því, að Georgíu var bætt á lista öruggra uppruna­ríkja um miðjan júlímánuð, en helmingur allra hælisumsækjenda í júlí voru Georgíumenn. Tals­maður hælis­leitenda hjá Rauða krossinum setur spurninga­merki við notkun listans:"

Kristjana Fenger, fulltrúi Rauða kross Íslands: "Við teljum að það sé vel hægt að vinna mál hratt og á réttlátan máta án þess að skerða réttaröryggi, án þess að notast við reglugerðarákvæði og lista yfir þessi upprunaríki. Útlendinga­stofnun hefur tiltölulega frjálsar hendur með hvaða ríki eru sett á þennan lista, og það er ekki sérlega gagn­sætt hvers konar mat fer fram þegar ríki eru sett á hann."

Þorsteinn Gunnarsson hjá Útlendinga­stofnun: "Örugg upprunaríki eru sem sagt listi sem Útlendingastofnun setur yfir þau ríki þar sem við höfum framkvæmt ákveðna forskoðun eða grunn­skoðun á þessum ríkjum og teljum að þau uppfylli þau skilyrði sem almennt eru gerð til þess að ríki teljist réttarríki og viðurkenna mann­réttindi eins og okkar staða kveður á um."

Fréttamaður: "Með reglugerðinni er aftur á móti einnig dregið úr þjónustu við hælisleitendur sem hafa dregið umsóknir sínar til baka eða fengið við þeim synjun. Í slíkum tilfellum er bæði heimilt að fella niður þjónustu til hælisleitenda, sem og að hætta að greiða þeim framfærslufé."

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra: "Það gengur auðvitað ekki að vera að veita slíka þjónustu eða veita fólki framfærslufé sem hefur fengið synjun um hæli hér og enn síður gagnvart fólki sem dregur umsókn sína til baka."

Fréttamaður: "Er þá ekki hætta á að það standi hérna fólk eftir aura- og matarlaust og komist ekki aftur heim?"

Dómsmálaráðherra: "Ja, það eru úrræði líka. Það er líka heimild fyrir Útlendinga­stofnun til þess að grípa inn í það með brott­vísunum, og það er verið að skerpa heimild Útlendinga­stofnunar til að vísa mönn­um brott úr landi og með endurkomu­banni inn á Schengen-svæð­ið, þannig að þessi reglu­gerð­arbreyting er nauðsynleg í mörgu tilliti."

Nánast var sagt frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 (ekki Rúv), sjá hér:  

http://www.visir.is/section/media99?fileid=SRC9F7F5D8C-70E8-4C8B-922E-14767A424B8A

Jón Valur Jensson.


mbl.is Skora á ráðherra að stöðva brot gegn börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband