Þrátt fyrir endurkomu 350 brezkra jíhadista úr "heilögu stríði" ISIS, hefur aðeins einn þeirra verið stöðvaður!

Nú velta Bretar fyrir sér: Gerum við nóg til að stöðva jíhadista eins og Salman Abedi frá því að snúa aftur til Bretlands eftir vopnaða baráttu þeirra erlendis?

Experts have told The Times that a key measure to stop it has been used only once

Með öðrum orðum: Bretar hafa einungis einu sinni nýtt sér valdheimild til að stöðva slíka endurkomu jíhadista (fylgismanna "heilags stríðs" múslima) þrátt fyrir að 350 vígamenn frá Bretlandi hafi snúið til baka til landsins eftir að hafa barizt með "Ríki islams"!

Brezk stjórnvöld hafa greinilega nóg að gera við að taka til hjá sjálfum sér eftir hryðjuverkið hroðalega í Manchester.

JVJ.


Islamstrú

Guðmudur í framboði til formanns  Islamstrú (stjórnmálaáróður) verður banabiti íslenskrar menningar verði ekki spyrnt við fæti til að varna slíku.  Áróður stjórnmála­manna sem nú sitja á þingi um að við eigum að taka á móti fjöldanum öllum af islamistum er landráð af verstu gerð. Þetta fólk er ekki ábyrgt en mun ekki axla þá ábyrgð sem slíkur aulaskapur veldur.

    Hér er ekki átt við einhvern þjóðflokk eða útlit viðkomandi innflytjenda. Annars værum við að standa í móti öllum aröbum, Kínverjum, Indverjum og svo lengi mætti telja, heldur erum við ekki að níða niður hvort hörunds­litur viðkomandi sé svartur, brúnn, gulleitur eða bara hvítur. Nei, Íslenska þjóðfylkingin er að tala um pólitíska, hugmynda- og trúarbragða-hreyfingu sem ekki er  minnihlutahópur, en elur á hatri í garð annarra með það að markmiði að ná undir sig alheimsyfirráðum. 

    Það sem er merkilegt er að það skuli vera til fólk, ekki einstak­lingar heldur heilu hjarðirnar, sem telja alþingismenn, fréttamenn, kennara, vinstri­sinnaða pólitíkusa, og svo lengi mætti telja, sem hampa slíkri hreyfingu. Hreyfingu sem hefur það að megin­markmiði að útrýma þeim, sem ekki eru sama sinnis og þeir. 

    En þetta er nú ekki bara það, að þessi hópur sé, að manni virðist, heilaskemmdur. Einnig eru femínistar og samkyn­hneigðir fylgjendur þeirra sem aðhyllast slíkt skemmdar­verk á íslenskri menningu og er undarlegt, því þessi trúarbrögð leggja þá sérstaklega út fyrir að vera réttdræpa, hvar sem í þá næst. Er það virkilega svo að Íslendingar vilji koma menningunni aftur til steinaldar, þar sem feðra/karlaveldið er allsráðandi og kúgun kvenna er réttlætt, barnaníð er talið sjálfsagt og heiðursmorð upphafin sem mikil dyggðarinnar verk.  

    Ég trúi því ekki að við séum komin svo langt að við teljum það réttlætanlegt og sjálfsagt, samkvæmt túlkun RÚV-liða með Stefán Ólafsson stórkrata sem trúverðugan talsmann og skýranda, að það sé réttlætanlegt að framin séu morð á óbreyttum borgurum eða nokkrum öðrum í nafni trúar eða hégómagirni einhverra afla sem kalla sig islams­trúar (tilvísun til hryðjuverka í Evrópu og víðar). Hvernig ætlar þetta fólk að túlka hryðjuverk á Íslandi  ef ekki verður spyrnt við fæti, til að sporna við þeirri þróun sem þetta stjórnlausa sjálfmiðaða lið vill innleiða inn í landið?

    Talsmenn þessa hóps sem ver þessar gjörðir hrópar hátt á hátíðar- og tyllidögum um menningu landsins, málið sem gerir okkur sérstök, hversu gott sé að búa hér, en á meðan tala þau niður allt það sem að framan segir. Þeim er skítsama um menninguna sem við erum að selja útlend­ingum en verður ekki lengi ef fram heldur sem horfir. Íslendingar koma ekki til með að geta lesið sagnabækur okkar því tungumálið verður heillum horfið og enginn verður þjóðhátíðardagur þjóðarinnar í fjömenn­ingar­samfélaginu hvað svo sem það mun kallast. Hver á sá dagur að vera þegar fjöldi þeirra sem eru t.d. frá arabaríkjunum, Asíuríkjunum eða Indlandi verður orðinn 800 þúsund eins og Píratar, NO BORDERS-liðar og vinstrielítan vill? 

    Nei, nú segjum við stopp! Það er kominn tími til að Íslendingar taki ábyrgð á eigin landamærum og takmarki þann fjölda, sem hér vill setjast að. Velji þá sem í einlægni vilja gerast sannir þegnar landsins og gera lög, reglur og menningu þess að sínum. Þá er ekki verið að tala um að viðkom­andi segi skilið við sínar rætur, en geri sér grein fyrir því að hann er gestur í okkar landi en við ekki í hans.  

     Til að þetta náist er það nauðsynlegt að segja sig úr Schengen og gera tvíhliða samning við Europol og ríkislögreglu í öðrum löndum. T.d. Scotland Yard, norsku, dönsku og sænsku ríkislögregluna um samstarf á milli landa. Öllum þeim sem koma til landsins skilríkja­lausir sé umsvifalaust snúið við til þess lands sem þeir komu frá og þeir eiga ekki að vera á ábyrgð Íslendinga (Dyflinnar-samkomulagið). Ekki á að búa til kerfisbákn hér á landi eins og nú tíðkast hjá Útlendingastofnun, Rauða krossinum og fleiri afætum sem hafa beinan hagnað af sem flestum flóttamönnum og hælisleitendum, er hingað leita.

    Við eigum aftur á móti að nota það fé, sem í þennan málaflokk fer, til að aðstoða þá sem eru í raunverulegri neyð, það á að gera í þeirra nær­umhverfi. Þetta myndi hjálpa til við að losa um íbúðir inn á íbúða­mark­aðinn. Ástæða þess að hér sé staldrað við er ekki mannvonska heldur sú staðreynd að Íslendingar hafa ekki efni á þessari vitleysu. Þetta mun leggja velferðar­kerfið í rúst. Nú er svo komið að reiknað er með að 12 til 18 milljarðar fari í þennan málaflokk, beint og óbeint, þetta árið. Einhvers staðar verður að taka þessa peninga. Það kann að vera að það líti út fyrir að eitthvert fjármagn sé til að leysa bráðasta vandann nú um stundir en Íslendingar verða ekki alltaf í góðæri og hvað þá?  

    Það er ákall Íslensku þjóðfylkingarinnar til þeirra sem unna sínu landi, menningu og afkomendum sínum, að þeir standi saman og mótmæli þessu háttalagi ríkisstjórn­arinnnar. Það er hægt að gera í komandi sveitar­stjórnar­kosningum og svo ekki síst í næstu alþingis­kosningum; vonandi verður þeirra ekki langt að bíða.

    Kæru vinir, flokksfélagar og aðrir landsmenn. Það er og verður megin-markmið að stöðva byggingu mosku í Reykjavík í komandi borgar­stjórnar­kosningum. Til þess þarf Íslenska þjóðfylkingin þinn stuðning á komandi vori. Við þurfum öflugt fólk sem er tilbúið að standa í lappirnar og berjast með okkur svo við missum ekki landið í hendur öfgasamtaka islamista. Það hættulegasta er að þeir nái og fái að byggja sér mosku sem er í raun ráðhús þeirra og uppeldisstöð fyrir ungviði til heilaþvottar. Þar ráða þeir ráðum sínum bæði til góðs og ekki síst til hins illa sem þeim er innrætt frá barnæsku í gegnum svokölluð trúarbrögð. Látið okkur heyra í ykkur sem tilbúin eruð í að berjast með landinu ykkar.

Guðmundur Karl Þorleifsson, 

formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar. 


mbl.is Þrettándi maðurinn handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. maí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband