Taktíkin að baki?

Var Brynjar Níelsson sendur út af fundinum í Valhöll til að þreifa mætti á því hvort hljómgrunnur væri fyrir sitjandi starfsstjórn áfram? Enginn hljómgrunnur reyndist fyrir því. Þá var kominn tími á yfirlýsingu Bjarna að stefnt væri á kosningar í nóvember.

JVJ


mbl.is Yfirlýsing Bjarna í Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn hræðist kosningar!

Ráða má af uppl. Brynjars Níelssonar af þing­flokksfundi í Valhöll, að Sjálf­stæðis­flokk­urinn hræðist kosningar, vilji ekki uppgjör þjóðar­innar við það sem úr­skeið­is hefur farið, og má það heita skiljan­legt!

Brynjar sagði fundinn hafa verið góðan og "mikið kjaftað". Sjálfur "kjaftaði" hann of mikið í morgun­útvarpi Rúv, eins og menn heyrðu í hádegis­fréttunum, því að allt of frakkur var hann og stærilátur og ekki næmari en Benedikt Sveinsson fyrir því, hvað hyggilegt er að gera og segja. En nýskroppinn út af fundinum sagði Brynjar:

„Við erum að fara yfir ástandið og mögu­leik­ana og hvað hægt er að gera. Mér finnst að for­sæt­is­ráðherra eigi að reyna að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn. Það er auðvitað lyk­il­atriði og ég held að þjóðin eigi það skilið,“ seg­ir Brynj­ar. 

Brynj­ar seg­ir sam­stöðu vera meðal þing­manna Sjálf­stæðis­flokks­ins að mynda nýja starf­hæfa rík­is­stjórn, frek­ar en að ganga til kosn­inga. (Mbl.is, leturbr. hér.)

Þarna sjá menn þankaganginn, það stendur ekki til að bera málin undir þjóðina!

En sjálfum tókst Bjarna Benediktssyni á sínum lokadegi sem forsætisráðherra að afhjúpa þá staðreynd, að stefna flokksins í innflytjendamálum hafi verið ófarsæl og til bölvunar, ef eitthvað er! (sjá um það næstu grein hér á undan).

Jón Valur Jensson.


mbl.is Lykilatriði að mynda starfhæfa stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband