Sunnudagur, 4.6.2017
Donald Trump er raunsærri en borgarstjóri Lundúna
Það er vitaskuld laukrétt tístað hjá Trump Bandaríkjaforseta, að það er engan veginn í lagi, þegar "í það minnsta sjö létu lífið og 48 slösuðust í hryðjuverkaárás", að borgarstjóri Lundúna segi að það sé "engin ástæða til að vera óttasleginn""!
Sadiq Khan, hinn múslimski borgarstjóri, hefur áður verið gagnrýndur fyrir ummæli sín vegna öfgastefnu meðal múslima, en þessi svör fekk hann frá Trump sem þóttu viðbrögð Khans við árásunum í London í gærkvöldi ekki nógu eindregin.
Við verðum að hætta að reyna að sýna pólitíska rétthugsun og verðum að vernda fólkið okkar. Annars versnar þetta bara,
skrifaði Trump á Twitter, og virðist það bæði rétt mat og sanngjarnt.
Eitt sem Manchester-hryðjuverkið hafði í för með sér virðist vera að viðbragðsflýtir brezku lögreglunnar hafi aukizt. Frá því að árásin hófst í gær þar til morðingjarnir voru felldir, liðu ekki nema átta mínútur.
Annar lærdómur getur sannarlega orðið fyrirbyggjandi gegn fleiri hryðjuverkum: að menn láti af allri glópabjartsýni og von um að þessu fari senn að ljúka. Það gerir það ekki án þess að menn efli forvarnir að miklum mun, en þar gæti þetta verið efst á blaði:
- að efla netnjósnir með múslimum innanlands og í tölvusamskiptum þeirra við fólk í múslimskum ríkjum og með skrifum þeirra á alþjóðlega vefi;
- að koma fyrir hlustunarbúnaði í öllum moskum, ef þær eiga að fá starfsleyfi áfram;
- að sett verði tímabundið bann á ferðir eða a.m.k. innflutning múslima til Evrópu, þar til múslimskir hryðjuverkamenn hafa látið af drápsathæfi sínu þar um ákveðinn tíma, 1-2 ár eða svo. Haldi þeir síðan áfram fjöldamorðum á nýjan leik, má aftur skella á öðru slíku tímabundnu innflutningsbanni frá múslimaríkjum.
Þetta gæti reyndar orðið varanlegt bann áratugum saman, en við því er ekkert að segja, heldur hrein nauðsyn og örugglega til að draga úr þessum árásum, þótt hitt beri að viðurkenna, að önnur og þriðja kynslóð frá innflytjendum er oft mun róttækari en sú fyrsta. En þar verður þá þeim mun meira undir því komið að fylgja þeim kynslóðum vel eftir í uppeldinu: í gegnum skólakerfið og félagslega þátttöku og með aðlögun að vestrænum hugunarhætti, sem múslimar verða að tileinka sér, vilji þeir öðlast fullan þegnrétt í landi Bretadrottningar. Komi full andstaða við slíkt í ljós meðal þeirra eða grunur um þátttöku í andbrezkri starfsemi, á að binda svo um hnútana, að vísa megi þeim til baka til síns upprunalands. Slíkar valdheimildir hafa frönsk stjórnvöld, og Bretum er engin vorkunn að því að taka upp sömu vinnubrögð. Ættu stjórnvöld hér á landi sömuleiðis að tryggja sig með sérstökum skilmála-ákvæðum, sem fylgja beri allri mótttöku nýrra ríkisborgara, að þeim sjálfum og jafnvel börnum þeirra megi vísa úr landi fyrir skrif eða athafnir sem fela í sér stuðning við erlendar hryðjuverkahreyfingar.
Jón Valur Jensson.
Trump gagnrýnir borgarstjóra Lundúna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bretland | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 4.6.2017
Nýtt blóðbað í Lundúnum. ISIS fagnar. Trump gefur gild ráð: lokið á innflutning múslima!
Óhugnaðurinn er ekki lítill: fyrst ekið yfir fólk á sendibíl, síðan ruðzt út með langar sveðjur og menn stungnir hver af öðrum og m.a. tvítug stúlka. Þeir voru þrír saman þessir hrottar, þetta er enginn einfari, þetta eru víslega múslimar af svæsnustu gerð, sem offramboð er af nú um stundir. London er öll í uppnámi, almenningur, lögregla og stjórnvöld.
Það er verið að breyta friðsælu Englandi í vígvelli einn af öðrum. Annarleg mannhaturs-hugmyndafræði öfga-islamista býr að baki. Fagrir staðir með aldalangar minningar, eins og Vauxhall, verða skyndilega atburðasvið ógnar og skelfingar.
Hér er sonnetta Johns Keats (1795-1821), tileinkuð konu sem hann sá bregða fyrir í Vauxhall fimm árum fyrr:
XLIII. sonnetta
Til konu sem skáldið sá nokkur andartök í Vauxhall
Í fimm ár útfall sjávar séð ég hef
og sendna fjöru án afláts breyta sér,
frá því þín fegurð óf mig í sinn vef,
mitt auga, er dróstu hanzka af fingrum þér.
Og enn, ef himna lít ég næturljós,
er ljómi þinna augna sefi minn;
mig gleður ei hin unga villirós,
mín andans fró er rjóður vangi þinn;
mig gleður ei hið bjarta lífsins blóm,
en blítt mitt eyra hlustar eftir því
hvað vakti þrá, við vara þinna óm,
þá vaknar löngun mín til þín á ný.
Þú varpar skugga á heimsins yndi allt.
Án þín er lífið hryggðarfullt og kalt!
Jón Valur Jensson þýddi.
Fegurðin ríkir ekki lengur, nú er jafnvel vegið að saklausri, ungri konu með haturssveðju í nafni islams!
Og nú talar helzti meintur friðarspillir allra vinstrisamkvæma heimsins inn í þessa brezku atburði, Donald Trump Bandaríkjaforseti: Eina ráðið er að loka á innflutning allra múslima til Vesturlanda!
Hvað finnst lesendum um það?
JVJ.
Urðu vitni að stunguárás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bretland | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)