Fimmtudagur, 1.6.2017
Hjátrúin á loftslagshlýnun af mannavöldum nær nýjum hápunkti
Eigum við nú að fara að taka mark á Árna Finnssyni um náttúruverndarmál? Hann hefur löngum verið þar á yzta kanti, umboðslaus sem hann þó er til nokkurra ábúðarmikilla yfirlýsinga, þó verið óspar á þær, s.s. um hvalamál og jafnvel þorskveiðar.
Hjátrúin á loftslagshlýnun af mannavöldum nær nú hápunkti í viðleitni þýzkra valdhafa og einkum vinstri manna til að sverta Trump Bandaríkjaforseta fyrir að taka ekki þátt í Parísarráðstefnusamkomulaginu. Gamlir óvinir Bandaríkjanna stökkva fram úr sínum skúmaskotum eins og þeir upplifi nú endurnýjun lífdaganna. Þó hefur jörðin áður mátt reyna mörg hlýinda- jafnt sem ísaldarskeiðin. En ótrúlegasta skynsemdarfólk lætur einföld gröf "sannfæra" sig.
Og nú reynir Árni Finnsson, formaður hinna dularfullu Náttúruverndarsamtaka Íslands, af öllum mönnum að kalla Íslendinga til liðs við þessi ósönnuðu hjáfræði og hyggur sig geta snúið útgerðarmönnum um fingur sér! Lítt dugar það honum til vegsauka í þessu máli, að hann fekk eitt árið viðurkenningu frá ófaglegum hópi í utanveltusamtökum, m.a. Semu Erlu Serdar, Einari Kárasyni rithöfundi, einum borgarfulltrúa "Besta flokksins" og Gunnari Hólmsteini Ársælssyni ESB-predikara.
Jón Valur Jensson.
Ákvörðun Trump mikil ógn við Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2017 kl. 01:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 1.6.2017
Einkavæðingar- og frjálshyggjustjórnin herðir enn að ríkisfjármálum, almenningi til bölvunar
Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára felur í sér brot gegn fyrri lögum, 3% samdrátt í samneyzlu, 2% samdrátt til menntakerfisins, sem hafði í kosningum verið lofað rýmri framlögum eftir langtíma samdrátt. Annað eftir þessu!
Engin loforð ráðandi flokka um aukin framlög til heilbrigðismála næsta árið er að finna í þessari áætlun sem var samþykkt sem ályktun Alþingis í nótt. Þar inni í var framlag til að kaupa þriðju þyrlu fyrir Landhelgisgæzluna, en ekki til að standa undir útgjöldum til að manna þá þyrlu!
Samgöngumál eru áberandi vanrækt, og mætti halda, að stefnt sé að því að fjölga slysum á þjóðvegum!
Almennt er einkavæðingar- og frjálshyggjustefnan á fullu í þessari fimm ára áætlun, og ræður Sjálfstæðisflokkurinn för, einnig um það að standa ekki við loforð um að rétta kjör öryrkja. Vinstrimennska Bjartrar framtíðar heyrir nú til sögubóka.
Undirritaður fylgdist vel með umræðunum á þingfundi sem stóð til kl. 2.10 í nótt og skrifaði um málið þessa grein: Flokksræðið á fullu á Alþingi, í bæði stjórnarflokkum (sem ana áfram í óverjanlegri 5 ára áætlun) og stjórnarandstöðu. Margt mjög athyglisvert kom fram í þeirri umræðu allri, m.a. að þrjú bandalög virðast nú við lýði á Alþingi og óvæntir "bedfellows" þar í einu þeirra.
Jón Valur Jensson.
PS. Ríkisstjórnarflokkarnir fengju samtals 22 þingmenn ef kosið væri í dag, sem er 10 þingmönnum minna en þeir fengu í alþingiskosningunum síðasta haust, en stuðningur við ríkisstjórnina hefur dregist jafnt og þétt saman frá kosningum.Stuðningur við ríkisstjórnina hefur dregist saman um 3% frá síðustu mælingu en 36% styðja nú ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Rúv greindi fyrst frá.
Heimild:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/06/01/enn_faerri_stydja_rikisstjornina/
Fjármálaáætlun samþykkt með ágreiningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 2.6.2017 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)