Miðvikudagur, 21.6.2017
Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni treystist í sessi
Það er gleðiefni mörgum, að samgönguráðherrann stefnir að nýrri flugstöð í Vatnsmýri á næsta ári. Yfirgnæfandi meirihluti íbúa bæði dreifbýlis og þéttbýlis vill halda flugvellinum í Reykjavík. Hvassahraun útilokast bæði vegna veðurskilyrða* og af því að þar eru vatnsverndarsvæði Suðurnesjamanna. Eins er Hólmsheiðin enginn raunhæfur kostur.
Íslenska þjóðfylkingin styður eindregið flugvöllinn í Vatnsmýrinni. ÍÞ vill að núverandi staðsetning innanlandsflugvallar verði til frambúðar, segir í stefnuskrá flokksins.
Reykjavíkurflugvöllur úr lofti
"Ekki náðist í Dag B. Eggertsson, borgarstjóra, vegna málsins." - Skyndilega varð þeim málglaða orða vant! En hörð andstaða vinstri flokkanna í borgarstjórn gegn Reykjavíkurflugvelli tengist m.a. lóðastefnu þeirra og "þéttingu byggðar" og "Borgarlínunni" sem þeir vilja koma í gagnið, dýrkeyptri og vonlausri framkvæmd. Bjarni Jónsson verkfræðingur rökstyður það afar vel, að hugmyndafræðin að baki hennar er reist á sandi og "óskhyggju sem mun rýra lífskjör og lífsgæði" (sjá greinar hans HÉR og hér), en Íslenska þjóðfylkingin er einmitt andvíg Borgarlínunni, sem útilokað er, að muni borga sig.
* Sjá grein undirritaðs (sem vísar á afar fræðandi greinaskrif Þorkels Ásgeirs Jóhannssonar flugmanns): Hvassahraun er mun verri kostur en Rögnunefndin vill vera láta; ísing og snjókoma algengari en í Rvík.
Jón Valur Jensson.
Ný flugstöð rís í Vatnsmýrinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)